Dagatal

Færsla Maríu meyjar í musterið

Minningardagur — kirkjan minnist dýrlings í messu dagsins.

Almennur kirkjutími · Vika 33

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Upp, skapað allt í heimi hér,að heiðra Guð, vorn Drottin,hið minnsta verk hans mikið er,um mátt hans allt ber vottinn.Þótt kóngar fylgdust allir aðmeð auð og veldi háu,þeir megnuðu' ei hið minnsta blaðað mynda' á blómi smáu.Hvað get ég sagt? Ó, málið mittei megnar, Guð, að lýsa,hve margt er ástarundur þitt,hve öflug stjórnin vísa.Ó, miklið Guð, þér menn á jörð,á málum óteljandi,ó, mikla Guð, þú hólpin hjörð,á himna dýrðarlandi. Amen.

Sálmur 119, 145-152

Andstef · Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.

145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig * Drottinn, ég vil halda lög þín.

146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér * að ég megi varðveita reglur þínar.

147Ég er á ferli fyrir dögun * og hrópa og bíð orða þinna.

148Fyrr en vakan hefst eru augu mín * vökul til þess að íhuga orð þitt.

149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni * lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.

150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði * þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.

151Þú ert nálægur, Drottinn * og öll boð þín eru trúfesti.

152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar * að þú hefur grundvallað þær um eilífð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.

Sálmur — 2M 15, 1-4a. 8-13. 17-18 — Sigursöngur eftir gönguna gegnum Rauðahaf

Andstef · Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði.

1Þá söng Móse og Ísraelsmenn Drottins þennan lofsöng: Ég vil lofsyngja Drottni * því að hann hefur sig dýrlegan gjört, hestum og riddurum steypti hann niður í hafið.

2Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði. Hann er minn Guð * og ég vil vegsama hann, Guð föður míns, og ég vil tigna hann.

3Drottinn er stríðshetja * Drottinn er hans nafn.

4Vögnum Faraós og herliði hans varpaði hann í hafið * og hinir völdustu kappar hans drukknuðu í Hafinu rauða.

8Og fyrir blæstri nasa þinna hlóðust vötnin upp * rastirnar stóðu eins og veggur, öldurnar stirðnuðu mitt í hafinu.

9Óvinurinn sagði: „Ég skal elta þá, ég skal ná þeim, ég skal skipta herfangi * sál mín skal skeyta skapi sínu á þeim, ég skal bregða sverði mínu, hönd mín skal eyða þeim.“

10Þú blést með þínum anda, hafið huldi þá * þeir sukku sem blý niður í hin miklu vötn.

11Hver er sem þú, Drottinn, meðal guðanna? Hver er sem þú * dýrlegur að heilagleik, dásamlegur til lofsöngva, þú sem stórmerkin gjörir?

12Þú útréttir þína hægri hönd * jörðin svalg þá.

13Þú hefur leitt fólkið, sem þú frelsaðir, með miskunn þinni * þú fylgdir því með þínum krafti til þíns heilaga bústaðar.

17Þú leiddir þá inn og gróðursettir þá á fjalli arfleifðar þinnar, þeim stað, sem þú * Drottinn, hefur gjört að þínum bústað, þeim helgidóm, sem þínar hendur, Drottinn, hafa reist.

18Drottinn skal ríkja um * aldur og að eilífu!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði.

Sálmur 117

Andstef · Lofið Drottin, allar þjóðir.

1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,

2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofið Drottin, allar þjóðir.

Stuttur ritningarlestur

2Pt 1, 10-11Bræður, kostið kapps um að gjöra köllun yðar og útvalning vissa. Ef þér gjörið þetta, munuð þér aldrei hrasa. Á þann hátt mun yður ríkulega veitast inngangur í hið eilífa ríki Drottins vors og frelsara Jesú Krists.

Stutt svarvers

Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.

Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.

Hlutdeild mín á landi lifenda.

Þú ert hæli mitt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Sól af hæðum lýsi öllum þeim er sitja í myrkri og skugga dauðans.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Blessaður sé Kristur, sem vildi verða bræðrum sínum líkur í öllu, og er miskunnsamur og trúfastur meðalgangari fyrir oss hjá Guði. Biðjum til hans og segjum:Opna fyrir oss fjársjóði kærleika þíns, Drottinn.Sól réttlætisins, þú upplýstir oss með skírninni,vér helgum þér þennan dag.Á hverri stundu viljum vér blessa þig,og lofa nafn þitt í öllu.María, móðir þín, brást við orði þínu,bein einnig skrefum vorum með orðum þínum í dag.Veit oss, sem göngum um í forgengileika, að vænta hins himneska óforgengileika,svo að vér fáum nú fyrir trú, von og kærleika, forskot á gleði hins eilífa lífs.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Drottinn, vér biðjum þig: Upplýs hjörtu vor með dýrð upprisu þinnar, eyð skugga dauðans og leið oss til eilífrar dýrðar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Víst ertu, Jesús, kóngur klár,kóngur dýrðar um eilíf ár,kóngur englanna, kóngur vor,kóngur almættis tignarstór.Ó, Jesús, það er játning mín,ég mun um síðir njóta þín,þegar þú, dýrðar Drottinn minn,dómstól í skýjum setur þinn.Frelsaður kem ég þá fyrir þinn dóm,fagnaðarsælan heyri' eg róm.Í þínu nafni útvaldirútvalinn kalla mig hjá sér.Kóng minn, Jesús, ég kalla þig,kalla þú þræl þinn aftur mig.Herratign enga' að heimsins siðheld ég þar mega jafnast við.Jesús, þín kristni kýs þig nú,kóngur hennar einn heitir þú.Stjórn þín henni svo haldi við,himneskum nái dýrðar frið.Þig lofi, Jesús, líf og sál,þig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.

Sálmur 113

Andstef · Vér köllum hann friðflytjanda og hásæti hans skal vera óbifanlegt að eilífu.

1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.

2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.

3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.

4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt

6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.

7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum

8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.

9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vér köllum hann friðflytjanda og hásæti hans skal vera óbifanlegt að eilífu.

Sálmur 117

Andstef · Konungsdæmi hans mun haldast við um aldur og ævi og allir konungar jarðar skulu lúta honum og þjóna.

1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,

2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Konungsdæmi hans mun haldast við um aldur og ævi og allir konungar jarðar skulu lúta honum og þjóna.

Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu

Andstef · Kristi er gefið vald og heiður konungs; allir lýðir, kynkvíslir og þjóðir munu þjóna honum að eilífu.

11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.

12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Kristi er gefið vald og heiður konungs; allir lýðir, kynkvíslir og þjóðir munu þjóna honum að eilífu.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. Ef 1, 20-23Guð vakti Krist frá dauðum og lét hann setjast sér til hægri handar í himinhæðum, ofar hverri tign og valdi og mætti, ofar öllum herradómi og sérhverju nafni, sem nefnt er, ekki aðeins í þessari veröld, heldur og í hinni komandi. Allt hefur hann lagt undir fætur honum og gefið hann Kirkjunni sem höfuðið yfir öllu. En Kirkjan er líkami hans og fyllist af honum, sem sjálfur fyllir allt í öllu.

Stutt svarvers

Þinn er mátturinn og prýðin; * þitt er konungsríkið, Drottinn.

Þinn er mátturinn og prýðin; * þitt er konungsríkið, Drottinn.

Þú munt drottna yfir öllu.

Þitt er konungsríkið, Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Þín er tign og vald, * þitt er konungsríkið, Drottinn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans, og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að eilífu, og á ríki hans mun enginn endir verða. Hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi eilífi Guð, þú vildir reisa við alla hluti í elskuðum Syni þínum, konungi alheims. Veit mildilega að öll sköpuð vera, leyst úr ánauð, þjóni hátign þinni og vegsami þig óaflátanlega. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007