Rómverjabréfið 6Krans-útgáfa

Rómverjabréfið 6

Hvað eigum vér þá að segja? Eigum vér að halda áfram í syndinni, til þess að náðin aukist?

Fjarri fer því. Vér, sem dóum syndinni, hvernig ættum vér framar að lifa í henni?

Eða vitið þér ekki, að allir vér, sem skírðir erum til Krists Jesú, erum skírðir til dauða hans?

Vér erum því greftraðir með honum fyrir skírnina til dauðans, til þess að eins og Kristur var upp vakinn frá dauðum fyrir dýrð föðurins, svo skulum vér og ganga í endurnýung lífsins.

Því að ef vér erum orðnir samgrónir honum fyrir líkingu dauða hans, munum vér einnig vera það fyrir líkingu upprisu hans,

með því að vér vitum þetta, að vor gamli maður er með honum krossfestur, til þess að líkami syndarinnar skuli að engu verða og vér ekki framar þjóna syndinni;

því að sá, sem dauður er, er réttlættur frá syndinni.

En ef vér erum með Kristi dánir, trúum vér því, að vér og munum með honum lifa,

með því að vér vitum, að Kristur, upp vakinn frá dauðum, deyr ekki framar, dauðinn drotnar ekki lengur yfir honum.

Því að það, að hann dó, dó hann syndinni einu sinni, en það, að hann lifir, lifir hann Guði.

Þannig skuluð þér líka álíta yður sjálfa vera dauða syndinni, en lifandi Guði í Kristi Jesú.

Látið því ekki syndina ríkja í dauðlegum líkama yðar, svo að þér hlýðnist girndum hans.

Frambjóðið ekki heldur syndinni limi yðar að ranglætisvopnum, heldur frambjóðið sjálfa yður Guði sem lifnaða frá dauðum og limi yðar Guði sem réttlætisvopn.

Því að synd skal ekki drotna yfir yður; því að ekki eruð þér undir lögmáli, heldur undir náð.

Hvað þá? Eigum vér að syndga, af því að vér erum ekki undir lögmáli, heldur undir náð? Fjarri fer því.

Vitið þér ekki, að þeim sem þér frambjóðið sjálfa yður fyrir þjóna til hlýðni, þess þjónar eruð þér, sem þér hlýðið, hvort heldur er syndar til dauða, eða hlýðni til réttlætis?

En þökk sé Guði, að þér voruð þjónar syndarinnar, en urðuð af hjarta hlýðnir þeirri mynd kenningarinnar, sem þér voruð á vald gefnir,

og gjörðust þjónar réttlætisins eftir að hafa verið leystir frá syndinni.

Eg tala á mannlegan hátt, sökum veikleika holds yðar. Því að eins og þér hafið framboðið limi yðar óhreinleikanum og ranglætinu fyrir þjóna til ranglætis, svo skuluð þér nú frambjóða limi yðar réttlætinu fyrir þjóna til helgunar.

Því að þegar þér voruð þjónar syndarinnar, þá voruð þér lausir við réttlætið.

Hvaða ávöxtu höfðuð þér þá? Þá sem þér nú blygðist yðar fyrir; því að endalok þeirra er dauði.

En nú, með því að þér eruð leystir frá syndinni, en eruð orðnir þjónar Guðs, þá hafið þér ávöxt yðar til helgunar og sem endalokin eilíft líf;

því að laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, drotni vorum.