Saltarinn 12Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 12

Til helgisöngs. Djúpraddað. Davíðs-sálmur.

Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir guðhræddu eru á brottu, hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum.

Lygi tala þeir hver við annan; með mjúkfláum vörum og tvískiftu hjarta tala þeir.

Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum, öllum tungum, er tala drambsamleg orð,

þeim er segja: Með tungunni munum vér sigra; varir vorar hjálpa oss; hver er drotnari yfir oss?

Sakir kúgunar hinna voluðu, sakir andvarpana aumingjanna vil eg nú rísa upp, segir Drottinn; eg vil veita hjálp þeim, er þrá hana.

Orð Drottins eru hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull.

Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur.

Hinir óguðlegu vaða alstaðar uppi, þegar hrakmenni komast til vegs meðal mannanna.