Rómverjabréfið 5Krans-útgáfa

Rómverjabréfið 5

Réttlættir af trú höfum vér því frið við Guð fyrir Drottin vorn Jesúm Krist,

sem vér og höfum aðgang fyrir með trúnni til þessarar náðar, sem vér stöndum í, og vér hrósum oss af von um dýrð Guðs;

en ekki það eitt, heldur hrósum vér oss líka af þrengingunum, með því að vér vitum, að þrengingin verkar þolgæði,

en þolgæðið fullreynd, en fullreyndin von.

En vonin lætur ekki til skammar verða, því að kærleika Guðs er úthelt í hjörtum vorum fyrir heilagan anda, sem oss er gefinn.

Því að meðan vér enn vorum óstyrkir, dó Kristur á tilteknum tíma fyrir óguðlega.

Því að varla deyr nokkur fyrir réttlátan mann; því að fyrir góðan mann kynni ef til vill einhver að vilja deyja.

En Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn meðan vér enn vorum í syndum vorum.

Miklu fremur munum vér þá nú, réttlættir fyrir blóð hans, frelsaðir verða frá reiðinni fyrir hann.

Því að ef vér, þá er vér vorum óvinir, urðum sættir við Guð fyrir dauða sonar hans, þá munum vér miklu fremur, er vér verðum í sátt teknir, frelsaðir verða fyrir líf hans.

Og ekki það eitt, heldur hrósum vér oss líka af Guði fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, sem vér nú höfum öðlast sáttargjörðina fyrir.

Þess vegna, eins og syndin kom inn í heiminn fyrir einn mann, og dauðinn fyrir syndina, og dauðinn þannig er runninn til allra manna, af því að allir hafa syndgað, —

því að alt fram að lögmáli var synd í heiminum; en synd tilreiknast ekki, meðan ekki er lögmál.

Samt sem áður hefir dauðinn ríkt frá Adam til Móse einnig yfir þeim, sem ekki höfðu syndgað í líkingu við yfirtroðslu Adams, sem er fyrirmynd hans, er átti að koma.

En ekki er náðargjöfinni eins háttað og misgjörðinni. Því að ef hinir mörgu dóu fyrir misgjörð hins eina manns, þá hefir miklu fremur náð Guðs og gjöf streymt ríkulega til hinna mörgu í náð hins eina manns Jesú Krists.

Og ekki er gjöfinni eins varið og því, sem varð fyrir hinn eina mann, er syndgaði; því að dómurinn varð til fyrirdæmingar vegna eins, en náðargjöfin til sýknunar vegna misgjörða margra.

Því að ef dauðinn vegna misgjörðar hins eina manns ríkti fyrir hinn eina mann, þá munu miklu fremur þeir, sem meðtaka gnóttir náðarinnar og réttlætis-gjafarinnar, ríkja í lífi fyrir hinn eina Jesúm Krist.

Eins og því af misgjörð eins leiddi fyrirdæmingu fyrir alla menn, þannig leiðir og af réttlætis-verki eins réttlæting til lífs fyrir alla menn.

Því að eins og hinir mörgu urðu að syndurum fyrir óhlýðni hins eina manns, þannig munu og hinir mörgu verða réttlættir fyrir hlýðni hins eina.

En hér við bættist svo lögmál, til þess að misgjörðin ykist; en þar sem syndin jókst, þar flóði náðin yfir enn meir;

til þess að, eins og syndin ríkti fyrir dauðann, svo skyldi og náðin ríkja fyrir réttlæti til eilífs lífs fyrir Jesúm Krist, Drottin vorn.