Matteusarguðspjall 16Krans-útgáfa

Matteusarguðspjall 16

Og Farísearnir og Saddúkearnir komu til hans og freistuðu hans og báðu hann að sýna sér tákn af himni.

En hann svaraði og sagði við þá: Að kveldi segið þér: Góðviðri, því að himininn er rauður.

Og að morgni: Hreggviðri í dag, því að himininn er rauður og dimmur. Um himinsins útlit kunnið þér að dæma, en um tákn tímanna getið þér ekki dæmt.

Vond og hórsöm kynslóð beiðist tákns, og henni skal eigi tákn gefast nema tákn Jónasar. Og hann yfirgaf þá og fór burt.

Og er lærisveinarnir komu yfir um, höfðu þeir gleymt að taka brauð.

En Jesús sagði við þá: Sjáið til og varið yður á súrdeigi Faríseanna og Saddúkeanna.

En þeir hugsuðu með sjálfum sér og sögðu: Vér höfum ekki tekið brauð.

En er Jesús varð þess vís, mælti hann: Hví eruð þér að hugsa um það með sjálfum yður, þér trúarlitlir, að þér eruð brauðlausir?

Skiljið þér ekki enn þá? Munið þér þá eigi heldur eftir brauðunum fimm handa fimm þúsundum, og hve margar karfir þér tókuð?

Né eftir brauðunum sjö handa fjórum þúsundum, og hve margar karfir þér tókuð?

Hvernig má það vera, að þér skiljið ekki, að eg var ekki að tala um brauð við yður? En varið yður á súrdeigi Faríseanna og Saddúkeanna.

Þá skildu þeir, að hann talaði eigi um að varast súrdeigið í brauðunum, heldur kenningu Faríseanna og Saddúkeanna.

En er Jesús kom til bygða Sesareu Filippí, spurði hann lærisveina sína og sagði: Hver segja menn að mannsins sonur sé?

Og þeir sögðu: Sumir segja: Jóhannes skírari, aðrir: Elía, og aðrir: Jeremía eða einn af spámönnunum.

Hann segir við þá: En hver segið þér að eg sé?

En Símon Pétur svaraði og sagði: Þú ert Kristur, sonur Guðs hins lifanda.

En Jesús svaraði og sagði við hann: Sæll ert þú, Símon Jónasson, því að hold og blóð hefir eigi opinberað þér það, heldur faðir minn á himnum.

En eg segi þér: Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun eg byggja kirkju mína, og hlið Heljar skulu eigi verða henni yfirsterkari.

Eg mun gefa þér lykla himnaríkis, og sérhvað sem þú bindur á jörðu, skal á himnum bundið vera, og, sérhvað sem þú leysir á jörðu, skal á himnum leyst vera.

Þá bauð hann lærisveinunum, að þeir segðu engum, að hann væri Kristur.

Eftir þetta tók Jesús að leiða lærisveinum sínum fyrir sjónir, að sér bæri að fara til Jerúsalem og líða margt af hendi öldunganna, æðstu prestanna og fræðimannanna, og verða deyddur og rísa upp á þriðja degi.

Og Pétur tók hann á einmæli, og fór að átelja hann, segjandi: Guð náði þig, herra; þetta skal aldrei fram við þig koma!

En hann sneri sér við og mælti við Pétur: Haf þig á burt frá mér, Satan, þú ert mér til ásteytingar; því að eigi skynjar þú það sem Guðs er, heldur það sem manna er.

Þá mælti Jesús við lærisveina sína: Vilji einhver fylgja mér, þá afneiti hann sjálfum sér og taki sinn kross og fylgi mér;

því að hver sá, sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, en hver sá sem týnir lífi sínu mín vegna, hann mun finna það.

Því að hvað mun það stoða manninn, þótt hann vinni allan heiminn, en fyrirgjöri sálu sinni? Eða hvaða endurgjald mundi maður gefa fyrir sálu sína?

Því að mannsins sonur mun koma í dýrð föður síns ásamt englum sínum, og þá mun hann gjalda sérhverjum eftir verki hans.

Sannlega segi eg yður, að þeir eru nokkrir af þeim, er hér standa, sem alls eigi munu smakka dauðann, fyr en þeir sjá mannsins son koma í ríki sínu.