Fjórða Mósebók 23Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 23

Ó Þá mælti Bíleam við Balak: Gjör þú mér hér sjö ölturu og fá mér hingað sjö uxa og sjö hrúta.

Og Balak gjörði sem Bíleam sagði; og Balak og Bíleam fórnuðu uxa og hrút á altari hverju.

Bíleam sagði við Balak: Statt þú hér hjá brennifórn þinni, eg ætla að ganga burt; vera má að Drottinn kunni að koma til móts við mig; en hvað sem hann birtir mér, skal eg tjá þér. Fór hann þá upp á skóglausa hæð.

Og Guð kom til móts við Bíleam, og hann sagði við hann: Eg hefi búið sjö ölturu og fórnað uxa og hrút á hverju altari.

Drottinn lagði þá Bileam orð: í munn og sagði: Far þú aftur til Balaks og mæl svo.

Fór hann þá aftur til hans; og sjá, hann stóð hjá brennifórn sinni og allir höfðingjar Móabs með honum.

Flutti hann þá kvæði sitt og mælti: Til Mesópótamíu lætur Balak sækja mig, konungur Móabs til hinna austlægu fjalla. Kom þú, bölva Jakob fyrir mig, kom þú, formæl Ísrael!

Hvernig má eg biðja bölbæna þeim, er Guð eigi biður bölbæna, og hvernig má eg formæla þeim, er Drottinn, eigi formælir?

Því að af fjallstindinum sé eg hann og af hæðunum lít eg hann. Það er þjóðflokkur, sem býr einn sér og telur sig eigi meðal hinna þjóðanna.

Hver mun telja mega duft Jakobs, og hver mun fá tölu komið á fjórða partinn af Ísrael? Deyi önd mín dauða réttlátra og verði endalok mín sem hans.

R af ir Þá sagði Balak við Bíleam: Hvað hefir þú gjört mér? Eg fékk þig, út þess að biðja óvinum mínum bölbæna, og sjá, þú hefir margblessað þá.

En hann svaraði og sagði: Hvort hlýt eg eigi að mæla það eitt, er Drottinn leggur mér í munn?

Þá sagði Balak við hann: Kom með mér á annan stað, þar er þú mátt sjá þá; þó munt þú aðeins fá séð YZzta hluta þeirra; alla munt þú eigi sjá þá; og bið þeim þar bölbæna fyrir mig.

Og hann tók hann með sér upp á Njósnarvöll, upp á Pisgatind, og reisti þar sjö ölturu og fórnaði.

Mælti hann þá við Balak: Statt þú hér hjá brennifórn þinni, meðan eg fer þangað til móts við Guð.

Og Drottinn kom til móts við Bíleam og lagði honum orð í munn og sagði: Far þú aftur til Balaks og mæl svo.

Gekk hann þá til hans, og sjá, hann stóð hjá brennifórn sinni og höfðingjar Móabs með honum. Og Balak mælti við hann: Hvað sagði Drottinn?

Flutti hann þá kvæði sitt og mælti: Rís þú upp, Balak, og hlýð á! Hlusta þú á mig, Zippórs sonur!

Guð er ekki maður, að hann ljúgi, né sonur manns, að hann sjái sig um hönd. Skyldi hann segja nokkuð og gjöra það eigi, tala nokkuð og efna það eigi?

Sjá, að blessa var mér falið, fyrir því blessa eg og tek það eigi aftur.

Bjsi sést ólán með Jakob, né heldur má mein líta með Ísrael. Jalhve, Guð hans, er með honum, og konungsfögnuður er hjá honum.

Sá Guð, sem leiddi þá af Egiptalandi, er honum sem horn vísundarins.

Því að eigi er galdur með Jakob né fjölkyngi með Ísrael. Nú verður það eitt sagt um Jakob og Ísrael: Hversu mikla hluti hefir Guð gjört!

Það er þjóðflokkur, sem rís upp eins og ljónynja og reisir sig sem ljón; hann legst ekki niður fyr en hann hefir etið bráð og drukkið blóð veginna manna.

Þá sagði Balak við Bíleam: Þú skalt hvorki biðja honum bölbæna né blessa hann.

En Bíleam svaraði og sagði við Balak: Hefi eg ekki sagt þér: Alt það, sem Drottinn býður, það mun eg gjöra?

Þá mælti Balak við Bíleam: Kom þú, eg vil fara með þig á annan stað; vera má að Guði þóknist, að þú biðjir þeim þar bölbæna fyrir mig.

Tók Balak þá Bíleam með sér upp á Peór-tind, sem mænir yfir öræfin.

Þá mælti Bíleam við Balak: Gjör þú mér hér sjö ölturu og; mér hingað sjö uxa og sjö hrúta.

Og Balak gjörði sem Bíleam mælti og fórnaði uxa og hrút á altari hverju.