Fjórða Mósebók 20Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 20

Og Ísraelsmenn, allur söfnuðurinn, komu í eyðimörkina ZinÍ fyrsta mánuðinum, og lýðurinn settist um kyrt í Kades; þar dó Mirjam og var þar grafin.

Og fólkið hafði ekki vatn; söfnuðust þeir þá saman í gegn Móse og Aroni.

Og lýðurinn þráttaði við Móse og sagði: Guð gæfi að vér hefðum dáið, þá er bræður vorir dóu fyrir augliti Drottins.

Hví leidduð þið söfnuð Drottins í eyðimörk þessa, að vér og fénaður vor dæjum þar?

Hví létuð þið oss í burt fara af Egiptalandi, til þess að leiða oss í þennan vonda stað, þar sem eigi verður sáð, engar fíkjur vaxa né vínviður né granalepli, og eigi er vatn til að drekka?

Móse og Aron gengu þá burt frá söfnuðinum að dyrum samfundatjaldsins og féllu fram á ásjónur sínar; birtist þeim þá dýrð Drottins.

Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

Tak stafinn og safna saman lýðnum, þú og Aron bróðir þinn, og mælið við klettinn í áheym þeirra, og mun hann vatn gefa. Og þú skalt leiða út vatn handa þeim af klettinum og gefa fólkinu og fénaði þeirra að drekka.

Þá sótti Móse stafinn inn í helgidóminn, eins og hann hafði boðið honum.

Og Móse og Aron söfnuðu saman lýðnum við klettinn, og hann sagði við þá: Heyrið þér, þrjózkir menn, hvort munum vér leiða mega vatn út af kletti þessum handa yður?

Síðan hóf Móse upp hönd sína og laust klettinn tveim sinnum með staf sínum; spratt þá upp vatn mikið, svo að fólkið drakk og fénaður þeirra.

Þá sagði Drottinn við Móse og Aron: Fyrir því að þið trúðuð mér eigi, svo að þið helguðuð mig Í augum Ísraelsmanna, þá skuluð þið eigi leiða söfnuð þennan inn Í landið, sem eg hefi gefið þeim.

þetta eru Meriba-vötn, þarsem Ísraelsmenn þráttuðu við Drottin og hann sýndi heilagleik sinn á þeim.

Og Móse sendi frá Kades menn á fund Edóm-konungs: Svo mælir bróðir þinn Ísrael: Þú þekkir allar þær þrautir, er oss hafa mætt.

B Feður vorir fóru suður til Egiptalands, og vér höfum verið í Egiptalandi langa æfi og hafa Egiptar þjáð oss, sem og feður vora.

En vér hrópuðum til Drottins og hann heyrði bæn vora og sendi engil, og leiddi hann oss brott af Egiptalandi. Og sjá, nú erum vér í Kades, borginni við landamæri þín,

Leyf oss að fara um land þitt; eigi munum vér fara yfir akra né víngarða og eigi munum vér drekka vatn úr brunnum; heldur munum vér fara konungsgötur og eigi hneigja af til hægri handar eða vinstri, þar til er vér erum komnir út úr landi þínu.

En Edóm svaraði honum: Eigi mátt þú fara um land mitt, ella mun eg fara í móti þér með sverði.

Þá sögðu Ísraelsmenn við hann: Vér munum þræða brautarveginn, og ef vér drekkum af vatni þínu, eg og fénaður minn, þá mun eg fé fyrir gjalda; hér er eigi til meira mælst en að eg megi fara um fótgangandi.

En hann sagði: Eigi mátt þú fara um landið. Og Edóm fór í móti honum með miklu liði og sterkri hendi.

Og er Edóm skoraðist undan að leyfa Ísrael yfirför um land sitt, þá sneri Ísrael af leið frá honum.

Nú lögðu þeir upp frá Kades, og Ísraelsmenn, allur söfnuðurinn, komu til fjallsins Hór.

Og Drottinn talaði við Móse og Aron á Hór-fjalli, við landamæri Edóm-lands, og sagði:

Aron skal safnast til fólks síns, því að eigi skal hann komast í það land, sem eg hefi Selið Ísraelsmönnum, af því að þið þrjózkuðust gegn skipan minni hjá Meríba-vötnum.

Tak þú Aron og Eleasar son hans og leið þá upp á Hórfjall.

Fær þú Aron úr klæðum sínum og skrýð Eleasar á Son hans þeim; en Aron skal safnast til fólks síns og deyja þar.

Og Móse gjörði svo sem Drottinn bauð honum; og þeir gengu upp á Hórfjall í augsýn alls fólksins.

Og Móse færði Aron úr klæðum hans og skrýddi Eleasar son hans þeim. Og Aron dó þar á háfjallinu; gengu þeir Móse og Eleasar þá niður af fjallinu.

En er alt fólkið Sá að Aron var andaður, grétu allir Ísraelsmenn Aron þrjátíu daga. Ófriður við konunginn í Arad. Eirormurinn.