Fimmtudagur í 2. viku langaföstu
Virkur dagur á lönguföstu.
Langafasta · Vika 2Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Jeremía 17:5-10
- Davíðssálmur
- Sálmur 1:1-2, 3, 4 og 6
- Guðspjall
- Lúkasarguðspjall 16:19-31
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ó, Jesús, líkn og lífið mitt,þú lífið gafst í dauða þitt,til þess að deyða dauða minn,í deyð til lífs því geng ég inn.Þú gráta hlaust, svo gleddist ég,þú gekkst hinn þunga kvalaveg,svo ævi minnar efsta leiðmér yrði heimför sæl og greið.Þú krónu þyrna krýndur varst,af kærleiks nægð þú hana barst,svo djásn ég megi dýrlegt fá,ó, Drottinn minn, þér sjálfum hjá.Þú barst þinn eiginn kvalakross,frá kvölum þegar leystir oss,svo krossburð minn í heimi hérþví hægri létir verða mér.Með hverju get ég þakkað þér?Við þig um allt í skuld ég er.Þú gafst mér lífið góða þitt,ég gef þér hjartað veika mitt. Amen.
Sálmur 80
Andstef · Tak á mætti þínum, Drottinn, og kom oss til hjálpar.
1Til söngstjórans. Liljulag. Asafs–vitnisburður. Sálmur.
2Hirðir Ísraels, hlýð á, þú sem leiddir Jósef eins og hjörð * þú sem ríkir uppi yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð.
3Tak á mætti þínum frammi fyrir Efraím * Benjamín og Manasse og kom oss til hjálpar!
4Guð, snú oss til þín aftur og lát ásjónu þína lýsa * að vér megum frelsast.
5Drottinn, Guð hersveitanna * hversu lengi ætlar þú að vera reiður þrátt fyrir bænir lýðs þíns?
6Þú hefur gefið þeim tárabrauð að eta * og fært þeim gnægð tára að drekka.
7Þú hefur gjört oss að þrætuefni nágranna vorra * og óvinir vorir gjöra gys að oss.
8Guð hersveitanna leið oss aftur til þín og lát ásjónu þína lýsa * að vér megum frelsast.
9Þú kipptir upp vínvið úr Egyptalandi * stökktir burt þjóðum, en gróðursettir hann,
10þú rýmdir til fyrir honum * hann festi rætur og fyllti landið.
11Fjöllin huldust í skugga hans * og sedrustré Guðs af greinum hans.
12Hann breiddi út álmur sínar til * hafsins og teinunga sína til Fljótsins.
13Hví hefur þú brotið niður múrveggina um hann * svo að allir vegfarendur tína berin?
14Skógargeltirnir naga hann * og öll dýr merkurinnar bíta hann.
15Guð hersveitanna, æ, snú þú aftur * lít niður af himni og sjá og vitja vínviðar þessa
16og varðveit það sem hægri hönd þín hefur plantað * og son þann, er þú hefur styrkan gjört þér til handa.
17Hann er brenndur í eldi og upphöggvinn * fyrir ógnun auglitis þíns farast þeir.
18Lát hönd þína hvíla yfir manninum við þína hægri hönd * yfir mannsins barni, er þú hefur styrkan gjört þér til handa,
19þá skulum vér eigi víkja frá þér. Viðhald lífi voru * þá skulum vér ákalla nafn þitt.
20Drottinn, Guð hersveitanna, snú oss til þín aftur * lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Tak á mætti þínum, Drottinn, og kom oss til hjálpar.
Sálmur — Jes 12, 1-6 — Gleði hinnar endurleystu þjóðar
Andstef · Dásemdarverk hefur Drottinn gjört. Kunngjörið þau um alla jörðina.
1Á þeim degi skaltu segja: „Ég vegsama þig, Drottinn, því þótt þú værir mér reiður * þá er þó horfin reiði þín og þú huggaðir mig.
2Sjá, Guð er mitt hjálpræði, ég er öruggur og óttast eigi * því að Drottinn Guð er minn styrkur og minn lofsöngur, hann er orðinn mér hjálpræði.“
3Þér munuð með fögnuði * vatni ausa úr lindum hjálpræðisins.
4Og á þeim degi munuð þér segja: „Lofið Drottin * ákallið nafn hans. Gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna, hafið í minnum, að háleitt er nafn hans.
5Lofsyngið Drottni, því að dásemdarverk hefur hann * gjört. Þetta skal kunnugt verða um alla jörðina.
6Lát óma gleðihljóm og kveða við fagnaðaróp, þú sem býr á Síon * því að mikill er Hinn heilagi í Ísrael meðal þín.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Dásemdarverk hefur Drottinn gjört. Kunngjörið þau um alla jörðina.
Sálmur 81
Andstef · Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum.
1Til söngstjórans. Á gittít. Asafs–sálmur.
2Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum * látið gleðióp gjalla Guði Jakobs.
3Hefjið lofsöng og berjið bumbur * knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur.
4Þeytið lúðurinn á tunglkomudögum * við tunglfylling á hátíðisdegi vorum.
5Því að þetta eru lög fyrir Ísrael * boðorð Jakobs Guðs.
6Hann gjörði það að reglu í Jósef * þá er hann fór út í móti Egyptalandi. Ég heyri mál, sem ég þekki eigi:
7„Ég hefi losað herðar hans við byrðina * hendur hans eru sloppnar við burðarkörfuna.
8Þú kallaðir í neyðinni, og ég frelsaði þig * ég bænheyrði þig í þrumuskýi, reyndi þig hjá Meríbavötnum. [Sela]
9Heyr, lýður minn, að ég megi áminna þig * ó, að þú, Ísrael, vildir heyra mig!
10Enginn annar guð má vera meðal þín * og engan útlendan guð mátt þú tilbiðja.
11Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi * opna munn þinn, að ég megi seðja þig.
12En lýður minn heyrði eigi raust mína * og Ísrael var mér eigi auðsveipur.
13Þá sleppti ég þeim í þrjósku hjartna þeirra * þeir fengu að ganga eftir eigin geðþótta.
14Ó, að lýður minn vildi heyra mig * Ísrael ganga á mínum vegum,
15þá skyldi ég skjótt lægja óvini þeirra * og snúa hendi minni gegn fjendum þeirra.
16Hatursmenn Drottins skyldu hræsna fyrir honum * og ógæfutími þeirra vara að eilífu.
17Ég skyldi gefa þér hið kjarnbesta hveiti að * eta og seðja þig á hunangi úr klettunum.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. 1 Kon 8, 51-53aDrottinn, vér erum þinn lýður og þín eign. Lát opin vera augu þín fyrir grátbeiðni þjóns þíns og grátbeiðni lýðs þíns Ísraels. Bænheyr oss, hvenær sem vér biðjum þig því að þú hefir skilið oss frá öllum þjóðum jarðarinnar þér til eignar.
Stutt svarvers
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Og frá illum tíðindum.
Úr snöru fuglarans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Minnstu þess, barn, að þú hlaust þín gæði, meðan þú lifðir, og Lasarus böl á sama hátt.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Elskuðu bræður (og systur), Guð hefur opinberað sig í Kristi. Lofum gæsku hans og biðjum hann af öllu hjarta:Minnstu vor, Drottinn, því vér erum börn þín.Kenndu oss að leita enn dýpra inn í leyndardóm Kirkjunnar,að hún megi vera árangursrík fyrir oss og heiminn sem sakramenti hjálpræðis.Þú sem unnir mannkyninu, blás oss í brjóst verk til mannlegra framfara,þar sem vér breiðum út ríki þitt í öllu því sem vér gjörum.Megi hjörtu vor þyrsta eftir Kristi,uppsprettu hins lifandi vatns.Fyrirgef oss syndir vorar,og bein skrefum vorum á leið réttlætis og hreinleika.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, viðreisnarafl og ástvinur sakleysisins, snú hjörtum þjóna þinna til þín. Auðsýn oss eldmóð hins Heilaga Anda, svo að vér séum stöðug í trúnni og öflug í verkum vorum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Jesús Kristur, lífsins ljómi,leysti oss frá sekt og dómi,þoldi háðung, þraut og kross,það var gjaldið hans til lausnar oss.Að vér sjá og muna megummiskunn þá og líf hans eigum,býr hann oss sitt borð og erbrauði úr og kaleik sjálfur hér.Komum til hans, krjúpum niður,Kristur er vort líf og friður,alla kallar elskan hans,athvarf, líkn og frelsi syndugs manns.Lofum hann, sem heiminn leysti,hjartað játi, elski, treystiföðurnáð, sem frelsar ossfyrir Jesú heilagt blóð og kross.Kristur mettar, Kristur svalar,kærleiksríkur við oss talar,hverjum þeim, sem byrði ber,býður hann að þiggja frið hjá sér. Amen.
Sálmur 72 I
Andstef · Ég gjöri þig að ljósi fyrir þjóðirnar, svo að þú sért mitt hjálpræði til endimarka jarðarinnar.
1Guð, sel konungi í hendur * dóma þína og konungssyni réttlæti þitt,
2að hann dæmi lýð þinn með * réttvísi og þína þjáðu með sanngirni.
3Fjöllin beri lýðnum * frið og hálsarnir réttlæti.
4Hann láti hina þjáðu meðal lýðsins ná rétti sínum * hann hjálpi hinum snauðu og kremji kúgarann.
5Þá mun hann lifa meðan sólin skín og tunglið ber birtu * frá kyni til kyns.
6Hann mun falla sem regn á slægjuland * sem regnskúrir, er vökva landið.
7Um hans daga skal réttlætið blómgast og gnóttir friðar * uns tunglið er eigi framar til.
8Og hann skal ríkja frá hafi til hafs * frá Fljótinu til endimarka jarðar.
9Fjandmenn hans skulu beygja kné fyrir * honum og óvinir hans sleikja duftið.
10Konungarnir frá Tarsis og eylöndunum skulu koma með gjafir * konungarnir frá Saba og Seba skulu færa skatt.
11Og allir konungar skulu lúta honum * allar þjóðir þjóna honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég gjöri þig að ljósi fyrir þjóðirnar, svo að þú sért mitt hjálpræði til endimarka jarðarinnar.
Sálmur 72 II
Andstef · Drottinn frelsar börn hins snauða, frá ofbeldi bjargar hann sálum þeirra.
12Hann bjargar hinum snauða, er hrópar á hjálp * og hinum þjáða, er enginn liðsinnir.
13Hann aumkast yfir bágstadda og snauða * og fátækum sálum hjálpar hann.
14Frá ofbeldi og ofríki leysir hann sálir þeirra * og blóð þeirra er dýrmætt í augum hans.
15Hann mun lifa og menn munu gefa honum Saba * gull, menn munu sífellt biðja fyrir honum, blessa hann liðlangan daginn.
16Gnóttir korns munu vera í landinu, á fjallatindunum, í gróðri þess mun þjóta eins og í Líbanon * og menn skulu spretta upp í borgunum eins og gras úr jörðu.
17Nafn hans mun vara að eilífu * meðan sólin skín mun nafn hans gróa. Og með honum skulu allar ættkvíslir jarðarinnar óska sér blessunar, allar þjóðir munu hann sælan segja.
18Lofaður sé Drottinn, Guð * Ísraels Guð, sem einn gjörir furðuverk,
19og lofað sé hans dýrlega nafn um eilífð * og öll jörðin fyllist dýrð hans. Amen, amen.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn frelsar börn hins snauða, frá ofbeldi bjargar hann sálum þeirra.
Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs
Andstef · Nú er komið hjálpræðið og ríki Guðs vors.
17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.
18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.
10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.
11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.
12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Nú er komið hjálpræðið og ríki Guðs vors.
Stuttur ritningarlestur
Jk 4, 7-8. 10Gefið yður Guði á vald, standið gegn djöflinum, og þá mun hann flýja yður. Nálægið yður Guði, og þá mun hann nálgast yður. Hreinsið hendur yðar, þér syndarar, og gjörið hjörtun flekklaus, þér tvílyndu. Auðmýkið yður fyrir Drottni og hann mun upphefja yður.
Stutt svarvers
Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.
Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.
Lækna sál mína, því að ég hef syndgað gegn þér.
Miskunna þú mér.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Ríki maðurinn sem hafði neitað Lasarusi um brauðmola, grátbað um dropa af vatni.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, viðreisnarafl og ástvinur sakleysisins, snú hjörtum þjóna þinna til þín. Auðsýn oss eldmóð hins Heilaga Anda, svo að vér séum stöðug í trúnni og öflug í verkum vorum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.
Sálmur 16
Andstef · Líkami minn hvílist í friði.
1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.
2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“
3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.
4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.
5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.
6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.
7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.
8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.
9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,
10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.
11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Líkami minn hvílist í friði.
Stuttur ritningarlestur
1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007