Saltarinn 4Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 4

Til helgisöngs. Með strengjaleik. Davíðs-sálmur.

Svara mér, er eg hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér krepti, rýmkaðir þú um mig; ver mér náðugur og heyr bæn mína.

Þér menn! hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu lengi ætlið þér að elska hégóma og sækjast eftir lygi? Sela.

Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, að Drottinn heyrir, er eg hrópa til hans.

Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um í hvílum yðar og verið hljóðir. Sela.

Færið réttar fórnir og treystið Drottinn.

Margir segja: Hver lætur oss hamingju líta? Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði, en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

Í friði legst eg til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.