Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Davíðs-sálmur. Heimskinginn segir í hjarta sínu: Enginn Guð! Ill og andstyggileg er breytni þeirra; enginn gjörir það, sem gott er.
Drottinn lítur af himni niður á mennina, til þess að sjá, hvort nokkur sé hygginn, nokkur, sem leiti Guðs.
Allir eru viknir af leið, allir spiltir; enginn gjörir það, sem gott er — ekki einn.
Skyldu þeir ekki fá að kenna á því, allir illgjörðamennirnir, þeir er eta lýð minn sem brauð væri, og ákalla eigi Drottinn?
Þá skulu þeir verða mjög óttaslegnir, því að Guð er með kynslóð réttlátra.
Þér megið láta ráð hinna hrjáðu til skammar verða, því að Drottinn er samt athvarf þeirra.
Ó að hjálpræði Ísraels komi frá Zíon! Þegar Drottinn snýr við hag lýðs síns, skal Jakob fagna, Ísrael gleðjast.