Dagatal

Miðvikudagur í 3. viku páskatíðar

Virkur dagur á páskatíð.

Páskatíð · Vika 3

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.

Sálmur 86

Andstef · Allar þjóðir, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, hallelúja.

1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.

2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.

3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.

4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.

5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.

6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.

7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.

8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.

9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.

10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!

11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.

12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,

13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.

14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.

15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.

16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.

17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Allar þjóðir, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, hallelúja.

Sálmur — Jes 33, 13-16 — Guð mun dæma með réttlæti

Andstef · Augu vor skulu sjá konunginn og ljómandi fegurð hans, hallelúja.

13Heyrið, þér sem fjarlægir eruð, hvað ég hefi gjört * og sjáið, þér sem nálægir eruð, kraft minn!

14Syndararnir í Síon eru hræddir, skelfing hefur gagntekið guðleysingjana * „Hver af oss má búa við eyðandi eld, hver af oss má búa við eilíft bál?“

15Sá sem fram gengur réttvíslega og talar af hreinskilni, sá sem hafnar þeim ávinningi, sem fenginn er með ofríki, sá sem hristir mútugjafir af höndum sér * sá sem byrgir fyrir eyru sín til þess að heyra eigi morð ráðin, sá sem afturlykur augum sínum til þess að horfa eigi á það, sem illt er,

16hann skal búa uppi á hæðunum. Hamraborgirnar skulu vera vígi hans * brauðið skal verða fært honum og vatnið handa honum skal eigi þverra.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Augu vor skulu sjá konunginn og ljómandi fegurð hans, hallelúja.

Sálmur 98

Andstef · Allar þjóðir munu sjá hjálpræði Guðs vors, hallelúja.

1Syngið Drottni nýjan söng, því að hann hefur gjört dásemdarverk * hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heilagi armleggur.

2Drottinn hefur kunngjört hjálpræði sitt * fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.

3Hann minntist miskunnar sinnar við Jakob og trúfesti sinnar * við Ísraels ætt. Öll endimörk jarðar sáu hjálpræði Guðs vors.

4Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd * hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið.

5Leikið fyrir Drottni á gígju * á gígju með lofsöngshljómi,

6með lúðrum og básúnuhljómi * látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottins.

7Hafið drynji og allt sem í því er * heimurinn og þeir sem í honum lifa.

8Fljótin skulu klappa lof í lófa * fjöllin fagna öll saman

9fyrir Drottni sem kemur til að dæma jörðina. * Hann dæmir heiminn með réttlæti og þjóðirnar með réttvísi.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Allar þjóðir munu sjá hjálpræði Guðs vors, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Rm 6, 8-11Ef vér erum með Kristi dánir, trúum vér því, að vér og munum með honum lifa. Vér vitum að Kristur, upp vakinn frá dauðum, deyr ekki framar. Dauðinn drottnar ekki lengur yfir honum. Með dauða sínum dó hann syndinni í eitt skipti fyrir öll, en með lífi sínu lifir hann Guði. Þannig skuluð þér líka álíta yður sjálfa vera dauða syndinni, en lifandi Guði í Kristi Jesú.

Stutt svarvers

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Hver sem sér Soninn og trúir á hann, hefur eilíft líf, og ég mun reisa hann upp á efsta degi, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Kristur var framseldur vegna synda vorra og reis upp til að gera oss réttlát. Hrópum til hans og segjum:Frelsa oss, Drottinn, með sigri þínum.Kristur Frelsari vor, með sigri á dauðanum gafst þú oss gleði, með upprisu þinni reistir þú oss upp og fylltir oss með gnægðum gjafa þinna,hrærðu hjörtu vor og helgaðu þennan dag fyrir gjöf Heilags Anda þíns.Englarnir á himnum vegsama þig og mennirnir á jörðu tigna þig; tak við tilbeiðslu vorri í anda og í trú,þegar vér höldum upprisu þína.Drottinn Jesús, frelsa oss; sýndu lýð þínum mikla náð þína er vér bíðum í fögnuði eigin upprisu vorrar,miskunna þú oss og vernda á þessum degi frá öllu illu.Konungur dýrðarinnar, uppspretta lífs vors, gefðu, er þú kemur aftur,að vér megum vera eitt með þér í dýrð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum þig, Drottinn, vertu fjölskyldu þinni nálægur, og vinsamlegast auðsýn henni, að þú veitir þeim, sem þú hefur gefið náð trúarinnar, ævarandi hlutdeild í upprisu Einkasonar þíns. Sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Hann sagði við þá: Sjá, ég kem í skýjum,og sólin brosti í tærum augum hans.Þeir skildu ei það ljós, sem lýsti af honum,en lutu þöglir ásýnd þessa manns.Og senn hann kvaddi þá með hryggð í hjarta,með himindjúpa kvöl í brjósti sér,og krossinn bar hann, kærleikanum hlýðinn,– og kveikti sól, er lýsir mér og þér.Og föður sínum fól hann drauminn stóraum frið og líkn, og bað í hinsta sinnog hneigði andlit hljótt og sagði: Faðir,í hendur þínar fel ég anda minn.Á þriðja degi reis hann upp og áttienn orðastað við þá, sem biðu hans.Þeir vissu nú, að hann var Herrann sjálfurog holdi klæddur Guð í sporum manns.Og enn hann segir: Sjá, ég kem í skýjum,og sendir þá, er lúta ásýnd hans,að boða líkn og lífið í hans nafniog leiða saman vegu Guðs og manns.Og þó að páskahretin hurðir lemji,er hitt jafn víst, að sólin brýst í gegn.Í þessum heimi illra verka og óttaer ekkert það, sem honum er um megn.Svo heiti' eg loks á hurðir þínar, Jesús,ó, heyr þú mig, er stend ég þar við dyr.Ég kalla á þig og krýp í þínu nafni,ó, Kristur minn, sem barnið áður fyr. Amen.

Sálmur 126

Andstef · Hryggð yðar mun snúast í fögnuð, hallelúja.

1Þegar Drottinn sneri við hag Síonar * þá var sem oss dreymdi.

2Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna * „Mikla hluti hefur Drottinn gjört við þá.“

3Drottinn hefur gjört mikla hluti við oss * vér vorum glaðir.

4Snú við hag vorum, Drottinn * eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.

5Þeir sem sá með tárum * munu uppskera með gleðisöng.

6Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar * með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hryggð yðar mun snúast í fögnuð, hallelúja.

Sálmur 127

Andstef · Hvort sem vér lifum eða deyjum, tilheyrum vér Drottni, hallelúja.

1Ef Drottinn verndar eigi borgina * vakir vörðurinn til ónýtis.

2Það er til ónýtis fyrir yður, þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar og etið brauð * sem aflað er með striti: Svo gefur hann ástvinum sínum í svefni!

3Sjá, synir eru gjöf frá Drottni * ávöxtur móðurkviðarins er umbun.

4Eins og örvar í hendi kappans * svo eru synir getnir í æsku.

5Sæll er sá maður, er fyllt hefur örvamæli sinn með þeim * þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hvort sem vér lifum eða deyjum, tilheyrum vér Drottni, hallelúja.

Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum

Andstef · Allt er til vegna hans, fyrir hann og í honum: Dýrð sé honum að eilífu, hallelúja.

12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.

13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.

14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.

15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.

16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.

17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.

18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.

19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa

20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Allt er til vegna hans, fyrir hann og í honum: Dýrð sé honum að eilífu, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Heb 7, 24-27Jesús er að eilífu og hefur prestdóm þar sem ekki verða mannaskipti. Þess vegna getur hann og til fulls frelsað þá, sem fyrir hann ganga fram fyrir Guð, þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir þeim. Slíks æðsta prests höfðum vér þörf, sem er heilagur, svikalaus, óflekkaður, greindur frá syndurum og orðinn himnunum hærri. Hann þarf ekki daglega, eins og hinir æðstu prestarnir, fyrst að bera fram fórnir fyrir eigin syndir, síðan fyrir syndir lýðsins. Það gjörði hann í eitt skipti fyrir öll, er hann fórnfærði sjálfum sér.

Stutt svarvers

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Þegar þeir sáu Drottin upp risinn,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Allt sem Faðirinn gefur mér, mun koma til mín, og þann sem kemur til mín, mun ég alls eigi brott reka, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum þig, Drottinn, vertu fjölskyldu þinni nálægur, og vinsamlegast auðsýn henni, að þú veitir þeim, sem þú hefur gefið náð trúarinnar, ævarandi hlutdeild í upprisu Einkasonar þíns. Sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.

Sálmur 31, 2-6

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

2Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis * lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,

3hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi * ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.

4Því að þú ert bjarg mitt og vígi * og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.

5Þú munt draga mig úr neti því * er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.

6Í þínar hendur fel ég anda minn * þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. Ef 4, 26-27Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar. Gefið djöflinum ekkert færi.

Stutt svarvers

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Jesús Kristur, mildur og af auðmjúku hjarta, þú býður þeim er fylgja þér, ok sem er ljúft og létta byrði. Vér biðjum þig að þiggja bænir og störf þessa dags og veit oss hvíldina sem vér þörfnumst svo að á morgun vér verðum enn viljugri að þjóna þér, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007