Dagatal

Upphafning hins heilaga kross

Hátíðisdagur — dagur sem kirkjan heldur sérstaklega upp á.

Almennur kirkjutími · Vika 24

Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Vort traust er allt á einum þér,vor ástarfaðir mildi.Þín náð og miskunn eilíf er,það alla hugga skyldi.Þú ert vor stoð og einkahlíf,svo engu þurfum kvíða,vor huggun, athvarf, ljós og líf.Æ, ljúft er því að stríða.Í hverju, sem að höndum ber,og hvað sem bágt oss mætir,þín hjálp oss nálæg ætíð erog allar raunir bætir.Þín forsjón vakir yfir oss,þín alvöld hönd oss leiðir,þú linar böl og léttir krossog lífsins meinum eyðir.Þú græðir hjartans sviðasár,þú syndir fyrirgefur,þú stöðvar öll vor angurstár,þú alla náð umvefur. Amen.

Sálmur 63, 2-9

Andstef · Til að eyða krafti heljar dó Kristur á krossinum; íklæddur styrk og dýrð vann hann sigur yfir dauðanum.

2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.

3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,

4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.

5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.

6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,

7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.

8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.

9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Til að eyða krafti heljar dó Kristur á krossinum; íklæddur styrk og dýrð vann hann sigur yfir dauðanum.

Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin

Andstef · Drottin hékk á krossinum til að þvo burt syndir vorar með sínu eigin blóði. Hinn blessaði kross er stórfenglegur.

57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.

56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottin hékk á krossinum til að þvo burt syndir vorar með sínu eigin blóði. Hinn blessaði kross er stórfenglegur.

Sálmur 149

Andstef · Geislar standa af hinum dýrmæta krossi sem færði oss hjálpræði. Vér erum sigursæl í krossinum; fyrir krossinn munum vér ríkja; fyrir krossinn er allri illsku eytt, hallelúja.

1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.

2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.

3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.

4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.

5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum

6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum

7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,

8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,

9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Geislar standa af hinum dýrmæta krossi sem færði oss hjálpræði. Vér erum sigursæl í krossinum; fyrir krossinn munum vér ríkja; fyrir krossinn er allri illsku eytt, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Heb 2, 9-10Vér sjáum Jesúm krýndan vegsemd og heiðri vegna dauðans sem hann þoldi. Af Guðs náð skyldi hann deyja fyrir alla. Allt er til vegna Guðs og fyrir Guð. Því varð hann, er hann leiðir marga syni til dýrðar, að fullkomna með þjáningum þann, er leiðir þá til hjálpræðis.

Stutt svarvers

Vér tilbiðjum þig, Kristur, * og vegsömum þig.

Vér tilbiðjum þig, Kristur, * og vegsömum þig.

Því að með þínum heilaga krossi hefur þú endurleyst heiminn.

Og vegsömum þig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Vér tilbiðjum þig, Kristur, * og vegsömum þig.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Vér tilbiðjum kross þinn, Drottinn, og lofum og vegsömum heilaga upprisu þína, því að krosstréð hefur flutt heiminum fögnuð og gleði.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Biðjum af djörfung til Krists sem leið á krossinum til að frelsa oss.Frelsa oss fyrir kross þinn, ó Drottinn.Sonur Guðs þú læknaðir Ísraelslýð þegar hann leit á höggorm úr eiri,vernda oss á þessum degi frá sári syndarinnar sem leiðir til dauða.Mannssonur, líkt og Móse lyfti upp höggorminum í eyðimörkinni var þér lyft upp á krossinum í augsýn allra þjóða,reistu oss upp til að eiga hlut í sigri kross þíns.Eingetinn Sonur Föðurins, þú varst sendur í heiminn til að þeir sem á þig trúa glatist ekki,gef öllum þeim ævarandi líf sem þrá að sjá þig augliti til auglitis.Elskaði Sonur Föðurins, þú varst ekki sendur til að dæma heiminn, heldur að frelsa hann,gef bræðrum vorum og systrum trú og færðu þeim á efsta degi himnafögnuðinn.Eilífi Sonur Föðurins, þú komst til að varpa eldi á jörðu og þráðir að sjá loga hans kveikta í hjörtum allra manna,gef, fyrir heilagleika lífsins, að vér megum eignast hlut í eilífu ljósi dýrðar þinnar.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú vildir að eingetinn Sonur þinn þjáðist á krossinum til að frelsa mannkynið. Vér biðjum, veit að vér sem þekkjum á jörðu leyndardóm krossins verðskuldum verðlaun endurlausnarinnar á himnum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ég krýp að lokum kvíðalaus við fæturþér, Kristur minn – og senn er líf mitt allt.Og lífsins brauðs ég neyti, nú er goldiðmeð naglasárum brot mitt þúsundfalt.Og senn hann kvaddi þá með hryggð í hjarta,með himindjúpa kvöl í brjósti sér,og krossinn bar hann, kærleikanum hlýðinn,– og kveikti sól, er lýsir mér og þér.Og föður sínum fól hann drauminn stóraum frið og líkn, og bað í hinsta sinnog hneigði andlit hljótt og sagði: Faðir,í hendur þínar fel ég anda minn.Á þriðja degi reis hann upp og áttienn orðastað við þá, sem biðu hans.Þeir vissu nú, að hann var Herrann sjálfurog holdi klæddur Guð í sporum manns.Og enn hann segir: Sjá, ég kem í skýjum,og sendir þá, er lúta ásýnd hans,að boða líkn og lífið í hans nafniog leiða saman vegu Guðs og manns.Og þó að páskahretin hurðir lemji,er hitt jafn víst, að sólin brýst í gegn.Í þessum heimi illra verka og óttaer ekkert það, sem honum er um megn.Svo heiti' eg loks á hurðir þínar, Jesús,ó, heyr þú mig, er stend ég þar við dyr.Ég kalla á þig og krýp í þínu nafni,ó, Kristur minn, sem barnið áður fyr. Amen.

Sálmur 110, 1-5. 7

Andstef · Hvílíkt kærleiksverk! Sjálfur dauðinn dó þegar lífið var drepið á trénu.

1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“

2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!

3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.

4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“

5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.

7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hvílíkt kærleiksverk! Sjálfur dauðinn dó þegar lífið var drepið á trénu.

Sálmur 116, 10-19

Andstef · Vér tignum kross þinn, Drottinn, og vér minnumst dýrlegrar píslargöngu þinnar. Þú þjáðist vor vegna; miskunna þú oss.

10Ég trúði, þó ég segði * „Ég er mjög beygður.“

11Ég sagði í angist minni * „Allir menn ljúga.“

12Hvað á ég að gjalda Drottni * fyrir allar velgjörðir hans við mig?

13Ég lyfti upp bikar * hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.

14Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans.

15Dýr er í augum * Drottins dauði dýrkenda hans.

16Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn * ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína.

17Þér færi ég þakkarfórn * og ákalla nafn Drottins.

18Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans,

19í forgörðum húss Drottins * í þér, Jerúsalem. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vér tignum kross þinn, Drottinn, og vér minnumst dýrlegrar píslargöngu þinnar. Þú þjáðist vor vegna; miskunna þú oss.

Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu

Andstef · Vér tilbiðjum þig, Kristur, og vegsömum þig, því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.

11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.

12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vér tilbiðjum þig, Kristur, og vegsömum þig, því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.

Stuttur ritningarlestur

1Kor 1, 23-24Vér prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli og heiðingjum heimsku, en hinum kölluðu, bæði Gyðingum og Grikkjum, Krist, kraft Guðs og speki Guðs.

Stutt svarvers

Ó þú dýrlegi kross, * á þér var konungur englanna sigursæll.

Ó þú dýrlegi kross, * á þér var konungur englanna sigursæll.

Og hann þvoði burt syndir vorar með sínu eigið blóði.

Á þér var konungur englanna sigursæll.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ó þú dýrlegi kross, * á þér var konungur englanna sigursæll.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Ó þú kross, þú ert dýrðartákn um sigur vorn. Megum vér fyrir kraft þinn eiga hlut í sigurför Krists Jesú.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú vildir að eingetinn Sonur þinn þjáðist á krossinum til að frelsa mannkynið. Vér biðjum, veit að vér sem þekkjum á jörðu leyndardóm krossins verðskuldum verðlaun endurlausnarinnar á himnum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 86

Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.

1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.

2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.

3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.

4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.

5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.

6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.

7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.

8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.

9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.

10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!

11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.

12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,

13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.

14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.

15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.

16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.

17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. 1Þ 5, 9-10Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, veit líkömum vorum hvíld í svefni og lát þau störf er vér höfum í dag unnið, vera undirbúning hinnar eilífu uppskeru. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007