Fyrst þér því eruð uppvaktir með Kristi, þá keppist eftir því, sem er á hæðum, þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs.
Hugsið um það, sem á hæðum er, en ekki um það, sem á jörðunni er;
því að þér eruð dánir, og líf yðar er fólgið með Kristi í Guði.
Þegar Kristur, vort líf, opinberast, þá munuð þér og ásamt honum opinberast í dýrð.
Deyðið því limina, sem við jörðina eru bundnir, hórdóm, saurlifnað, losta, vonda fýsn og ágirnd, sem er skurðgoðadýrkun;
fyrir þessa hluti kemur reiði Guðs yfir börn óhlýðninnar,
og í þeim framgenguð þér einnig áður fyrri, þegar þér lifðuð í þeim.
En nú skuluð þér einnig afleggja það alt: reiði, bræði, vonsku, lastmæli, svívirðilegt tal af munni yðar.
Ljúgið ekki hver að öðrum, þér sem hafið afklæðst hinum gamla manni með gjörðum hans
og íklæðst hinum nýja, sem endurnýjaður er til þekkingar, samkvæmt þess mynd, sem hann hefir skapað,
þar sem ekki er grískur maður né Gyðingur, umskurn né yfirhúð, útlendingur, Skýti, þræll eða frjáls maður, heldur er Kristur alt og í öllum.
Íklæðist því eins og Guðs útvaldir, heilagir og elskaðir, hjartgróinni meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð, langlyndi,
umberandi hver annan og fyrirgefandi hver öðrum, ef einhver hefir sök á móti nokkurum; eins og Drottinn hefir fyrirgefið yður, svo skuluð þér og gjöra.
En íklæðist yfir alt þetta elskunni, sem er band algjörleikans,
og látið frið Krists ríkja í hjörtum yðar, sem þér og eruð kallaðir til í einum líkama; og verið þakklátir.
Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður með allri speki, þannig að þér fræðið og áminnið hver annan með sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóðum, sætlega syngjandi Guði lof í hjörtum yðar.
Og hvað sem þér svo gjörið í orði eða verki, þá gjörið alt í nafni Drottins Jesú, þakkandi Guði föður fyrir hann.
Þér konur, gjörið yður undirgefnar mönnum yðar, eins og vera ber í drotni.
Þér menn, elskið eiginkonur yðar og verið ekki beiskir við þær.
Þér börn, verið hlýðin foreldrum yðar í öllu, því að það er velþóknanlegt í drotni.
Þér feður, ertið ekki börn yðar, til þess að þau verði ekki ístöðulaus.
Þér þrælar, verið hlýðnir í öllu drotnum yðar eftir holdinu, ekki með augnaþjónustu, eins og þeir, sem mönnum vilja þóknast, heldur í einfaldleik hjartans, og óttist Drottin.
Hvað sem þér gjörið, þá vinnið af alhuga eins og fyrir Drottin, en ekki fyrir menn,
vitandi að þér munuð af drotni fá arfleifðina í endurgjald; þér þjónið drotni Kristi.
Því að sá, sem rangt gjörir, skal fá gjöld fyrir það, sem hann gjörði rangt, og ekki er manngreinarálit.