Dómarabókin 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Dómarabókin 7

Nú tók Jerúbbaal — það er Gídeon — sig árla upp og alt liðið, er með honum var, og settu þeir herbúðir sínar hjá Haród-lind; en herbúðir Midíans voru fyrir norðan hann, hinumegin við Mórehæð þar á sléttunni.

Og Drottinn sagði við Gídeon: Liðið er of margt sem með þér er, til þess að eg vilji gefa Midían í hendur þeirra; ella kynni Ísrael að hrokast upp gegn mér og segja: Mín eigin hönd hefir frelsað mig.

Kalla því nú í eyru fólksins og seg: Hver sá, sen hræddur er og hugdeigur, snúi við og fari aftur frá Gíleað-fjalli. Þá sneru aftur tuttugu og tvær þúsundir af liðinu, en tíu þúsundir urðu eftir.

Þá sagði Drottinn við Gídeon: Enn er liðið of margt; leið þú þá ofan til vatnsins, og mun eg reyna þá þar fyrir þig. Sá sem eg þá segi um við þig: þessi skal með þér fara, hann skal með þér fara; en hver sá er eg segi um við þig: þessi skal ekki með þér fara, hann skal ekki fara.

Leiddi hann þá liðið niður til vatnsins. Og Drottinn Sagði við Gídeon: Öllum þeim, sem lepja vatnið með tungu sinni, eins Og hundar gjöra, skalt þú skipa sér, og sömuleiðis öllum þeim, sem krjúpa á kné, til þess að drekka úr lófa sínum, er þeir færa upp að munni sér.

En þeir, sem löptu vatnið, voru þrjú hundruð að tölu; en alt hitt liðið kraup á kné, til þess að drekka vatnið.

Þá sagði Drottinn við Gídeon: Með þeim þrem hundruðum manns, sem lapið hafa, mun eg frelsa yður og gefa Midían í hendur þínar, en alt hitt liðið Skal fara, hver heim til sín.

Þá tóku þeir til sín veganesti liðsins og lúðra þeirra; en alla aðra Ísraelsmenn lét hann burt fara, hvern til síns heimkynnis, og hélt aðeins þrem hundruðum manna eftir. Og herbúðir Midíans voru fyrir neðan hann á sléttunni.

Hina sömu nótt sagði Drottinn við hann: Rís þú upp og far ofan í herbúðirnar, því að eg hefi gefið þær í þínar hendur.

En ef þú ert hræddur að fara ofan þangað, þá far þú með Púra, svein þinn, til herbúðanna,

og hlustaðu á, hvað þeir segja. Mun þá hugur þinn styrkjast svo, að þú fer ofan í herbúðirnar. Þá fór hann og Púra sveinn hans til yztu hermannanna, sem voru í herbúðunum.

En Midíanítar, Amalekítar og allir austurbyggjar höfðu reist herbúðir á sléttunni, sem engisprettur að fjölda til, og úlfaldar þeirra voru óteljandi, sem sandur á sjávarströndu að fjölda til.

Þegar Gídeon kom Þangað, var maður nokkur að segja félaga sínum draum með þessum Orðum: Sjá, mig dreymdi draum og þótti mér byggbrauðskaka velta sér að herbúðum Midíans og komst hún alla leið að tjaldinu og rakst á það, svo að það féll, og kollvelti því, svo að tjaldið lá flatt.

Þá svaraði hinn: Þetta er ekkert annað en sverð ísraelitans Gídeons Jóassunar; Guð hefir gefið Midían og allar herbúðirnar í hendur hans.

Og er Gídeon hafði heyrt frásöguna um drauminn og ráðningu hans, féll hann fram; sneri síðan aftur til herbúða Ísraels og sagði: Rísið upp, því að Drottinn hefir gefið herbúðir Midíans í yðar hendur.

Þá skifti hann þeim þrem hundruðum manna í þrjá flokka og fékk þeim öllum lúðra í hönd og tómar krúsir og blys í krúsunum.

Og hann sagði við þá: Lítið á mig og gjörið sem eg; þegar eg kem að útjaðri herbúðanna, þá gjörið eins og eg gjöri.

Þegar eg því þeyti lúðurinn og allir þeir, sem með mér eru, þá skuluð þér líka þeyta lúðrana kring um allar herbúðirnar og segja: Sverð Drottinn og Gídeons!

Síðan kom Gídeon og það hundrað manna, er með honum var, að útjaðri herbúðanna í byrjun mið-varðtíðarinnar; var þá einmitt nýbúið að setja verðina. Þá þeyttu þeir lúðrana og brutu sundur krúsirnar, sem þeir báru í höndum sér.

Þeyttu nú flokkarnir þrír lúðrana og brutu krúsirnar, tóku blysin í vinstri hönd sér og lúðrana í hægri hönd sér, til þess að þeyta þá, og æptu: Sverð Drottinn og Gídeons!

Stóðu þeir kyrrir, hver á sínum stað, umhverfis herbúðirnar; en í herbúðunum komst alt í uppnám, og flýðu menn nú með ópi miklu.

Og er þeir þeyttu þrjú hundruð lúðrana, þá beindi Drottinn sverðum þeirra gegn þeirra eigin mönnum um allar herbúðirnar, og flýði allur herinn til Bet-Sitta, á leið til Zerera, að árbakkanum við Abel-Mehóla hjá Tabbat.

Nú voru kallaðir saman Ísraelsmenn úr Naftalí, Asser og Sendi anasse, og þeir veittu Midían eftirför.

Gídeon hafði og sent sendimenn um öll Efraím-fjöll og látið segja: Farið ofan í móti Midían og varnið þeim yfirferðar yfir árnar alt til Bet-Bara og yfir Jórdan.

Og þeir handtóku tvo höfðingja Midíanita, þá Óreb og Seeb, og drápu Óreb hjá Órebskletti; en Seeb drápu þeir hjá Seebs-vínþröng. Síðan veittu þeirMidíanítum eftirför. En höfuðin af Óreb og Seeb færðu þeir Gídeon hinumegin Jórdanar.