Dagatal

Mánudagur í 16. viku almenns kirkjutíma

Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.

Almennur kirkjutími · Vika 16

Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Þú, Guð, sem stýrir stjarna herog stjórnar veröldinni,í straumi lífsins stýr þú mérmeð sterkri hendi þinni.Stýr mínu hjarta' að hugsa gottog hyggja' að vilja þínum,og má þú hvern þann blett á brott,er býr í huga mínum.Stýr minni tungu' að tala gott,og tignar þinnar minnast,lát aldrei baktal, agg né spottí orðum mínum finnast.Stýr minni hönd að gjöra gott,að gleði' eg öðrum veiti,svo breytni mín þess beri vott,að barn þitt gott ég heiti.Stýr mínum fæti' á friðar veg,svo fótspor þín ég rekiog sátt og eining semji ég,en sundrung aldrei veki. Amen.

Sálmur 90

Andstef · Metta oss að morgni með miskunn þinni!

1Drottinn, þú hefur verið oss * athvarf frá kyni til kyns.

2Áður en fjöllin fæddust og jörðin og heimurinn urðu til * frá eilífð til eilífðar ert þú, ó Guð.

3Þú lætur manninn hverfa aftur til duftsins og segir * „Hverfið aftur, þér mannanna börn!“

4Því að þúsund ár eru í þínum augum sem dagurinn í gær * þegar hann er liðinn, já, eins og næturvaka.

5Þú hrífur þá burt, sem í svefni * þá er að morgni voru sem gróandi gras.

6Að morgni blómgast það og grær * að kveldi fölnar það og visnar.

7Vér hverfum fyrir reiði þinni * skelfumst fyrir bræði þinni.

8Þú hefur sett misgjörðir vorar fyrir augu þér * vorar huldu syndir fyrir ljós auglitis þíns.

9Allir dagar vorir hverfa fyrir reiði þinni * ár vor líða sem andvarp.

10Ævidagar vorir eru sjötíu ár og þegar best lætur áttatíu ár * og dýrasta hnossið er mæða og hégómi, því að þeir líða í skyndi og vér fljúgum burt.

11Hver þekkir styrkleik reiði þinnar og bræði þína * svo sem hana ber að óttast?

12Kenn oss að telja daga vora * að vér megum öðlast viturt hjarta.

13Snú þú aftur, Drottinn. Hversu lengi er þess að bíða * að þú aumkist yfir þjóna þína?

14Metta oss að morgni með miskunn þinni * að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora.

15Veit oss gleði í stað daga þeirra * er þú hefur lægt oss, ára þeirra, er vér höfum illt reynt.

16Lát dáðir þínar birtast þjónum * þínum og dýrð þína börnum þeirra.

17Hylli Drottins, Guðs vors, sé yfir oss * styrk þú verk handa vorra.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Metta oss að morgni með miskunn þinni!

Sálmur — Jes 42, 10-16 — Sálmur um sigurvegarann og frelsarann Guð

Andstef · Syngið lof Drottins til endimarka jarðar.

10Syngið Drottni nýjan söng, syngið lof hans til endimarka jarðarinnar * þér sem farið um hafið og allt sem í hafinu er, þér fjarlægar landsálfur og þeir sem þær byggja!

11Eyðimörkin og borgir hennar og þorpin, þar sem Kedar býr * skulu hefja upp raustina. Fjallabúarnir skulu fagna, æpa af gleði ofan af fjallatindunum!

12Þeir skulu gefa Drottni dýrðina og * kunngjöra lof hans í fjarlægum landsálfum!

13Drottinn leggur af stað sem hetja, elur á hugmóð sínum eins og bardagamaður. Hann kallar * hann lýstur upp herópi, sýnir hetjuskap á óvinum sínum:

14Ég hefi þagað langan tíma, verið hljóður og stillt mig. Nú mun ég hljóða sem jóðsjúk kona * stynja og standa á öndinni í sama bili.

15Ég mun svíða fjöllin og hálsana og skrælna láta allar jurtir * er þar vaxa. Ég mun gjöra ár að eyjum og þurrka upp tjarnirnar.

16Ég mun leiða blinda menn um veg, er þeir ekki rata, færa þá um stigu * sem þeir ekki þekkja. Ég vil gjöra myrkrið fram undan þeim að ljósi og hólótt landið að jafnsléttu. Þessa hluti mun ég gjöra, og ég hætti eigi við þá.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Syngið lof Drottins til endimarka jarðar.

Sálmur 135, 1-12

Andstef · Lofið nafn Drottins, þér er standið í húsi Drottins.

1Hallelúja. Lofið nafn Drottins * lofið hann, þér þjónar Drottni,

2er standið í húsi Drottins * í forgörðum húss Guðs vors.

3Lofið Drottin, því að Drottinn er góður * leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.

4Því að Drottinn hefur útvalið sér Jakob * gert Ísrael að eign sinni.

5Já, ég veit * að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.

6Allt, sem Drottinn þóknast, það gjörir hann * á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum.

7Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar * gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.

8Hann laust frumburði Egyptalands * bæði menn og skepnur,

9sendi tákn og undur yfir Egyptaland * gegn Faraó og öllum þjónum hans.

10Hann laust margar þjóðir * og deyddi volduga konunga:

11Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan * og öll konungsríki í Kanaan,

12og gaf lönd þeirra að erfð * að erfð Ísrael, lýð sínum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofið nafn Drottins, þér er standið í húsi Drottins.

Stuttur ritningarlestur

Jdt 8, 25b-26a. 27Vér skulum þakka Drottni Guði vorum sem reyndi oss eins og hann reyndi feður vora. Minnist þess hvað hann gjörði við Abraham og hvernig hann reyndi Ísak og minnist þess sem kom fyrir Jakob í sýrlensku Mesópótamíu er hann gætti fjár Labans móðurbróður síns. Drottinn mun ekki refsa oss með slíkri eldraun sem hann setti þá í til að reyna hjörtu þeirra. Nei. Þegar Drottinn hirtir þá sem halda sig að honum þá er það til þess að leiðbeina þeim.

Stutt svarvers

Gleðjist þér réttlátir, yfir Drottni, * hreinlyndum hæfir lofsöngur.

Gleðjist þér réttlátir, yfir Drottni, * hreinlyndum hæfir lofsöngur.

Syngið honum nýjan söng.

Hreinlyndum hæfir lofsöngur.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Gleðjist þér réttlátir, yfir Drottni, * hreinlyndum hæfir lofsöngur.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Lofaður sé Drottinn, því að hann hefur vitjað vor og búið oss lausn.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Biðjum Krist, sem heyrir og frelsar þá sem á hann vona, og segjum:Vér vonum á þig, Drottinn.Guð, þú ert ríkur að miskunn,vér færum þér þakkir fyrir kærleikann sem þú auðsýnir oss.Þú starfar stöðugt ásamt Föðurnum í heiminum,gjör alla hluti nýja fyrir styrk Heilags Anda.Opna augu vor og bræðra vorra,svo að vér í dag sjáum dýrð þína.Þú kallar oss í dag til þjónustu við þig,gef að vér séum bræðrum vorum og systrum tákn náðar þinnar.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú fólst manninum jörðina til umsjónar og varðveislu. Gef oss í dag aukna trúfesti í þjónustunni við þig, svo að verk vor séu þér til dýrðar og meðbræðrum vorum til gagns. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ef vel þú vilt þér líði,þín von á Guð sé fest.Hann styrkir þig í stríðiog stjórnar öllu best.Að sýta sárt og kvíðaá sjálfan þig er hrís.Nei, þú skalt biðja' og bíða,þá blessun Guðs er vís.Ó, þú, minn faðir, þekkirog það í miskunn sér,sem hagsæld minni hnekkir,og hvað mér gagnlegt er.Þig vantar hvergi vegi,þig vantar aldrei mátt,þín bjargráð bregðast eigitil bóta' á einhvern hátt.Mín sál, því örugg sértu,og set á Guð þitt traust.Hann man þig, vís þess vertu,og verndar efalaust.Hann mun þig miskunn krýna.Þú mæðist litla hríð.Þér innan skamms mun skínúr skýjum sólin blíð. Amen.

Sálmur 113

Andstef · Ég vil gefa yður hirða eftir mínu hjarta; þeir munu gæta yðar með greind og hyggindum.

1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.

2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.

3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.

4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt

6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.

7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum

8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.

9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég vil gefa yður hirða eftir mínu hjarta; þeir munu gæta yðar með greind og hyggindum.

Sálmur 146

Andstef · Ég mun gæta hjarðar minnar; ég mun leita að hinum týndu og sækja hina hröktu.

1Hallelúja. Lofa þú Drottin * sála mín!

2Ég vil lofa Drottin meðan lifi * lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.

3Treystið eigi tignarmennum * mönnum sem enga hjálp geta veitt.

4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu * á þeim degi verða áform þeirra að engu.

5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar * sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,

6hann sem skapað hefur himin og jörð * hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,

7sem rekur réttar kúgaðra og * veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir bandingja,

8Drottinn opnar augu blindra * Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.

9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa * en óguðlega lætur hann fara villa vegar.

10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn * Síon, frá kyni til kyns. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég mun gæta hjarðar minnar; ég mun leita að hinum týndu og sækja hina hröktu.

Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara

Andstef · Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauði sína.

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.

4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,

10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauði sína.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 5, 1-4Öldungana yðar á meðal áminni ég, sem einnig er öldungur og vottur písla Krists og einnig mun fá hlutdeild í þeirri dýrð, sem opinberuð mun verða: Verið hirðar þeirrar hjarðar, sem Guð hefur falið yður. Gætið hennar ekki af nauðung, heldur af fúsu geði, að Guðs vilja, ekki sakir vansæmilegs ávinnings, heldur af áhuga. Þér skuluð eigi drottna yfir söfnuðunum, heldur vera fyrirmynd hjarðarinnar. Þá munuð þér, þegar hinn æðsti hirðir birtist, öðlast þann dýrðarsveig, sem aldrei fölnar.

Stutt svarvers

Þér prestar Drottins, * lofið Drottin.

Þér prestar Drottins, * lofið Drottin.

Miklið Guð þér heilögu og auðmjúku í hjarta.

Lofið Drottin.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Þér prestar Drottins, * lofið Drottin.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Prestur hins hæsta Guðs og eftirmynd gæskunnar, þér voruð lýð yðar góður hirðir og Drottni velþóknanlegur.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, um gjörvallan heim úthellir þú náð þinni og fyrir predikun hins helga Þorláks biskups vilt þú fræða norðlægar slóðir. Veit, að þeir er játast undir kristið nafn megi fyrir árnað hans sýna þá trú í verkum sínum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007