Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Hví stendur þú fjarri, Drottinn, byrgir augu þín á neyðartímum?
Hinn óguðlegi ofsækir hinn volaða í hroka sínum; þeir flækjast í vélum þeim, er þeir hafa upp hugsað.
Því að hinn óguðlegi lofar Guð fyrir það, er sála hans girnist, og hinn ásælni prísar Drottinn, sem hann fyrirlítur.
Hinn óguðlegi segir í drambsemi sinni: »Hann hegnir eigi!« »Enginn Guð!« — það eru allar hugsanir hans.
Fyrirtæki hans hepnast ætíð, dómar þínir fara hátt yfir höfði hans; alla fjandmenn sína kúgar hann.
Hann segir í hjarta sínu: Eg verð eigi valtur á fótum; frá kyni til kyns mun eg eigi í ógæfu rata.
Munnur hans er fullur af formælingum, svikum og ofbeldi; undir tungu hans býr ilska og ranglæti.
Hann situr í launsátri í þorpunum, í skúmaskotinu drepur hann hinn saklausa; augu hans skima eftir hinum bágstöddu.
Hann gjörir fyrirsát í fylgsninu, eins og ljón í skógarrunni; hann gjörir fyrirsát, til þess að ná hinum volaða; hann nær hinum volaða í snöru sína, í net sitt.
Kraminn hnígur hann niður; hinir bágstöddu falla fyrir klóm hans.
Hann segir í hjarta sínu: Guð gleymir því; hann hefir hulið auglit sitt, sér það ekki að eilífu.
Rís þú upp, Drottinn! Lyft þú upp hendi þinni, Guð! Gleym eigi hinum voluðu.
Hvers vegna á hinn óguðlegi að sýna Guði fyrirlitningu, segja í hjarta sínu: Þú hegnir eigi?
Þú hefir séð það, því að þú gefur gaum að mæðu og böli, til þess að taka það í hönd þína. Hinn bágstaddi felur þér það; þú ert hjálpari föðurlausra.
Brjót þú armlegg hins óguðlega, og er þú leitar að guðleysi hins vonda, finnur þú það eigi framar.
Drottinn er konungur um aldur og æfi; heiðingjum er útrýmt úr landi hans.
Þú hefir heyrt óskir hinna voluðu, Drottinn; þú eykur þeim hugrekki, hneigir eyra þitt,
til þess að láta hina föðurlausu og þá, er kúgun sæta, ná rétti sínum. Eigi skulu menn af moldu framar beita kúgun.