Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-sálmur, er hann kvað fyrir Drottni sakir Kúsh Benjamíníta.
Drottinn, Guð minn, hjá þér leita eg hælis; hjálpa mér undan öllum ofsækjendum mínum og bjarga mér,
svo að þeir rífi mig ekki í sundur eins og ljón, tæti mig í sundur og enginn bjargi mér.
Drottinn, Guð minn, hafi eg gjört þetta, sé ranglæti í höndum mínum,
hafi eg ilt gjört þeim, er lifðu í friði við mig, eða gjört fjandmönnum mínum mein að ástæðulausu,
þá elti mig óvinur minn og nái mér, troði líf mitt til jarðar og varpi sæmd minni í duftið. Sela.
TRís þú upp, Drottinn, í reiði þinni, hef þig gegn ofsa fjandmanna minna og vakna mér tl hjálpar, þú sem hefir fyrirskipað réttan dóm.
Söfnuður þjóðanna umkringi þig, og tak þú sæti uppi yfir honum á hæðum.
Þú Drottinn, sem dæmir þjóðirnar, lát mig ná rétti mínum, Drottinn, samkvæmt réttlæti mínu og ráðvendni þeirri, er Í mér er.
Fát endi á verða ilsku óguðlegra, en styrk hina réttlátu, þú, sem rannsakar hjörtun og nýrun, réttláti Guð!
Guð heldur skildi fyrir mér, hann sem hjálpar hinum hreinhjörtuðu.
Guð er réttlátur dómari og Guð, sem reiðist dag hvern.
Vissulega hvetur hinn óguðlegi aftur sverð sitt, bendir boga sinn og leggur til hæfis,
en sjálfum sér hefir hann búið hin banvænu vopn, skotið brennandi örvum.
Já, hann fæðir misverka; hann var þungaður af ranglæti, en elur tál.
Hann gróf gröf og gjörði hana djúpa, en sjálfur fellur hann í gryfjuna, er hann gjörði.
Ranglæti hans kemur sjálfum honum í koll, og ofbeldi hans fellur í höfuð sjálfum honum.
Eg vil lofa Drottin fyrir réttlæti hans, og lofsyngja nafni Drottins hins hæsta.