Þér drotnar, veitið þrælunum það, sem rétt er og sanngjarnt, vitandi að þér eigið og Drottin á himni.
Verið stöðugir í bæninni og árvakrir í henni með þakkargjörð,
og biðjið jafnframt einnig fyrir oss, að Guð opni fyrir oss dyr orðsins, til að boða leyndardóm Krists, fyrir hvers sakir eg og er nú bundinn,
til þess að eg megi auglýsa hann, eins og mér ber að tala.
Framgangið með speki gagnvart þeim, sem fyrir utan eru, og kaupið hinn hentuga tíma.
Ræða yðar sé ætíð ljúfleg og salti krydduð, til þess að þér vitið, hvernig þér eigið að svara sérhverjum.
Alt um mína hagi mun Týkíkus, hinn elskaði bróðir og trúi þjónn og samþjónn í drotni, láta yður vita.
Eg sendi hann til yðar, einmitt til þess að þér fáið að vita, hvernig oss líður, og til þess að hann huggi hjörtu yðar,
ásamt Onesímusi, hinum trúa og elskaða bróður, sem er einn af yður; þeir munu láta yður vilt alt, sem hér gjörist.
Yður heilsar Aristarkus, sambandingi minn, og Markús, frændi Barnabasar, sem þér hafið fengið boðorð um — ef hann kemur til yðar, þá takið á móti honum —
og Jesús, að viðurnefni Jústus; þeir eru af umskurninni og þeir einir eru samverkamenn mínir fyrir Guðs ríki, og hafa þeir verið mér til huggunar.
Yður heilsar Epafras, sem er einn af yður, þjónn Krists Jesú, sem jafnan berst fyrir yður í bænum sínum, til þess að þér megið standa stöðugir, fullkomnir og fullvissir í öllum vilja Guðs.
Því að þann vitnisburð gef eg honum, að hann hefir mikið erfiði fyrir yður og þeim, sem eru í Laódíkeu, og þeim, sem eru í Hierapólis.
Yður heilsar Lúkas, læknirinn elskaði, og Demas.
Heilsið þér bræðrunum í Laódíkeu og Nýmfasi og kirkjunni, sem er í húsi þeirra.
Og þegar búið er að lesa bréf þetta upp hjá yður, þá látið líka lesa það í söfnuði Laódíkeumanna, og lesið þér og Laódíkeubréfið.
Og segið Arkippusi: Gættu þjónustunnar, sem þú hefir tekið við í drotni, að þú veitir henni fullnustu.
Kveðjan er skrifuð með minni, Páls, eigin hendi. Minnist fjötra minna. Náð sé með yður.