Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Hví geisa heiðingjarnir og hví hyggja þjóðirnar á fánýt ráð?
Konungar jarðarinnar ganga fram og höfðingjarnir bera ráð sín saman gegn Drottni og hans smurða.
»Vér skulum brjóta sundur fjötra þeirra, varpa af oss viðjum þeirra«.
Hann, sem situr á himni, hlær; Drottinn gjörir gys að þeim.
Því næst talar hann til þeirra í reiði sinni, skelfir þá í bræði sinni:
»Eg hefi þó skipað konung minn á Zíon, fjallið mitt helga«.
Eg vil kunngjöra það, sem ákveðið er: Drottinn sagði við mig: Þú ert sonur minn, eg gat þig í dag.
Bið þú mig, þá skal eg gefa þér heiðingjana að erfð og endimörk jarðar að óðali.
Þú skalt mola þá með járnsprota, mölva þá sem leirsmiðs ker.
Verið því hygnir, þér konungar; látið yður segjast, þér dómarar á jörðu.
Þjónið Drottni með ótta og fagnið með lotningu.
Kyssið soninn, að hann reiðist eigi, og vegur yðar endi í vegleysu; því að skjótt bálast upp reiði hans; sæll er hver sá, er leitar hælis hjá honum.