Saltarinn 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 8

Til helgisöngs. Með Gat-lagi. Davíðs-sálmur.

Drottinn, Drottinn vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina, þú sem breiðir ljóma þinn yfir himininn.

Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi, sakir fjandmanna þinna, til þess að þagga niður í óvinum þínum og fjendum.

Þá er eg horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað,

hvað er þá maðurinn þess að þú minnist hans og mannsins barn að þú vitjir þess?

Og þó lézt þú hann lítið á vanta við Guð; með sæmd og heiðri krýndir þú hann.

Þú lézt hann ríkja yfir handaverkum þínum; alt lagðir þú að fótum hans:

sauðfénað allan og uxa, og auk þess dýr merkurinnar,

fugla loftsins og fiska hafsins, alt það er fer hafsins vegu.

Drottinn, Drottinn vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina.