Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Lag: Að deyja fyrir soninn. Daviðs-sálmur.
Eg vil lofa Drottin af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum.
Eg vil gleðjast og kætast yfir þér, lofsyngja nafni þínu, þú hinn hæsti,
af því að óvinir mínir hörfuðu undan, hrösuðu og fórust fyrir augliti þínu.
Því að þú hefir látið mig ná rétti mínum og flutt mál mitt, sezt í hásætið sem réttlátur dómari.
Þú hefir hastað á heiðingjana, tortímt hinum óguðlegu, afmáð nafn þeirra um aldur og æfi.
Óvinirnir eru liðnir undir lok — rústir að eilífu — og borgirnar hefir þú brotið, minning þeirra er horfin.
Drottinn ríkir að eilífu; hann hefir reist hásæti sitt til dóms.
Hann dæmir heiminn með réttvísi, heldur réttlátan dóm yfir þjóðunum.
Og Drottinn er vígi orðinn fyrir þá, er kúgun sæta, vígi á neyðartímum.
Þeir, er þekkja nafn þitt, treysta þér, því að þú, Drottinn, yfirgefur eigi þá, er þín leita.
Lofsyngið Drottni, þeim er býr á Zion, gjörið stórvirki hans kunn meðal þjóðanna.
Því að hann, sem blóðs hefnir, hefir minst þeirra; hann hefir eigi gleymt hrópi hinna hrjáðu:
Líkna mér, Drottinn, sjá þú eymd mína, er hatursmenn mínir baka mér, þú sem lyftir mér upp frá hliðum dauðans,
að eg megi segja frá öllum lofstír þínum, fagna yfir hjálp þinni í hliðum Zíon-dóttur.
Heiðingjarnir eru fallnir í gryfju þá, er þeir gjörðu; fætur þeirra festust í neti því, er þeir lögðu leynt.
Drottinn hefir augljóst sig; hann hefir háð dóm; hinn óguðlegi festist í því, er hendur hans höfðu gjört. Strengjaleikur. Sela.
Hinir óguðlegu hrapa til heljar, allir heiðingjar, er gleyma Guði.;
Því að aumingjanum verður eigi ávalt gleymt; von hinna voluðu bregst eigi sífett.
Rís þú upp, Drottinn! Lát eigi dauðlega menn verða yfirsterkari; lát heiðingjana hljóta dóm fyrir augliti þínu.
Skjót þeim skelk í bringu, Drottinn! Lát heiðingjana komast að raun um, að þeir eru dauðlegir menn. Sela.