Dagatal

Péturs messa og Páls, heilagra postula

Stórhátíð — einn af mestu dögum kirkjuársins.

Almennur kirkjutími · Vika 13

Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Til himins upp þig hef, mín sál,til himins fljúgi lofgjörð þín.Upp, upp, mitt hjarta, hugur, mál,með helgum söng, því dagur skín.Ó, Drottinn, náð þín dásöm er,ó, Drottinn, hjartans athvarf mitt,þú væran blund enn veittir mérog vaktir ennþá barnið þitt.Því skal, ó, Drottinn, dýrð þér tjáí dag og jafnan sála mín,þig lofi allt, er anda má,og allt, er blessar gæska þín.Af öllu hjarta eg þig bið:Æ, annast þú mig nú í dag,af elsku þinni legg mér liðog lát mér snúast allt í hag.En ef þú sendir mæðu mér,svo mín af harmi stynur önd,gef mér þá eins að þakka þérog þína blessa föðurhönd.Æ, hjálpa þú mér, Herra minn,svo helgi' eg gjörvallt líf mitt þér.Mig ætíð styrki andi þinnog allt, sem gott er, kenni mér.Ég fel mig nú í faðminn þinn,ég fel þér bæði líf og sál.Æ, lát þér þóknast lofsöng minn,þig lofi hjarta, raust og mál. Amen.

Sálmur 63, 2-9

Andstef · Ég veit á hvern ég trúi. Og ég er sannfærður um að hann, hinn réttláti dómari, er þess megnugur að varðveita það, sem mér er trúað fyrir, þar til dagurinn kemur.

2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.

3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,

4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.

5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.

6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,

7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.

8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.

9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég veit á hvern ég trúi. Og ég er sannfærður um að hann, hinn réttláti dómari, er þess megnugur að varðveita það, sem mér er trúað fyrir, þar til dagurinn kemur.

Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin

Andstef · Náð Guðs við mig hefur ekki orðið til ónýtis; hún er stöðugt að störfum í mér.

57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.

56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Náð Guðs við mig hefur ekki orðið til ónýtis; hún er stöðugt að störfum í mér.

Sálmur 149

Andstef · Ég hef barist góðu baráttunni, hef fullnað skeiðið, hef varðveitt trúna.

1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.

2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.

3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.

4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.

5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum

6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum

7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,

8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,

9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég hef barist góðu baráttunni, hef fullnað skeiðið, hef varðveitt trúna.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 4, 13-14Þér elskaðir, gleðjist er þér takið þátt í píslum Krists, til þess að þér einnig megið gleðjast miklum fögnuði við opinberun dýrðar hans. Sælir eruð þér, er þér eruð smánaðir vegna nafns Krists, því að Andi dýrðarinnar, Andi Guðs hvílir þá yfir yður.

Stutt svarvers

Þeir lögðu líf sitt í sölurnar * vegna nafns Drottins vors Jesú Krists.

Þeir lögðu líf sitt í sölurnar * vegna nafns Drottins vors Jesú Krists.

Þeir fóru burt glaðir yfir því að þeir höfðu verið virtir þess að þola háðung,

vegna nafns Drottins vors Jesú Krists.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Þeir lögðu líf sitt í sölurnar * vegna nafns Drottins vors Jesú Krists.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Símon Pétur sagði: Drottinn, til hvers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs lífs, og vér trúum og vitum, að þú ert Kristur, Sonur Guðs, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Drottinn Jesús byggði sinn heilaga lýð á grundvelli postulanna og spámannanna. Biðjum til hans í trú:Blessa Kirkju þína, Drottinn.Þú baðst að Pétur myndi ekki hrasa í trúnni,styrktu trú Kirkju þinnar.Þú birtist Pétri eftir upprisuna og þú birtist Sál á veginum til Damaskus,styrktu trú vora svo að vér megum staðfastlega boða að þú hefur risið upp frá dauðum.Þú valdir Pál til postula svo að hann gæti prédikað heiðingjunum boðskap þinn,gjör oss að trúföstum prédikurum guðspjalls þíns.Af miskunn þinni fyrirgafst þú Pétri afneitun hans,fyrirgef oss allar syndir vorar.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú hefur gefið oss heilaga og vegsamlega gleði þessa dags á stórhátíð postulanna Péturs og Páls. Gef Kirkju þinni að fylgja í öllu boðum þeirra, en fyrir þá hóf hún að útbreiða trúna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Nú hverfur sól í hafog húmið kemur skjótt.Ég lofa góðan Guð,sem gefur dag og nótt,minn vökudag, minn draum og nótt.Þú vakir, faðir vor,ó, vernda börnin þín,svo víð sem veröld erog vonarstjarna skín,ein stjarna hljóð á himni skín.Lát daga nú í nóttaf nýrri von og trúí myrkri hels og harmsog hvar sem gleymist þúá jörð, sem átt og elskar þú. Amen.

Sálmur 116, 10-19

Andstef · Ég hef beðið fyrir þér, Pétur, að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú bræður þína, þegar þú ert snúinn við.

10Ég trúði, þó ég segði * „Ég er mjög beygður.“

11Ég sagði í angist minni * „Allir menn ljúga.“

12Hvað á ég að gjalda Drottni * fyrir allar velgjörðir hans við mig?

13Ég lyfti upp bikar * hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.

14Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans.

15Dýr er í augum * Drottins dauði dýrkenda hans.

16Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn * ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína.

17Þér færi ég þakkarfórn * og ákalla nafn Drottins.

18Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans,

19í forgörðum húss Drottins * í þér, Jerúsalem. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég hef beðið fyrir þér, Pétur, að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú bræður þína, þegar þú ert snúinn við.

Sálmur 126

Andstef · Fúslega vil ég hrósa mér af veikleika mínum, til þess að kraftur Krists megi taka sér bústað í mér.

1Þegar Drottinn sneri við hag Síonar * þá var sem oss dreymdi.

2Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna * „Mikla hluti hefur Drottinn gjört við þá.“

3Drottinn hefur gjört mikla hluti við oss * vér vorum glaðir.

4Snú við hag vorum, Drottinn * eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.

5Þeir sem sá með tárum * munu uppskera með gleðisöng.

6Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar * með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Fúslega vil ég hrósa mér af veikleika mínum, til þess að kraftur Krists megi taka sér bústað í mér.

Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara

Andstef · Þú ert hirðir hjarðar Krists og leiðtogi postulanna; Kristur hefur trúað þér fyrir lyklum himnaríkis.

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.

4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,

10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú ert hirðir hjarðar Krists og leiðtogi postulanna; Kristur hefur trúað þér fyrir lyklum himnaríkis.

Stuttur ritningarlestur

1Kor 15, 3-5. 8Ég kenndi yður fyrst og fremst það, sem ég einnig hef meðtekið, að Kristur dó vegna vorra synda samkvæmt ritningunum, að hann var grafinn, að hann reis upp á þriðja degi samkvæmt ritningunum og að hann birtist Kefasi, síðan þeim tólf. En síðast allra birtist hann einnig mér.

Stutt svarvers

Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.

Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.

Þeir báru vitni um upprisu Jesú Krists.

Og prédikuðu það af trúfesti.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Drottinn, Pétur postuli og Páll kennari heiðingjanna, kenndu oss lögmál þitt.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú hefur gefið oss heilaga og vegsamlega gleði þessa dags á stórhátíð postulanna Péturs og Páls. Gef Kirkju þinni að fylgja í öllu boðum þeirra, en fyrir þá hóf hún að útbreiða trúna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 91

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,

2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“

3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,

4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.

5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,

6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.

7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.

8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.

10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.

11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.

14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.

15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.

16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

Stuttur ritningarlestur

Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007