Saltarinn 3Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 3

Sálmur Davíðs, þá er hann flýði fyrir Absalóm syni sínum.

Drottinn, hversu margir eru óvinir mínir, margir þeir er rísa upp í móti mér.

Margir segja um mig: Hann fær enga hjálp hjá Guði! Sela.

En þú, Drottinn, ert samt hlífiskjöldur minn — sæmd mín og sá, er lætur mig bera höfuð mitt hátt.

Þá er eg hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga. Sela.

Eg lagðist til hvíldar og sofnaði; eg vaknaði aftur, því að Drottinn hjálpar mér.

Eg óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar.

Rís þú upp, Drottinn; hjálpa mér, Guð minn; því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur hinna óguðlegu.

Hjá Drottni er hjálpin; blessun þín komi yfir lýð þinn! Sela.