Dagatal

Hin Heilaga Fjölskylda, Jesús, María og Jósef

Hátíðisdagur — dagur sem kirkjan heldur sérstaklega upp á.

Jólatíð · Vika 2

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Hvað þýðir það

Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í sunnudagsmessunni

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Nóttin var sú ágæt ein,í allri veröld ljósið skein,það er nú heimsins þrautarmeinað þekkja' hann ei sem bæri.Í Betlehem var það barnið fætt,sem best hefur andar sárin grætt,svo hafa englar um það rættsem endurlausnarinn væri.Fjármenn hrepptu fögnuð þann,þeir fundu bæði Guð og mann,í lágan stall var lagður hann,þó lausnarinn heimsins væri.Lofið og dýrð á himnum hátthonum með englum syngjum þrátt,friður á jörðu og fengin sátt,fagni því menn sem bæri.Þér gjöri' eg ei rúm með grjót né tré,gjarnan læt ég hitt í té.vil ég mitt hjartað vaggan sé,vertu nú hér, minn kæri.Umbúð verður engin hérönnur en sú þú færðir mér,hreina trúna að höfði þérfyrir hægan koddann færi.Á þig breiðist elskan sæt,af öllum huga' eg syndir græt,fyrir iðran verður hún mjúk og mæt,miður en þér þó bæri. Amen.

Sálmur 63, 2-9

Andstef · Foreldrar Jesú ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni.

2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.

3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,

4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.

5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.

6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,

7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.

8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.

9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Foreldrar Jesú ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni.

Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin

Andstef · Sveinninn óx og styrktist, fylltur visku, og náð Guðs var yfir honum.

57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.

56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sveinninn óx og styrktist, fylltur visku, og náð Guðs var yfir honum.

Sálmur 149

Andstef · Faðir hans og móðir undruðust það, er sagt var um hann.

1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.

2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.

3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.

4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.

5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum

6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum

7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,

8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,

9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Faðir hans og móðir undruðust það, er sagt var um hann.

Stuttur ritningarlestur

5M 5, 16Heiðra föður þinn og móður þína, eins og Drottinn Guð þinn hefir boðið þér, svo að þú verðir langlífur og svo að þér vegni vel í því landi, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.

Stutt svarvers

Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.

Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.

Þú varst hlýðinn Maríu og Jósef.

Miskunna þú oss.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Faðir Jesú og móðir undruðust það, er sagt var um hann, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Vér skulum dýrka Son hins lifanda Guðs sem auðmýkti sig og gerðist sonur mannlegrar fjölskyldu og vér skulum hrópa hástöfum:Jesús, þú gerðist hlýðinn; helgaðu oss.Jesús, Föðurins eilífa Orð, þú gerðir sjálfan þig undirgefinn Maríu og Jósefi,kenn oss auðmýkt.Þú ert kennari vor og þín eigin móðir íhugaði í hjarta sér hvert einasta orð þitt og verk,gjör að vér veitum orði þínu eftirtekt og lát oss íhuga það í hjörtum sem eru hrein og góð.Kristur, af verki þínu var heimurinn gerður, en þú varst fús að láta kalla þig verkamannsson,kenn oss að starfa af iðjusemi.Jesús, í fjölskyldunni í Nasaret jókst speki þín, aldur og náð frammi fyrir Guði og mönnum,hjálpa oss að vaxa í öllum hlutum gagnvart þér, þú sem ert vort höfuð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, með heilagri fjölskyldu hefur þú fengið oss fagurt fordæmi, veit af mildi þinni að vér breytum eftir henni með dyggðum fjölskyldulífs og ástríki og njótum eilífðarlauna þess í gleði húss þíns. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Forðum í bænum Betlehemvar borinn sá sem ersonur Guðs, og sorg og þrautog syndir manna ber.Hlustið! Englar himnum áþeim Herra greina frásem lagður var í lágan stallen lýsir jörðu á.Hirðum sem vöktu heiðum áog hjarða gættu´ um nóttenglar gleði fluttu fregnum frelsun allri drótt.Hlustið! Englar himnum áþeim Herra greina frásem lagður var í lágan stallen lýsir jörðu á.Vitringum lýsti langan vegsú leiðarstjarna hreinsem ljóma heimi breyskum berog bætir hölda mein.Hlustið! Englar himnum áþeim Herra greina frásem lagður var í lágan stallen lýsir jörðu á. Amen.

Sálmur 122

Andstef · Eftir þrjá daga fundu þau sveininn Jesú í helgidóminum. Þar sat hann á meðal lærifeðranna, hlýddi á þá og spurði þá.

1Ég varð glaður, er menn sögðu við mig * „Göngum í hús Drottins.“

2Fætur vorir standa * í hliðum þínum, Jerúsalem.

3Jerúsalem, þú hin endurreista * borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,

4þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins – það er regla fyrir Ísrael * til þess að lofa nafn Drottins,

5því að þar standa dómarastólar * stólar fyrir Davíðs ætt.

6Biðjið Jerúsalem friðar * hljóti heill þeir, er elska þig.

7Friður sé kringum múra þína * heill í höllum þínum.

8Sakir bræðra minna og * vina óska ég þér friðar.

9Sakir húss Drottins, Guðs vors * vil ég leita þér hamingju.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Eftir þrjá daga fundu þau sveininn Jesú í helgidóminum. Þar sat hann á meðal lærifeðranna, hlýddi á þá og spurði þá.

Sálmur 127

Andstef · Jesús fór heim með þeim og kom til Nasaret og var þeim hlýðinn.

1Ef Drottinn verndar eigi borgina * vakir vörðurinn til ónýtis.

2Það er til ónýtis fyrir yður, þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar og etið brauð * sem aflað er með striti: Svo gefur hann ástvinum sínum í svefni!

3Sjá, synir eru gjöf frá Drottni * ávöxtur móðurkviðarins er umbun.

4Eins og örvar í hendi kappans * svo eru synir getnir í æsku.

5Sæll er sá maður, er fyllt hefur örvamæli sinn með þeim * þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Jesús fór heim með þeim og kom til Nasaret og var þeim hlýðinn.

Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara

Andstef · Og Jesús þroskaðist að visku og vexti, og náð hjá Guði og mönnum.

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.

4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,

10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Og Jesús þroskaðist að visku og vexti, og náð hjá Guði og mönnum.

Stuttur ritningarlestur

Fil 2, 6-7Jesús Kristur var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.

Stutt svarvers

Hann varð að líkjast bræðrum sínum á allan hátt * til að sýna fram á gnægð miskunnar sinnar.

Hann varð að líkjast bræðrum sínum á allan hátt * til að sýna fram á gnægð miskunnar sinnar.

Hann sást á jörðu og bjó meðal manna,

Til að sýna fram á gnægð miskunnar sinnar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Hann varð að líkjast bræðrum sínum á allan hátt * til að sýna fram á gnægð miskunnar sinnar.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Sveinninn Jesús óx og styrktist, fullur visku, og náð Guðs var yfir honum.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, með heilagri fjölskyldu hefur þú fengið oss fagurt fordæmi, veit af mildi þinni að vér breytum eftir henni með dyggðum fjölskyldulífs og ástríki og njótum eilífðarlauna þess í gleði húss þíns. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 91

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,

2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“

3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,

4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.

5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,

6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.

7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.

8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.

10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.

11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.

14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.

15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.

16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

Stuttur ritningarlestur

Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007