En vita skalt þú þetta, að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir,
því að mennirnir munu verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, lastmælendur, foreldrum óhlýðnir, vanþakklátir, vanheilagir,
kærleikslausir, óhaldinorðir, rógberandi, bindindislausir, grimmir, ekki elskandi það sem gott er,
sviksamir, framhleypnir, ofmetnaðarfullir, elskandi munaðarlífið meira en Guð,
og hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. Og snú þér burt frá slíkum;
því að úr hóp þessara eru mennirnir, sem smeygja sér inn í húsin og ná á band sitt kvennsniftum, sem syndum eru hlaðnar og leiðast af margvíslegum fýsnum,
sem eru alt af að læra og geta aldrei komist til þekkingar á sannleikanum.
Eins og þeir Jannes og Jambres stóðu í gegn Móse, þannig standa og þessir menn í gegn sannleikanum; eru þeir menn hugspiltir og illa reyndir í trúnni;
en þeim mun ekki verða ágengt, því að heimska þeirra mun verða hverjum manni augljós, eins og heimska hinna líka varð.
En þú hefir breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði,
í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem fyrir mig komu í Antíokkíu, í Íkóníum og í Lýstra; — slíkar ofsóknir sem eg þoldi — og Drottinn frelsaði mig úr þeim öllum.
Já, allir, sem lifa vilja guðrækilega í Kristi Jesú, munu ofsóttir verða.
En vondir menn og svikarar munu magnast í vonskunni, villandi aðra og villuráfandi sjálfir.
En halt þú stöðuglega við það, sem þú hefir numið og hefir fest trú á, þar eð þú veist af hverjum þú hefir numið það;
og þar eð þú frá blautu barnsbeini þekkir heilagar ritningar, sem geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Kristi Jesú.
Sérhver ritning, sem innblásin er af Guði, er og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar, til leiðréttingar, til mentunar í réttlæti,
til þess að guðsmaðurinn sé algjör, hæfur gjör til sérhvers góðsverks.