Saltarinn 16Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 16

Davíðs-miktam. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita eg hælis.

Eg segi við Drottin: Þú ert Drottinn minn; eg á engin gæði nema þig.

Við þá heilögu, sem í landinu eru, breytir Drottinn dýrlega, á þeim hefir hann alla sína velþóknun.

Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð; eg vil eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

Drottinn er hlutskifti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.

Mér féllu að erfðahlut inndælir staðir, og arfleifð mín líkar mér vel.

Eg lofa Drottin, er mér hefir ráð gefið; jafnvel um nætur áminna nýrun mig.

Eg hefi Drottinn ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, verð eg eigi valtur á fótum.

Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst og líkami minn hviílist óhultur,

því að þú ofurselur Helju eigi sál mína; leyfir eigi að þinn guðhræddi sjái gröfina.

Kunnan gjörir þú mér veg lífsins; gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.