Saltarinn 17Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 17

Bæn Davíðs. Heyr, Drottinn, á réttvíst málefni, hlýð á hróp mitt! Ljá eyra bæn minni, er eg flyt með tállausum vörum!

Lát rétt minn út ganga frá augliti þínu, augu þín sjá rétt.

Þá er þú rannsakar hjarta mitt, prófar það um nætur, reynir mig, þá finnur þú engar illar hugsanir hjá mér, munnur minn heldur sér í skefjum.

Hvað sem aðrir gjöra, þá hefi eg eftir orði vara þinna forðast vegu ofbeldismannsins.

Skref mín fylgdu sporum þínum, mér skriðnaði ekki fótur.

Eg kalla á þig, því að þú svarar mér, ó Guð, hneig eyru þín til mín, hlýð á orð mín,

veit mér þína dásamlegu náð, þú sem hjálpar þeim, er leita hælis við þína hægri hönd fyrir ofsækjendunum.

Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna,

fyrir hinum óguðlegu, er sýna mér ofbeldi, fyrir gráðugum óvinum mínum, er kringja um mig.

Mörhjörtum sínum hafa þeir lokað, með munni sínum mæla þeir drambsamleg orð.

Hvar sem vér göngum umkringja þeir mig, þeir beina augum sínum að því að varpa mér til jarðar.

Hann líkist ljóni, er langar í bráð, og ungu ljóni, er liggur í felum.

Rís upp, Drottinn! far í móti honum og varpa honum niður, frelsa sál mína undan hinum óguðlegu með sverði þínu,

undan mönnunum með hendi þinni, Drottinn, undan mönnum heimsins, sem hafa hlutskifti sitt í lífinu og þú kviðfyllir gæðum þínum. Þeir eru ríkir að sonum og leifa börnum sínum nægtir sínar.

En eg mun fá að sjá auglit þitt sakir réttlætis míns, skoða mig saddan á mynd þinni, þá er eg vakna.