Saltarinn 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 11

Til helgisöngs. Davíðs-sálmur. Hjá Drottni leita eg hælis; hvernig getið þér sagt við mig: »Fljúg sem fugl til fjallanna!

Því að nú benda hinir óguðlegu bogann, leggja örvar sínar á streng, til þess að skjóta í myrkrinu á hina hreinhjörtuðu.

Þegar stoðirnar eru rifnar niður, hvað megna þá hinir réttlátu?«

Drottinn er í sinni heilögu höll; hásæti Drottins er á himnum, augu hans sjá, sjónir hans rannsaka mennina.

Drottinn rannsakar hinn réttláta, en hinn óguðlega og þann, er hefir mætur á ofríki, hatar hann.

Á óguðlega lætur hann rigna glóandi kolum, eldur og brennisteinn og brennheitur vindur er þeirra mældi bikar.

Því að Drottinn er réttlátur og hefir mætur á réttlætisverkum; hinir hreinskilnu fá að líta auglit hans.