Saltarinn 13Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 13

Til helgisöngs. Davíðs-sálmur.

Hversu lengi, Drottinn! Ætlar þú að gleyma mér um eilífð? Hversu lengi ætlar þú að hylja auglit þitt fyrir mér?

Hversu lengi á eg að bera sút í sál, harm í hjarta dag frá degi? Hversu lengi á óvinur minn að hreykja sér upp yfir mig?

Lít til, svara mér, Drottinn, Guð minn, hýrga augu mín, að eg sofni ekki svefni dauðans,

að óvinur minn geti ekki sagt: Eg hefi borið af honum! að fjandmenn mínir geti ekki fagnað yfir því, að eg verði valtur á fótum.

Eg treysti á miskunn þína; hjarta mitt fagnar yfir hjálp þinni. Eg vil syngja fyrir Drottni, því að hann hefir gjört vel til mín.