Gamla testamentiðLögmálið
Og Ísraelsmenn lögðu upp og settu búðir sínar á Móabsheiðum, hinumegin Jórdanar gegnt Jeríkó.
En Balak Zippórsson sá alt það, sem Ísrael gjörði Amorítum.
Urðu Móabítar þá næsta hræddir við lýðinn, því að hann var fjölmennur, og skelfing greip Móabíta fyrir Ísraelsmönnum.
Þá sögðu Móabítar við öldunga Midíansmanna: Nú mun mannfjöldi þessi upp eta alt í kring um oss, eins og uxar eta grængresi í haga. En Balak Zippórsson var um þær mundir konungur í Móab.
Sendi hann þá menn á fund Bíleams Beórssonar, til Petór, sem er við fljótið, í land samlanda sinna, til þess að sækja hann, og lét segja honum: Sjá, þjóð nokkur er komin frá Egiptalandi; þekur hún land alt og hefir nú tekið sér bólfestu gagnvart mér.
Kom því og bölva þjóð þessari fyrir mig, því að hún er mér ofurefli; vera má, að eg fái þá sigrast á henni Og stökt henni úr landi, því að eg veit, að sá er blessaður, sem þú blessar, og sá bölvaður, sem þú bölvar.
Öldungar Móabíta og öldungar Midíansmanna fóru nú af stað og höfðu með sér spásagnarlaunin. Komu þeir til Bíleams og fluttu honum orð Balaks.
En hann sagði við þá: Verið hér í nótt, og mun eg svara yður, eftir því sem Drottinn segir mér. Og höfðingjar Móabíta voru hjá Bíleam um nóttina.
En Guð kom til Bíleams og sagði: Hvaða menn eru það, sem hjá þér eru?
Og Bíleam sagði við Guð: Balak Zippórsson, konungur í Móab, hefir gjört mér þessa orðsending:
»Sjá, þjóð nokkur er hér komin af Egiptalandi og þekur hún landið alt; kom því og bið henni bölbæna fyrir mig; vera má, að eg geti þá barist við hana og stökt henni burt«.
En Guð sagði við Bíleam: Eigi skalt þú fara með þeim, og eigi skalt þú bölva þessari þjóð, því að hún er blessuð.
Morguninn eftir reis Bileam árla og sagði við höfðingja Balaks: Farið heim land yðar, því að Drottinn vill ekki leyfa mér að fara með yður.
Og höfðingjar Móabita héldu af stað og komu til Balaks og sögðu: Bíleam færðist undan að fara með oss.
Balak sendi þá enn höfðingja, fleiri Og göfuglegri en þessir voru.
Og er þeir komu á fund Bileams, Sögðu þeir við hann: Balak Zippórsson mælir svo: Lát þú ekkert aftra Þér frá að koma á minn fund.
Því að eg vil veita þér mikla sæmd, og alt, sem þú segir mér, skal eg gjöra; kom því og bið lýð þessum bölbæna.
En Bíleam svaraði og sagði við þjóna Balaks: Þó að Balak gæfi mér hús sitt full af silfri og gulli, gæti eg samt ekki brugðið af boði Drottins, Guðs míns, hvorki í smáu né stóru.
En verið þér bú einnig hér í nótt, að eg megi vita, hvað Drottinn enn vill við mig tala,
Þá kom Guð til Bíleams um nóttina og sagði við hann: Ef menn þessir eru komnir til að sækja þig, þá rís þú upp og far með þeim, og gjör þó það eitt, er eg býð þér.
Bíleam reis því árla um morguninn, söðlaði ösnu sína og fór með höfðingjum Móabíta.
En reiði Guðs upptendraðist af því, að hann fór; og engill Drottins stóð í götunni fyrir honum; en hann reið ösnu sinni, og tveir sveinar hans voru með honum.
Og er asnan sá engil Drottins standa í götunni með brugðnu sverði í hendi, sneri hún af götunni og fór út á grundina, en Bíleam barði ösnuna, til þess að koma henni aftur á götuna.
Þá gekk engill Drottins í öngvegið milli víngarðanna, og var grjótgarður á báðar hliðar.
Og er asnan sá engil Drottins, þrengdi hún sér Upp að garðinum og varð fótur Bíleams í milli; barði hann hana þá Aftur,
Þá gekk engill Drottins enn fram fyrir og nam staðar í einstigi, þar sem ekki varð vikið til hægri né vinstri.
Og er asnan sá engil Drottins, lagðist hún undir Bíleam. Þá reiddist Bileam og barði hana Með staf sínum,
Drottinn lauk þá upp munni ösnunnar, og hún sagði við Bíleam: Hvað hefi eg gjört þér, er þú hefir nú barið mig þrisvar?
Bíleam sagði við ösnuna: Af því að þú hefir dregið dár að mér. Væri svo vel, að eg hefði sverð í hendi, mundi eg óðara drepa þig.
Þá sagði asnan við Bileam: Er eg eigi asna þín, er þú hefir riðið alla þína æfi fram á þennan dag? Hefi eg nokkurn tíma verið vön að gjöra þér þetta? En hann sagði: Nei.
Þá lauk Drottinn upp augum Bíleams, svo að hann sá engil Drottins standa í götunni með brugðnu sverði í hendi, og hann laut honum og féll fram á ásjónu sína.
En engill Drottins sagði við hann: Hví hefir þú nú barið ösnu þína þrisvar sinnum? Sjá, það er eg, sem kominn er til að standa fyrir þér, því að þessi för er háskaleg í mínum augum.
Asnan sá mig og veik þrisvar úr vegi fyrir mér; hefði hún ekki vikið fyrir mér, mundi eg nú þegar hafa deytt þig, en hana mundi eg hafa látið lífi halda.
Þá sagði Bíleam við engil Drottins: Eg hefi syndgað, því að eg vissi ekki að þú stóðst fyrir mér á veginum; vil eg því snúa aftur, ef þér mislíkar.
En engill Drottins sagði við Bíleam: Far þú með mönnunum, en ekki mátt þú tala annað en það, sem eg mun segja þér. Bíleam fór þá með höfðingjum Balaks.
Og er Balak frétti að Bíleam kæmi, fór hann út í móti honum til Ír-Móab, sem liggur á landamærunum við Arnon, á yztu landamærunum.
Og Balak sagði við Bíleam: Sendi eg ekki menn til þín, til þess að sækja þig? Hví komst þú þá ekki til mín? Mun eg eigi þess megnugur, að veita þér sæmd fyrir?
En Bíleam sagði við Balak: Sjá, eg er nú kominn til þín. En mun eg fá mælt nokkuð? Þau orð, sem Guð leggur mér í munn, þau mun eg mæla.
Bíleam fór þá með Balak, og þeir komu til Kirjat-Kúzót.
Og Balak fórnaði nautum og sauðum og sendi Bíleam og höfðingjum þeim, sem með honum voru.
Um morguninn eftir tók Balak Bíleam með sér og fór með hann upp til Bamót-Baal; en þaðan sá hann væta hluta lýðsins.