Saltarinn 15Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 15

Davíðs-sálmur. Drottinn, hver fær að gista í tjaldi þínu, hver fær að búa á fjallinu þínu helga?

Sá, er framgengur í sakleysi og iðkar réttlæti og talar sannleik af hjarta,

sá, er eigi talar róg með tungu sinni, eigi gjörir öðrum mein og eigi leggur náunga sínum svívirðing til;

sem fyrirlítur þá, er illa breyta, en heiðrar þá, er óttast Drottin, sá er sver sér í mein og bregður eigi af;

sá er eigi lánar fé sitt gegn vöxtum og eigi þiggur mútur gegn saklausum — sá, er þetta gjörir, mun eigi haggast um aldur.