Fimmtudagur í 5. viku langaföstu
Virkur dagur á lönguföstu.
Langafasta · Vika 5Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.
Einnig í dag
Kýrillos frá Jerúsalem biskup og kirkjufræðari
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- 1. Mósebók 17:3-9
- Davíðssálmur
- Sálmur 105:4-5, 6-7, 8-9
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 8:51-59
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ó, Jesús, líkn og lífið mitt,þú lífið gafst í dauða þitt,til þess að deyða dauða minn,í deyð til lífs því geng ég inn.Þú gráta hlaust, svo gleddist ég,þú gekkst hinn þunga kvalaveg,svo ævi minnar efsta leiðmér yrði heimför sæl og greið.Þú krónu þyrna krýndur varst,af kærleiks nægð þú hana barst,svo djásn ég megi dýrlegt fá,ó, Drottinn minn, þér sjálfum hjá.Þú barst þinn eiginn kvalakross,frá kvölum þegar leystir oss,svo krossburð minn í heimi hérþví hægri létir verða mér.Með hverju get ég þakkað þér?Við þig um allt í skuld ég er.Þú gafst mér lífið góða þitt,ég gef þér hjartað veika mitt. Amen.
Sálmur 57
Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.
1Miktam eftir Davíð * þá er hann flýði inn í hellinn fyrir Sál.
2Ver mér náðugur, ó Guð, ver mér náðugur! Því að hjá þér leitar sál mín hælis * og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita, uns voðinn er liðinn hjá.
3Ég hrópa til Guðs, hins hæsta, þess Guðs * er kemur öllu vel til vegar fyrir mig.
4Hann sendir af himni og hjálpar mér * þegar sá er kremur mig spottar. [Sela] Guð sendir náð sína og trúfesti.
5Sál mín er meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar * og tungur þeirra eru bitur sverð.
6Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina!
7Þeir hafa lagt net fyrir fætur mína * sál mín er beygð. Þeir hafa grafið gryfju fyrir framan mig, sjálfir falla þeir í hana. [Sela]
8Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð * hjarta mitt er stöðugt, ég vil syngja og leika.
9Vakna þú, sál mín, vakna þú * harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.
10Ég vil lofa þig meðal lýðanna * Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,
11því að miskunn þín nær til * himna og trúfesti þín til skýjanna.
12Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.
Sálmur — Jer 31, 10-14 — Gleði hinnar frelsuðu þjóðar
Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.
10Heyrið orð Drottins, þér þjóðir, og kunngjörið það á fjarlægu eyjunum og segið: Sá * sem tvístraði Ísrael, safnar honum saman og mun gæta hans, eins og hirðir gætir hjarðar sinnar.
11Drottinn frelsar Jakob og leysir hann undan valdi þess * sem honum var yfirsterkari.
12Þeir skulu koma og fagna á Síonhæð og streyma til gæða Drottinn, til kornsins, vínberjalagarins * olíunnar og ungu sauðanna og nautanna, og sál þeirra skal verða eins og vökvaður aldingarður, og þeir skulu eigi framar vanmegnast.
13Þá munu meyjarnar skemmta sér við dans og unglingar og gamalmenni gleðjast saman. Ég * mun breyta sorg þeirra í gleði og hugga þá og gleðja eftir harma þeirra.
14Og ég mun endurnæra sál prestanna á feiti * og lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum – segir Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.
Sálmur 48
Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.
1Ljóð. Kóraítasálmur.
2Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs * á sínu helga fjalli.
3Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð * yst í norðri, borg hins mikla konungs.
4Guð hefur í höllum * hennar kunngjört sig sem vígi.
5Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu * héldu fram saman.
6Óðara en þeir sáu * urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu.
7Felmtur greip þá samstundis * angist sem jóðsjúka konu.
8Með austanvindinum brýtur þú Tarsis–knörru.
9Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna * í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela]
10Guð, vér ígrundum elsku * þína inni í musteri þínu.
11Eins og nafn þitt, Guð * svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis.
12Síonfjall gleðst * Júdadætur fagna vegna dóma þinna.
13Kringið um Síon * gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.
14Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar * til þess að þér getið sagt komandi kynslóð,
15að slíkur sé Drottinn * Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.
Stuttur ritningarlestur
Heb 2, 9b-10Vér sjáum, að Jesús er krýndur vegsemd og heiðri vegna dauðans sem hann þoldi. Af Guðs náð skyldi hann deyja fyrir alla. Allt er til vegna Guðs og fyrir Guð. Því varð hann, er hann leiðir marga syni til dýrðar, að fullkomna með þjáningum þann, er leiðir þá til hjálpræðis.
Stutt svarvers
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Og frá illum tíðindum.
Úr snöru fuglarans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Jesús sagði við æðstuprestana og mannfjölda Gyðinganna: Sá sem er af Guði, heyrir Guðs orð. Þér heyrið ekki, vegna þess að þér eruð ekki af Guði.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Kristur Drottinn kom á meðal vor sem ljós heimsins til að vér mættum ganga í ljósi hans en ekki í myrkri dauðans. Lofum hann og hrópum til hans:Lát orð þitt vera ljósið sem leiðir oss.Guð miskunnarinnar, hjálpa oss að vaxa á hverjum degi til að vera lík þér,til að vér sem syndguðum í Adam getum risið upp aftur í Kristi.Lát orð þitt vera ljósið sem leiðir oss,til að vér megum lifa í sannleika og vaxa ávallt í kærleika þínum.Kenndu oss að vera trúföst við að leita almannaheilla fyrir þína sök,til að ljós þitt megi skína á alla fjölskyldu mannkyns eftir leiðum Kirkju þinnar.Snertu hjörtu vor til að þau leiti æ meir vináttu við þig,og bæti fyrir syndir vorar gegn speki þinni og gæsku.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn, liðsinn þeim sem til þín biðja og varðveit mildilega þá sem binda traust sitt við miskunnsemi þína, svo að hreinsaðir af flekkun syndanna lifi þeir áfram heilögu lífi og séu staðfestir sem erfingjar fyrirheita þinna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. JÓSEFS, BRÚÐGUMA SÆLLAR MARÍU MEYJAR
Guð, á undursamlegan hátt leiddir þú Kirkju þína með hinum sæla biskupi Kýril svo að hún öðlaðist hina dýpstu leyndardóma hjálpræðisins. Gef oss fyrir árnað hans að þekkja svo Son þinn að vér höfum líf í ríkum mæli. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Nú blundar fold í blíðri ró,á brott er dagsins stríð,og líður yfir land og sjóhin ljúfa næturtíð.Allt er svo kyrrt, svo undurrótt,um alheims víðan hring.Ver og í brjósti, hjarta, hljótt,og himni kvöldljóð syng.Þeim fyrirgef, er gaf þér sárog gjör þig skildi ei hér –þú ef til vill í nótt ert nárog næstu' ei dagsbrún sér.Og yfir hverja óvild breið,til annars sem þú ber,til sömu himna liggur leið,þótt leiðir skildi hér.Þá mæða sálar hverfur hver,svo hvílst þú getur rótt,og sjálfur Drottinn sendir þér,er sefur, góða nótt. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Jakob var faðir Jósefs, manns Maríu, en hún ól Jesú, sem kallast Kristur.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Jakob var faðir Jósefs, manns Maríu, en hún ól Jesú, sem kallast Kristur.
Sálmur 146
Andstef · Engillinn Gabríel var sendur frá Guði til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret, til meyjar, er var föstnuð manni, sem Jósef hét.
1Hallelúja. Lofa þú Drottin * sála mín!
2Ég vil lofa Drottin meðan lifi * lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.
3Treystið eigi tignarmennum * mönnum sem enga hjálp geta veitt.
4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu * á þeim degi verða áform þeirra að engu.
5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar * sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,
6hann sem skapað hefur himin og jörð * hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,
7sem rekur réttar kúgaðra og * veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir bandingja,
8Drottinn opnar augu blindra * Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.
9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa * en óguðlega lætur hann fara villa vegar.
10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn * Síon, frá kyni til kyns. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Engillinn Gabríel var sendur frá Guði til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret, til meyjar, er var föstnuð manni, sem Jósef hét.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · María, móðir Jesú, var föstnuð Jósef, en áður en þau komu saman, reyndist hún þunguð af Heilögum Anda.
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · María, móðir Jesú, var föstnuð Jósef, en áður en þau komu saman, reyndist hún þunguð af Heilögum Anda.
Stuttur ritningarlestur
Kól 3, 23-24Hvað sem þér gjörið, þá vinnið af heilum huga, eins og Drottinn ætti í hlut, en ekki menn. Þér vitið og sjálfir, að Drottinn mun veita yður arfleifðina að launum. Þér þjónið Drottni Kristi.
Stutt svarvers
Réttlátur maður mun blómgast * líkt og liljan.
Réttlátur maður mun blómgast * líkt og liljan.
Hann mun gróa í forgörðum Guðs vors að eilífu,
líkt og liljan.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Réttlátur maður mun blómgast * líkt og liljan.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Þetta er sá trúi og hyggni ráðsmaður sem Drottinn setur yfir hjú sín.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, almáttugi Guð, gef að Kirkja þín varðveiti stöðugt og fullkomni fyrir árnað hans leyndardóma hins mannlega hjálpræðis, sem þú fólst upphaflega hinum sæla Jósef að gæta af trúmennsku. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. JÓSEFS, BRÚÐGUMA SÆLLAR MARÍU MEYJAR
Vér biðjum, almáttugi Guð, gef að Kirkja þín varðveiti stöðugt og fullkomni fyrir árnað hans leyndardóma hins mannlega hjálpræðis, sem þú fólst upphaflega hinum sæla Jósef að gæta af trúmennsku. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007