Saltarinn 6Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 6

Til helgisöngs. Með strengjaleik. Djúpraddað. Davíðs-sálmur.

Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og hirt mig ekki í heift þinni.

Líkna mér, Drottinn, því að eg örmagnast, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast,

og sál mín er mjög óttaslegin, en þú, ó Drottinn — hversu lengi?

Snú þú aftur, Drottinn; frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir elsku þinnar.

Því að enginn minnist þín í dánarheimum; hver skyldi lofa þig hjá Helju?

Eg er þreyttur af andvörpum mínum; eg lauga rekkju mína hverja nótt, læt hvílu mína flóa í tárum.

Augu mín eru döpruð af harmi, orðin sljó sakir allra fjandmanna minna.

Farið frá mér, allir illgjörðamenn, því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína.

Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína; Drottinn tekur á móti bæn minni.

Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, snúa sneyptir burt alt í einu.