Fjórða Mósebók 21Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 21

En er Kanaanítinn, konungurinn í Arad, sem bjó í suðurlandinu, spurði að Ísrael kæmi Atarím-veginn, þá réð hann á Ísrael og hertók nokkura þeirra.

Þá gjörði Ísrael Drottins heit og sagði: Ef þú gefur lýð þennan á mitt vald, skal eg banni helga borgir þeirra.

Þá gjörði Ísrael Drottins heit og sagði: Ef þú gefur lýð þennan á mitt vald, skal eg banni helga borgir þeirra. Og Drottinn heyrði raust Ísraels og seldi Kanaanítana þeim í hendur. Og þeir helguðu þá banni og borgir þeirra, og var staðurinn kallaður Horma.

Lögðu þeir þá upp frá Hór-fjalli leiðina til Rauðahafs, til þess að fara í kring um Edóm-land; en lýðnum felst hugur á leiðinni.

Og lýðurinn talaði í gegn Guði og í gegn Móse: Hví leidduð þið oss brott af Egiptalandi, til þess að vér dæjum í eyðimörkinni, því að hér er hvorki brauð né vatn og vér erum orðnir leiðir á þessu léttmeti.

á Sendi Drottinn eitraða höggorma meðal lýðsins, og þeir bitu fólkið, svo að margt manna dó af Ísrael.

Þá gekk lýðurinn til Móse og sagði: Vér höfum syndgað, því að vér höfum talað í gegn Drottni og í gegn þér; bið þú til Drottins, að hann taki höggormana frá oss. Móse bað þá fyrir lýðnum.

Og Drottinn sagði við Móse: Gjör þér eiturorm og set hann á stöng, og það skal verða, að hver sem bitinn er og lítur á hann, skal lífi halda.

Og Móse gjörði höggorm af eiri: og setti á Stöng; og það varð, að ef höggormur hafði bitið einhvern og hann leit Út eirormsins, þá hélt hann lífi.

Eftir þetta lögðu Ísraelsmenn upp og settu búðir sínar í Óbót.

Og þeir lögðu upp frá Óbót og settu búðir sínar í Íje-Haabarím í eyðimörkinni, sem er fyrir austan Móab.

Þaðan lögðu þeir upp og settu búðir sínar í Sered-dal.

Þaðan lögðu þeir upp og settu búðir sínar hinumegin við Arnon, sem er í eyðimörkinni og kemur upp í landi Amoríta, því að Arnon skilur lönd Móabíta og Amoríta.

Fyrir því segir svo í bókinni um bardaga Drottins: Vaheb í Súfa og Arnondali,

og dalahlíðarnar, er ná þangað, sem Ar liggur, og liggja upp að löndum Móabíta.

Og þaðan héldu þeir til Beer; það er brunnurinn, sem Drottinn talaði um við Móse: Safna saman lýðnum; eg vil gefa þeim vatn.

Þá söng Ísrael þetta kvæði: Vell þú upp, brunnur! Syngið í móti honum!

Brunnur, sem höfðingjarnir grófu og göfugmenni þjóðarinnar holuðu innan með veldissprota, með stöfum sínum. Og frá eyðimörkinni héldu þeir tl Mattana;

og frá Mattana til Nahalíel, og frá Nahalíel til Bamót;

og frá Bamót í dalinn, sem liggur í Móabslandi, að Pisgatindi, sem mænir yfir öræfin.

Og Ísrael sendi menn á fund Síhons, Amórita konungs, og lét segja honum:

Leyf mér að fara um land þitt; eigi munum vér hneigja af út á akra né víngarða, og eigi munum vér drekka vatn úr brunnum, heldur munum vér fara konungsgötur, þar til vér erum komnir út úr landi þínu.

En Síhon leyfði eigi Ísrael að fara um land sitt; og Síhon safnaði að sér öllum lýð sínum og fór í móti Ísrael inn í eyðimörkina; og er hann kom til Jahza, lagði hann til orustu við Ísrael.

En Ísrael vann sigur á honum með sverðseggjum og lagði undir sig land hans frá Arnon til Jabkok, alt að Ammónítum, því að landamerki Ammóniíta voru ekki auðunnin.

Og Ísrael tók allar þessar borgir og Ísrael settist að í öllum borgum Amoríta, í Hesbon og öllum þorpunum þar í kring.

Því að Hesbon var borg Síhons Amóríta konungs; hafði hann átt í ófriði við hinn fyrri konung Móabíta og tekið frá honum alt land hans að Arnon.

Fyrir því sögðu háðskáldin: Komið til Hesbon! Endurreist og grundvölluð verði borg Síhons!

Því að eldur gekk út frá Hesbon, logi frá borg Sihons; hann eyddi Ar í Móab, lávörðum Arnon-hæða.

Vei þér, Móab! Það er úti um þig, Kamoss lýður! Hann lét sonu sína verða flóttamenn og dætur sínar herteknar verða af Síhon, Amóríta konungi.

Vér skutum á þá; gjöreydd var Hesiion alt til Díbon; og vér fórum herskildi yfir, svo að eldurinn bálaðist uþp alt til Medeba..

Og Ísrael settist að í landi Amórila.

En Móse sendi njósnarmenn til Jaser, og þeir unnu hana og þorpin þar í kring; og hann rak burt Amórítana, sem þar bjuggu.

Sneru þeir nú við og héldu veginn, sem liggur til Basan. En Og, konungur í Basan, fór í móti þeim með öllu liði sínu, til þess að heyja bardaga hjá Edreí.

Þá sagði Drottinn við Móse: Eigi skalt þú óttast hann; því að eg gef hann og lið hans alt og land hans í þínar hendur, og skalt þú svo fara með hann, eins og þú fórst með Síhon, Amóríta konung, er bjó í Hesbon.

Og þeir feldu hann og sonu hans og alt hans lið, svo að enginn var eftir skilinn, er undan kæmist, og lögðu þeir land hans undir sig.