Dagatal

Allra sálna messa

Minningardagur — kirkjan minnist dýrlings í messu dagsins.

Almennur kirkjutími · Vika 31

Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Dýrlegi Jesús, Drottinn allra heima,duftinu klæddur, Guðs einkason,þig vil ég elska, einum þér fylgja,anda míns heilsa, líf og von.Fögur er hlíðin, frítt um völl og haga,fagurt er vorið, sem lífgar allt.Jesús er fegri, hærri og hreinni,sem hjartað lífgar, snautt og kalt.Blómkrónur anga, brosa móti sólu,barnsaugað tæra þó fegur skín.Blómið mun falla, brestur hvert auga,birtan þín, Jesús, aldrei dvín.Bjartur er máni, blítt skín sól í heiði,blikandi stjarna er hýr að sjá.Skærar þú lýsir, ljós heimsins, Jesús,ljómi Guðs dýrðar himni frá.Fegurð og yndi, allt á himni og jörðueinum þér hneigir og skín af þér.Hvert sem ég leita, hvað sem ég þrái,hjarta míns gimsteinn vertu mér.Hinst þegar kallið kemur burt af heimi,kannastu við mig og lýstu mér.Síðasta hugsun hjarta míns veri:Heilagi bróðir, dýrð sé þér. Amen.

Sálmur 85

Andstef · Þú hefur blessað land þitt, Drottinn, þú hefur fyrirgefið misgjörðir lýðs þíns.

1Til söngstjórans. Kóraíta–sálmur.

2Þú hefur haft þóknun á landi þínu * Drottinn, snúið við hag Jakobs,

3þú hefur fyrirgefið misgjörð lýðs þíns * hulið allar syndir þeirra. [Sela]

4Þú hefur dregið að þér alla bræði þína * látið af heiftarreiði þinni.

5Snú þér til vor aftur, þú Guð hjálpræðis vors * og lát af gremju þinni í gegn oss.

6Ætlar þú að vera oss reiður um eilífð * láta reiði þína haldast við frá kyni til kyns?

7Vilt þú eigi láta oss lifna við aftur * svo að lýður þinn megi gleðjast yfir þér?

8Lát oss, Drottinn * sjá miskunn þína og veit oss hjálpræði þitt!

9Ég vil hlýða á það sem Guð Drottins talar. Hann talar frið til lýðs síns og til dýrkenda sinna og til þeirra * er snúa hjarta sínu til hans.

10Já, hjálp hans er nálæg þeim er óttast hann * og vegsemdir munu búa í landi voru.

11Elska og trúfesti mætast * réttlæti og friður kyssast.

12Trúfesti sprettur upp úr jörðunni * og réttlæti lítur niður af himni.

13Þá gefur og Drottni gæði * og land vort veitir afurðir sínar.

14Réttlæti fer fyrir honum * og friður fylgir skrefum hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú hefur blessað land þitt, Drottinn, þú hefur fyrirgefið misgjörðir lýðs þíns.

Sálmur — Jes 26, 1-4. 7-9. 12 — Sigursöngur yfir fjandmönnum

Andstef · Af hjarta þrái ég þig á næturnar, með andanum í brjósti mínu skima ég eftir þér.

1Á þeim degi mun þetta kvæði sungið verða í Júdalandi * Vér eigum rammgerva borg. Hjálpræði sitt gjörir hann að múrum og varnarvirki.

2Látið upp hliðin, svo að réttlátur lýður megi inn ganga * sá er trúnaðinn varðveitir

3og hefur stöðugt hugarfar. Þú veitir ævarandi frið * því að þeir treysta á þig.

4Treystið Drottinn æ og ætíð * því að Drottinn, Drottinn er eilíft bjarg.

7Vegur hins réttláta er sléttur * götu hins réttláta ryður þú.

8Já, á vegi dóma þinna, Drottinn, væntum vér þín * þitt nafn og þína minning þráir sála vor.

9Sál mín þráir ég þig á næturnar, já * með andanum í brjósti mínu skima ég eftir þér. Þegar dómar þínir birtast á jörðu, þá læra byggjendur jarðríkis réttlæti.

12Drottinn, veit þú oss frið * því að þú hefur látið oss gjalda allra vorra verka.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Af hjarta þrái ég þig á næturnar, með andanum í brjósti mínu skima ég eftir þér.

Sálmur 67

Andstef · Lát ásjónu þína lýsa meðal vor, Drottinn.

1Til söngstjórans. Með * strengjaleik. Sálmur. Ljóð.

2Guð sé oss náðugur og blessi oss * hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, [Sela]

3svo að þekkja megi veg þinn á * jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.

4Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð * þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

5Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar * því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. [Sela]

6Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð * þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

7Jörðin hefur gefið ávöxt sinn * Guð, vor Guð, blessar oss.

8Guð blessi oss * svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lát ásjónu þína lýsa meðal vor, Drottinn.

Stuttur ritningarlestur

1Jh 4, 14-15Vér höfum séð og vitnum, að Faðirinn hefur sent Soninn til að vera frelsari heimsins. Hver sem játar, að Jesús er Guðs Sonur, í honum er Guð stöðugur og hann í Guði.

Stutt svarvers

Guð minn og hjálpari minn, * á þig vona ég.

Guð minn og hjálpari minn, * á þig vona ég.

Hæli mitt og frelsari minn.

Á þig vona ég.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Guð minn og hjálpari minn, * á þig vona ég.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Vegna hjartans miskunnar Guðs, vitjar oss upprennandi sól af hæðum.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Tilbiðjum Krist, sem með blóði sínu úthelltu á krossi hefur gert oss að hinni nýju þjóð sinni og segjum:Minnstu þjóðar þinnar, Drottinn.Konungur vor og endurlausnari, heyr Kirkju þína, sem við upphaf þessa dags lofar þig,kenn henni að lofa hátign þína án afláts.Þú ert von vor og styrkur, þér treystum vér,lát væntingar vorar ekki valda oss vonbrigðum.Sjá veikleika vorn og hraða þér oss til hjálpar,því án þín megnum vér ekkert.Minnstu fátækra og umkomulausra,gef að hinn nýi dagur verði þeim ekki erfið byrði heldur upphaf gleði og huggunar.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi Guð, frá þér eru allir góðir hlutir og fegurð sköpunarinnar. Gef að vér hefjum glöð þennan dag í þínu nafni, og ljúkum honum í kærleiksþjónustu við þig og meðbræður vora. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Tíminn steðjar sem streymi ástrengir um kletta falla.Undan mig rekur ofan hjá,áralausan að kalla.Með hverri stundu sú stríða röstað stóra fossinum dregur.Flúðir mér ógna og iðuköst,enginn til bjargar vegur.Hvern á ég vin með vilja og máttað vísa til marks og landa?Þeir sogast fram á sama hátt,sjálfir í nauð og vanda.Einn hefur vinurinn vald og gátá voða og öllu grandi:Jesús fær varið veikan bátog vísað í höfn á landi.Tíminn steðjar sem streymi á.Stýrum í Jesú nafni!Þótt bátur sé smár og báran há,þá brosir hans land fyrir stafni. Amen.

Sálmur 125

Andstef · Drottinn er kringum lýð sinn.

1Þeir sem treysta Drottni eru sem Síonfjall * er eigi bifast, sem stendur að eilífu.

2Fjöll eru kringum Jerúsalem * og Drottins er kringum lýð sinn héðan í frá og að eilífu.

3Því að veldissproti guðleysisins mun eigi hvíla á landi réttlátra * til þess að hinir réttlátu skuli eigi rétta fram hendur sínar til ranglætis.

4Gjör þú góðum vel til * Drottinn, og þeim sem hjartahreinir eru.

5En þá er beygja á krókóttar leiðir mun * Drottinn láta hverfa með illgjörðamönnum. Friður sé yfir Ísrael!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn er kringum lýð sinn.

Sálmur 131

Andstef · Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki.

1Drottinn, hjarta mitt er eigi dramblátt né augu mín hrokafull. Ég fæst eigi við mikil málefni * né þau sem mér eru ofvaxin.

2Sjá, ég hefi sefað sál mína og þaggað niður í henni. Eins og afvanið barn hjá móður sinni * svo er sál mín í mér.

3Vona, Ísrael, á Drottin * héðan í frá og að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki.

Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu

Andstef · Drottinn, þú gjörðir oss, Guði vorum til handa, að konungsríki og prestum.

11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.

12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, þú gjörðir oss, Guði vorum til handa, að konungsríki og prestum.

Stuttur ritningarlestur

Rm 12, 9-12Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda, en haldið fast við hið góða. Sýnið hver öðrum bróðurkærleika og ástúð, og verið hver yðar fyrri til að veita öðrum virðing. Verið ekki hálfvolgir í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni. Verið glaðir í voninni, þolinmóðir í þjáningunni og staðfastir í bæninni.

Stutt svarvers

Orð þitt stendur stöðugt að eilífu, * orð þitt, Drottinn, varir að eilífu.

Orð þitt stendur stöðugt að eilífu, * orð þitt, Drottinn, varir að eilífu.

Frá kyni til kyns varir trúfesti þín.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Orð þitt stendur stöðugt að eilífu, * orð þitt, Drottinn, varir að eilífu.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Andi minn gleðst í Guði, Drottni mínum og frelsara.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Drottinn, megi kvöldbæn vor stíga upp til mildi þinnar og blessun þín koma yfir oss, svo að vér verðskuldum nú og eilíflega að verða sáluhólpin. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 86

Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.

1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.

2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.

3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.

4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.

5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.

6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.

7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.

8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.

9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.

10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!

11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.

12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,

13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.

14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.

15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.

16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.

17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. 1Þ 5, 9-10Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, veit líkömum vorum hvíld í svefni og lát þau störf er vér höfum í dag unnið, vera undirbúning hinnar eilífu uppskeru. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007