Saltarinn 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 1

Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hóp háðgjarnra,

heldur hefir yndi af lögmáli Drottins og hugleiðir lögmál hans dag og nótt.

Hann er sem tré, gróðursett hjá vatnslækjum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma, og blöð þess visna ekki; og alt, er hann gjörir, lánast honum.

Svo fer eigi hinum óguðlega, heldur sem sáðum, er vindur feykir.

Þess vegna munu hinir óguðlegu eigi standast í dóminum og syndugir eigi í söfnuði réttlátra.

Því að Drottinn þekkir veg réttlátra, en vegur óguðlegra endar í vegleysu.