Eg særi þig fyrir augliti Guðs og Krists Jesú, sem dæma mun lifendur og dauða, og við opinberun hans og konungsríki hans:
Prédika þú orðið, gef þig að því í tíma, í ótíma; vanda um, ávíta, áminn með öllu langlyndi og fræðslu.
Því að þann tíma mun að bera, er menn þola ekki hina heilnæmu kenningu, heldur kitlar þá á eyrunum og þeir hópa að sér kennurum eftir eigin fýsnum sínum;
og þeir munu snúa eyrum sínum burt frá sannleikanum, og snúa sér að æfintýrum.
En ver þú algáður í öllu, þol ilt, gjör verk trúboða, fullna þjónustu þína.
Því það er nú svo komið, að mér er fórnfært, og tíminn er kominn, að eg taki mig upp.
Eg hefi barist góðu baráttunni, hefi fullnað skeiðið, hefi varðveitt trúna.
Að öðru leyti er mér geymd kóróna réttlætisins, sem Drottinn mun gefa mér á þeim degi, hann hinn réttláti dómari; en ekki einungis mér, heldur og öllum, sem elskað hafa opinberun hans.
Gjör þér far um að koma sem fyrst til mín;
því að Demas hefir yfirgefið mig, af því að hann elskaði þennan heim, og er hann farinn til Þessaloníku; Kreskes er farinn til Galatíu og Títus til Dalmatíu;
Lúkas er einn hjá mér. Tak þú Markús og lát hann koma með þér, því að hann er mér þarfur til þjónustu.
En Týkíkus hefi eg sent til Efesus.
Fær þú mér, þegar þú kemur, möttulinn, sem eg skildi eftir í Tróas hjá Karpusi, og bækurnar, einkanlega skinnbækurnar.
Alexander koparsmiður gjörði mér margt ilt; Drottinn mun gjalda honum eftir verkum hans.
Gæt þín líka fyrir honum, því að mjög stóð hann í gegn orðum vorum.
Í fyrstu málsvörn minni kom enginn mér til aðstoðar, heldur yfirgáfu mig allir; verði þeim það ekki tilreiknað.
En Drottinn stóð með mér og veitti mér kraft, til þess að eg yrði til að fullna prédikunina og allir heiðingjarnir fengju að heyra. Og eg varð frelsaður úr gini ljónsins.
Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu verki og mig hólpinn leiða inn í ríkið sitt hið himneska. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.
Heilsa þú Prisku og Akvílasi og heimili Ónesífórusar.
Erastus varð eftir í Korintu, en Trófímus skildi eg eftir sjúkan í Míletus.
Gjör þér far um að koma fyrir vetur. Evbúlus sendir þér kveðju og Púdes og Línus og Kládía og allir bræðurnir.
Drottinn sé með þínum anda. Náð sé með yður.