Basilíus mikli og Gregoríus frá Nasíans, biskupar og kirkjufræðarar
Minningardagur — kirkjan minnist dýrlings í messu dagsins.
Jólatíð · Vika 2Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Lesa meiraLestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- 1. Jóhannesarbréf 2:22-28
- Davíðssálmur
- Sálmur 98:1, 2-3ab, 3cd-4
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 1:19-28
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Í dag er heimi frelsi fætt,er fær vor mein og harma bættþað barnið þekkjum blessað vér,vor bróðir Jesús Kristur er.Og oss til merkis er það sagt:Í aumum reifum finnum lagtþað barn í jötu', er hefur heimí hendi sér og ljóssins geim.Því gleðjumst allir, góðir menn,og göngum þangað allir senn,þá jólagjöf, Guðs son, að sjá,er sauða hirðar gleðjast hjá.Æ, velkominn oss vertu þá,er vorar syndir tókst þig á.Oss, Jesús, kenn að þakka þér,að þínir bræður urðum vér.Ó, Guð, sem ráð á öllu átt,hví ertu kominn hér svo lágt,í tötrum lagður hart á hey,sem hefðir dýrri bústað ei?Þótt veröld öll sé víð og löng,sú vaggan er þér samt of þröngog þín ei verð, þótt væri' hún fullaf vegsemd þeirri', er skín sem gull.Svo hefur, Drottinn, þóknast þér,og þá vilt speki kenna mér,að heimsins auð og allt hans glysþú eigi virðir meira' en fis.Af hjarta' og tungu heilög dýrðsé Herrans Jesú föður skýrð.Heyr barna þinna bæn og þökk,og brjóstin, Guð, sjá glöð og klökk. Amen.
Sálmur 119, 145-152
Andstef · Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.
145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig * Drottinn, ég vil halda lög þín.
146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér * að ég megi varðveita reglur þínar.
147Ég er á ferli fyrir dögun * og hrópa og bíð orða þinna.
148Fyrr en vakan hefst eru augu mín * vökul til þess að íhuga orð þitt.
149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni * lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.
150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði * þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.
151Þú ert nálægur, Drottinn * og öll boð þín eru trúfesti.
152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar * að þú hefur grundvallað þær um eilífð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.
Sálmur — 2M 15, 1-4a. 8-13. 17-18 — Sigursöngur eftir gönguna gegnum Rauðahaf
Andstef · Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði.
1Þá söng Móse og Ísraelsmenn Drottins þennan lofsöng: Ég vil lofsyngja Drottni * því að hann hefur sig dýrlegan gjört, hestum og riddurum steypti hann niður í hafið.
2Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði. Hann er minn Guð * og ég vil vegsama hann, Guð föður míns, og ég vil tigna hann.
3Drottinn er stríðshetja * Drottinn er hans nafn.
4Vögnum Faraós og herliði hans varpaði hann í hafið * og hinir völdustu kappar hans drukknuðu í Hafinu rauða.
8Og fyrir blæstri nasa þinna hlóðust vötnin upp * rastirnar stóðu eins og veggur, öldurnar stirðnuðu mitt í hafinu.
9Óvinurinn sagði: „Ég skal elta þá, ég skal ná þeim, ég skal skipta herfangi * sál mín skal skeyta skapi sínu á þeim, ég skal bregða sverði mínu, hönd mín skal eyða þeim.“
10Þú blést með þínum anda, hafið huldi þá * þeir sukku sem blý niður í hin miklu vötn.
11Hver er sem þú, Drottinn, meðal guðanna? Hver er sem þú * dýrlegur að heilagleik, dásamlegur til lofsöngva, þú sem stórmerkin gjörir?
12Þú útréttir þína hægri hönd * jörðin svalg þá.
13Þú hefur leitt fólkið, sem þú frelsaðir, með miskunn þinni * þú fylgdir því með þínum krafti til þíns heilaga bústaðar.
17Þú leiddir þá inn og gróðursettir þá á fjalli arfleifðar þinnar, þeim stað, sem þú * Drottinn, hefur gjört að þínum bústað, þeim helgidóm, sem þínar hendur, Drottinn, hafa reist.
18Drottinn skal ríkja um * aldur og að eilífu!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði.
Sálmur 117
Andstef · Lofið Drottin, allar þjóðir.
1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,
2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofið Drottin, allar þjóðir.
Stuttur ritningarlestur
Jes 49, 8b-9aÉg gjöri þig að sáttmála fyrir lýðinn, til þess að reisa við landið, til þess að úthluta erfðahlutum, sem komnir eru í auðn, til þess að segja hinum fjötruðu: „Gangið út“, og þeim sem í myrkrunum eru: „Komið fram í dagsbirtuna“.
Stutt svarvers
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt.* Hallelúja, hallelúja.
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.
Fyrir augu þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Hjálparvana lá hann í jötu; dýrlegur ljómaði hann á himnum. Lítillækkaður bjó hann meðal manna; eilífur dvaldi hann hjá Föðurnum.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Beinum bænum vorum til Krists, hins himneska manns og hins nýja Adams, sem varð lífgandi andi:Drottinn, miskunna þú oss. (Eða: Kyrie, eleison.)Kristur, Réttlætissólin, þú opinberaðir dýrð þína í mannlegri náttúru vorri til að færa til fullkomnunar gamla sáttmálann,vér biðjum þig að úthella ljósi þínu yfir oss.Drottinn, miskunna þú oss. Eða: Kyrie, eleison.Kristur, þú varst dýrlegur gerður af englunum, boðaður af hirðunum, játaður og kunngjörður af Símeon og Önnu,gef að fagnaðareirindi þitt verði meðtekið af fyrirheitafólkinu.Drottinn, miskunna þú oss. Eða: Kýrie, eléison.Kristur, þegar þú fæddist, sungu englarnir dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu,vér biðjum þig að breiða frið þinn út um allan heim.Drottinn, miskunna þú oss. Eða: Kyrie, eleison.Kristur, sem hinn nýi Adam gafst þú hinum gamla manni nýtt líf og bjóst fyrir oss dvalarstað í ríki þínu,megi þeir sem ofurseldir eru hinu vonda fá hvatningu með því að vona á þig.Drottinn, miskunna þú oss. Eða: Kyrie, eleison.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn, vér biðjum, gef þjóð þinni bjargfast trúartraust, svo að þeir, sem játa að þinn eingetni Sonur sé eilífur með þér í dýrð þinni og sé í sannleika fæddur sem maður af Maríu mey, frelsist bæði frá þrautum þessa lífs og hljóti hina varanlegu gleði. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · BIRTING DROTTINS
Guð, þér þóknaðist að upplýsa Kirkju þína með fyrirmyndum og kenningum hinna sælu biskupa Basilíusar og Gregoríusar. Vér biðjum, veit að vér nemum sannleika þinn í auðmýkt og breytum eftir honum í trúföstum kærleika. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Lát opnast augu mín,minn ástvin himnum á,svo ástarundur þínmér auðnist skýrt að sjá:hið fríða foldarskraut,hinn fagra stjarnaherá loftsins ljómabrautog ljóssins dýrð hjá þér.Lát opnast eyru mín,minn ástafaðir kær,svo eilíf orðin þínég ávallt heyri skær:þíns lögmáls hvellan hljóm,þín heilög boð, ei ströng,þíns guðspjalls ástarómog engla helgan söng.Lát opnast munninn minn,svo mál hans, Drottinn kær,þitt vald og vísdóm þinnæ votti nær og fjær.Veit mér að mikla þig,á meðan æðar slá,já, lengur lát þú migþig lofa himnum á.Lát opnast harðlæst húsmíns hjarta, Drottinn minn,svo hýsi' eg hjartans fúsþar helgan anda þinn. Amen.
Sálmur 135 I
Andstef · Getinn af Föðurnum áður en morgunstjarnan skein eða tímarnir hófust, Drottinn Frelsari vor hefur birst á jörðu í dag.
1Hallelúja. Lofið nafn Drottins * lofið hann, þér þjónar Drottni,
2er standið í húsi Drottins * í forgörðum húss Guðs vors.
3Lofið Drottin, því að Drottinn er góður * leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.
4Því að Drottinn hefur útvalið sér Jakob * gert Ísrael að eign sinni.
5Já, ég veit * að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.
6Allt, sem Drottinn þóknast, það gjörir hann * á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum.
7Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar * gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.
8Hann laust frumburði Egyptalands * bæði menn og skepnur,
9sendi tákn og undur yfir Egyptaland * gegn Faraó og öllum þjónum hans.
10Hann laust margar þjóðir * og deyddi volduga konunga:
11Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan * og öll konungsríki í Kanaan,
12og gaf lönd þeirra að erfð * að erfð Ísrael, lýð sínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Getinn af Föðurnum áður en morgunstjarnan skein eða tímarnir hófust, Drottinn Frelsari vor hefur birst á jörðu í dag.
Sálmur 135 II
Andstef · Mikill er Drottinn vor Guð, sem er hafinn yfir alla aðra guði.
13Drottinn, nafn þitt varir að eilífu * minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns,
14því að Drottinn réttir hlut þjóðar * sinnar og aumkast yfir þjóna sína.
15Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull * handaverk manna.
16Þau hafa munn, en tala ekki * augu, en sjá ekki,
17þau hafa eyru, en heyra ekki * og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra.
18Eins og þau eru, verða smiðir þeirra * allir þeir, er á þau treysta.
19Ísraels ætt, lofið Drottin * Arons ætt, lofið Drottin!
20Leví ætt, lofið Drottin * þér sem óttist Drottin, lofið Drottin!
21Lofaður sé Drottinn frá Síon * hann sem býr í Jerúsalem! Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Mikill er Drottinn vor Guð, sem er hafinn yfir alla aðra guði.
Sálmur — 1 Tm 3, 16 — Leyndarðómur Krists og dýrð
Andstef · Stjarnan brann sem logi og vísaði veginn til Guðs, Konungs konunganna; vitringarnir sáu táknið og komu með gjafir sínar í lotningu fyrir sínum mikla konungi.
16Og víst er leyndardómur guðhræðslunnar mikill: Hann opinberaðist í holdi, var réttlættur í anda * birtist englum, var boðaður með þjóðum, var trúað í heimi, var hafinn upp í dýrð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Stjarnan brann sem logi og vísaði veginn til Guðs, Konungs konunganna; vitringarnir sáu táknið og komu með gjafir sínar í lotningu fyrir sínum mikla konungi.
Stuttur ritningarlestur
2 Tm 1, 9-10Guð hefur frelsað oss og kallað heilagri köllun, ekki eftir verkum vorum, heldur eftir eigin ákvörðun og náð, sem oss var gefin fyrir Krist Jesú frá eilífum tímum, en hefur nú birst við komu frelsara vors Krists Jesú. Hann afmáði dauðann, en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu.
Stutt svarvers
Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.
Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.
Allar þjóðir munu vegsama dýrð hans.
Menn af öllum kynþáttum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Vitringarnir sögðu þegar þeir sáu stjörnuna: Þetta hlýtur að tákna fæðingu mikils konungs. Förum og leitum að honum og leggjum fjársjóð vorn að fótum hans: Gull, reykelsi og myrru.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú sem á þessum degi opinberaðir þjóðunum eingetinn Son þinn með leiðarstjörnu, veit þú mildur að oss, sem þekkjum þig þegar fyrir trúna, auðnist að íhuga ásýnd hátignar þinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · BIRTING DROTTINS
Guð, þú sem á þessum degi opinberaðir þjóðunum eingetinn Son þinn með leiðarstjörnu, veit þú mildur að oss, sem þekkjum þig þegar fyrir trúna, auðnist að íhuga ásýnd hátignar þinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007