Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Með hljóðpípu. Davíðs-sálmur.
Heyr orð mín, Drottinn, veit eftirtekt andvörpum mínum!
Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn, því að til þín bið eg.
Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg eg mál mitt fyrir þig og horfi og horfi.
Því að þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki; hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.
Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér; þú hatar alla illgjörðamenn.
Þú tortímir þeim, sem lygar mæla; á blóðvörgum og svikurum hefir Drottinn andstygð.
En eg fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína, fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í þínum ótta.
Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir fjandmanna minna; gjör sléttan veg þinn fyrir mér.
Því að einlægni er ekki til í munni þeirra; hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.
Dæm þá seka, Guð, falli þeir sakir ráðagjörða sinna; hrind þeim burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.
Þá munu allir þeir gleðjast, er leita hælis hjá þér, fagna að eilífu, þar sem þú verndar þá, og þeir kætast yfir þér, er elska nafn þitt.
Því að þú, Drottinn, blessar hina réttlátu, hlífir þeim með náð þinni eins og með skildi.