Dagatal

Bónaventúra biskup og kirkjufræðari

Minningardagur um Bónaventúra biskup og kirkjufræðara.

Almennur kirkjutími · Vika 15

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Hvorki með hefð né ránihér þetta líf ég fann,sálin er svo sem að lánisamtengd við líkamann.Í Herrans höndum stendurað heimta sitt af mér,dauðinn má segjast sendurað sækja, hvað skaparans er.Nú vel, í Herrans nafni,fyrst nauðsyn ber til slík,ég er ei þeirra jafni,sem jörðin geymir nú lík.Hvenær sem kallið kemur,kaupir sig enginn frí,þar læt ég nótt, sem nemur,neitt skal ei kvíða því.Ég veit, minn ljúfur lifirlausnarinn himnum á,hann ræður öllu yfir,einn heitir Jesús sá,sigrarinn dauðans sannisjálfur á krossi dóog mér svo aumum mannieilíft líf víst til bjó. Amen.

Sálmur 87

Andstef · Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs.

1Kóraíta–sálmur. Ljóð.

2Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum * hann elskar hlið Síonar framar öllum bústöðum Jakobs.

3Dýrlega er talað um þig * þú borg Guðs. [Sela]

4Ég nefni Egyptaland og Babýlon vegna játenda minna þar * hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar.

5En Síon kallast móðirin, hver þeirra er fæddur í henni * og hann, Hinn hæsti, verndar hana.

6Drottinn telur saman í þjóðaskránum * einn er fæddur hér, annar þar. [Sela]

7Og menn syngja eins og þeir er stíga dans * „Allar uppsprettur mínar eru í þér.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs.

Sálmur — Jes 40, 10-17 — Hinn góði hirðir: Hinn hæsti og alvitri Guð

Andstef · Drottinn kemur sem hetja, og endurgjald hans fylgir honum.

10Sjá, hinn alvaldi Drottins kemur sem hetja, og armleggur hans aflar honum yfirráða. Sjá * endurgjald hans fylgir honum, og fengur hans fer á undan honum.

11Eins og hirðir mun hann halda hjörð sinni til haga * taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu, en leiða mæðurnar.

12Hver hefur mælt vötnin í lófa sínum og stikað himininn með spönn sinni * innilukt duft jarðarinnar í mælikeri og vegið fjöllin á reislu og hálsana á metaskálum?

13Hver hefur leiðbeint anda Drottins * hver hefur verið ráðgjafi hans og frætt hann?

14Hvern hefur hann sótt að ráðum, þann er gæfi honum skilning og kenndi honum leið réttvísinnar * uppfræddi hann í þekkingu og vísaði honum veg viskunnar?

15Sjá, þjóðirnar eru sem dropi í vatnskjólu og metnar sem ryk á vogarskálum. Sjá * eylöndunum lyftir hann upp eins og duftkorni.

16Og Líbanon–skógur hrekkur ekki til eldsneytis * og dýrin í honum ekki til brennifórnar.

17Allar þjóðir eru sem ekkert fyrir honum * þær eru minna en ekki neitt og hégómi í hans augum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn kemur sem hetja, og endurgjald hans fylgir honum.

Sálmur 99

Andstef · Tignið Drottin Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli.

1Drottinn er konungur orðinn! Þjóðirnar skjálfi. * Hann situr uppi yfir kerúbunum, jörðin nötri.

2Drottinn er mikill á Síon og * hátt upp hafinn yfir alla lýði.

3Þeir skulu lofa nafn þitt * hið mikla og óttalega. Heilagur er hann!

4Þú ert voldugur konungur, sem elskar réttinn, þú hefur staðfest réttvísina * rétt og réttlæti hefur þú framið í Jakob.

5Tignið Drottinn, Guð vorn * og fallið fram fyrir fótskör hans. Heilagur er hann!

6Móse og Aron eru meðal presta hans * Samúel meðal þeirra er ákalla nafn hans, þeir ákalla Drottin og hann bænheyrir þá.

7Hann talar til þeirra í skýstólpanum * því að þeir gæta vitnisburða hans og laganna, er hann gaf þeim.

8Drottinn, Guð vor, þú bænheyrir þá * þú reynist þeim fyrirgefandi Guð og sýknar þá af gjörðum þeirra.

9Tignið Drottinn Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli * því að heilagur er Drottinn, Guð vor.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Tignið Drottin Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 4, 10-11Þjónið hver öðrum með þeirri náðargáfu, sem yður hefur verið gefin, sem góðir ráðsmenn margvíslegrar náðar Guðs. Sá sem talar flytji Guðs orð, sá sem þjónustu hefur skal þjóna eftir þeim mætti, sem Guð gefur, til þess að Guð vegsamist í öllum hlutum fyrir Jesúm Krist.

Stutt svarvers

Ég kallaði af öllu hjarta: * Bænheyr mig, Drottinn.

Ég kallaði af öllu hjarta: * Bænheyr mig, Drottinn.

Ég vil halda boðorð þín.

Bænheyr mig, Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég kallaði af öllu hjarta: * Bænheyr mig, Drottinn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Þjónum Drottni í heilagleik og hann mun hrífa oss úr höndum óvina vorra.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Guð, Faðir vor, leiðir og nærir þjóð sína í kærleika. Færum honum þakkir og segjum fyllt gleði:Dýrð sé þér, Drottinn, um aldir.Mildi Faðir, vér lofum þig fyrir kærleika þinn,sem geislar í sköpuninni og enn frekar í endurlausninni.Úthelltu í hjörtu vor frá sólarupprás þessa dags lönguninni til að þjóna þér,svo að hugsanir vorar og athafnir séu stöðugt þér til dýrðar.Hreinsa hjörtu vor af allri illri löngun,svo að vér séum stöðugt reiðubúin að gjöra vilja þinn.Opna hjörtu vor fyrir þörfum bræðra vorra,svo að þeir fari ekki á mis við bróðurkærleika vorn.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi, eilífi Guð, upplýs þjóð þína, sem situr í myrkri og skugga dauðans með Jesú Kristi, ljósi birtu þinnar, sem hefur vitjað vor eins og upprennandi sól af hæðum. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. BÓNAVENTURA, BISKUPS OG KIRKJUFRÆÐARI

Vér biðjum, almáttugi Guð, gef að vér sem fögnum fæðingardegi hins sæla biskups Bónaventúra fáum notið afburðavisku hans og líkt stöðugt eftir eldheitum kærleika hans. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Drottinn, Guðs sonur, sem duftið mitt bar,dó til að lífga mitt fölskvaða skar,reis upp af gröf, svo að gæti hann mérgefið sitt eilífa ríki með sér.Kristur, í náð þinni komstu til mín,kveiktir það ljós, er mig vakti til þín,orðið þitt varð mér að lifandi lind,ljómaði við mér þín heilaga mynd.Þú hefur játast mér eins og ég er,augað þitt heilaga þekkir og sérhjarta mitt, vafið í villu og tál,vilja minn blindan og flekkaða sál.Samt viltu eiga mig, allsvana barn,eigrandi skugga um vegalaust hjarn,sekt minni gleyma, þótt særði ég þig,sýkna og lækna og umskapa mig.Frelsari heimsins, mitt hjarta er þitt,hugsun mín, vilji og allt, sem er mitt,lofi og kunngjöri kærleika þinn,konungur, bróðir og lífgjafi minn. Amen.

Sálmur 132 I

Andstef · Þínir heilögu fagna, Drottinn, er þeir ganga inn í tjaldbúð þína.

1Drottinn, mun þú * Davíð allar þrautir hans,

2hann sem sór Drottinn * gjörði heit hinum volduga Jakobs Guði:

3„Ég vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt * eigi stíga í hvílurúm mitt,

4eigi unna augum mínum * svefns né augnalokum mínum blunds,

5fyrr en ég hefi fundið stað fyrir Drottni * bústað fyrir hinn volduga Jakobs Guð.“

6Sjá, vér höfum heyrt um hann í Efrata * fundið hann á Jaarmörk.

7Látum oss ganga til bústaðar Guðs * falla fram á fótskör hans.

8Tak þig upp, Drottinn, og far á hvíldarstað þinn * þú og örk máttar þíns.

9Prestar þínir íklæðist réttlæti * og dýrkendur þínir fagni.

10Sakir Davíðs þjóns þíns vísa * þú þínum smurða eigi frá.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þínir heilögu fagna, Drottinn, er þeir ganga inn í tjaldbúð þína.

Sálmur 132 II

Andstef · Drottinn hefur útvalið Síon sér til bústaðar.

11Drottinn hefur svarið Davíð óbrigðulan eið, er hann eigi mun rjúfa * „Af ávexti kviðar þíns mun ég setja mann í hásæti þitt.

12Ef synir þínir varðveita sáttmála minn og reglur mínar, þær er ég kenni þeim * þá skulu og þeirra synir um aldur sitja í hásæti þínu.“

13Því að Drottinn hefur útvalið Síon * þráð hana sér til bústaðar:

14„Þetta er hvíldarstaður minn um aldur * hér vil ég búa, því að hann hefi ég þráð.

15Vistir hans vil ég vissulega blessa * og fátæklinga hans vil ég seðja með brauði,

16presta hans vil ég íklæða hjálpræði * hinir guðhræddu er þar búa skulu kveða fagnaðarópi.

17Þar vil ég láta Davíð horn vaxa * þar hefi ég búið lampa mínum smurða.

18Óvini hans vil ég íklæða skömm * en á honum skal kóróna hans ljóma.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn hefur útvalið Síon sér til bústaðar.

Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs

Andstef · Drottinn gaf honum mátt og heiður og ríki, og allar þjóðir munu þjóna honum.

17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.

18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.

10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.

11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.

12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn gaf honum mátt og heiður og ríki, og allar þjóðir munu þjóna honum.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 3, 8-9Verið allir samhuga, hluttekningarsamir, bróðurelskir, miskunnsamir, auðmjúkir. Gjaldið ekki illt fyrir illt eða illmæli fyrir illmæli, heldur þvert á móti blessið, því að þér eruð til þess kallaðir að erfa blessunina.

Stutt svarvers

Drottinn * gefur oss hið kjarnbesta hveiti að eta.

Drottinn * gefur oss hið kjarnbesta hveiti að eta.

Seður oss á hunangi úr klettunum.

Gefur oss hið kjarnbesta hveiti að eta.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn * gefur oss hið kjarnbesta hveiti að eta.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Drottinn hefur steypt valdhöfum af stóli og upp hafið smælingja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér færum þér þakkir, Drottinn, er þessi dagur rennur skeið sitt á enda, og áköllum miskunn þína, svo að það sem vér höfum gert í mannlegum veikleika verði fyrirgefið sakir gæsku þinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 16

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.

2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“

3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.

6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.

7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,

10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

Stuttur ritningarlestur

1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007