Föstudagur í 8. viku almenns kirkjutíma
Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.
Almennur kirkjutími · Vika 8Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Einnig í dag
Páll VI páfi
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- 1. Pétursbréf 4:7-13
- Davíðssálmur
- Sálmur 96:10, 11-12, 13
- Guðspjall
- Markúsarguðspjall 11:11-26
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Svo stór synd engin er,að megi granda þér,ef þú iðrandi sérí trúnni Jesú hér.Sé ég þig, sæll Jesú,svo sem álengdar nú,von mína' og veika trúvið bið ég hressir þú.Þá ég sé sárin mín,særir mig hjartans pín,en sárin þá sé ég þín,sorg öll og kvíðinn dvín.Lát mig, ó, Jesús kær,aldrei svo vera þér fjær,að sjái eg ei sár þín skær,þá sorg og eymd mig slær.Ég fel í sérhvert sinnsál og líkama minní vald og vinskap þinn,vernd og skjól þar ég finn. Amen.
Sálmur 51
Andstef · Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.
1Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,
2þá er Natan spámaður kom til hans * eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.
3Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar * afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.
4Þvo mig hreinan af misgjörð minni * hreinsa mig af synd minni,
5því að ég þekki sjálfur afbrot mín * og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.
6Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur * er þú talar, hreinn, er þú dæmir.
7Sjá, sekur var ég, er ég varð til * syndugur, er móðir mín fæddi mig.
8Sjá, þú hefur þóknun á hreinskilni hið innra * og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!
9Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn * þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.
10Lát mig heyra fögnuð og gleði * lát kætast beinin sem þú hefur sundurmarið.
11Byrg auglit þitt fyrir syndum * mínum og afmá allar misgjörðir mínar.
12Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð * og veit mér nýjan, stöðugan anda.
13Varpa mér ekki burt frá augliti þínu * og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.
14Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis * og styð mig með fúsleiks anda,
15að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína * og syndarar megi hverfa aftur til þín.
16Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns * lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.
17Drottinn, opna varir mínar * svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!
18Þú hefur ekki þóknun á sláturfórnum – annars mundi ég láta þær í té * og að brennifórnum er þér ekkert yndi.
19Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi * sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.
20Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar * reis múra Jerúsalem!
21Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn * þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.
Sálmur — Tb 13, 8-11. 13. 14ab. 15-16ab — Lofsöngur fyrir frelsun þjóðarinnar
Andstef · Fagna, Jerúsalem, því að allir munu safnast saman í þér og lofa Drottin.
8Snúið yður því, þér syndarar, og gjörið réttlæti frammi fyrir Guði og trúið því * að hann muni sýna yður miskunn sína.
9Og ég og sál * mín munum gleðjast í honum.
10Blessið Drottin, allir hans útvöldu * haldið gleðidaga og gefið honum dýrð.
11Jerúsalem, borg Guðs * Drottinn hefur agað þig fyrir verk handa þinna.
13Þú munt skína dýrlegu ljósi * og öll endimörk jarðarinnar munu tilbiðja þig.
14Þjóðir munu koma til þín úr fjarlægð og færa gjafir * og tilbiðja Drottin í þér og telja land þitt heilagt.
15Því að þeir munu ákalla * hið mikla nafn í þér.
16Bölvaðir munu þeir verða, sem fyrirlíta þig, og dæmdir munu þeir verða * sem lastmæla þér; en blessaðir munu þeir verða, sem reisa þig upp.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Fagna, Jerúsalem, því að allir munu safnast saman í þér og lofa Drottin.
Sálmur 147, 12-20
Andstef · Síon, lofa Guð þinn sem sendir orð sitt til jarðar.
12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,
13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.
14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.
15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.
16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.
17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?
18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.
19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.
20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Síon, lofa Guð þinn sem sendir orð sitt til jarðar.
Stuttur ritningarlestur
Gl 2, 19b-20Ég er krossfestur með Kristi. Sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Lífinu, sem ég lifi nú hér á jörð, lifi ég í trúnni á Guðs Son, sem elskaði mig og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig.
Stutt svarvers
Ég hrópa til Guðs, hins hæsta. * Guð kemur öllu vel til vegar fyrir mig.
Ég hrópa til Guðs, hins hæsta. * Guð kemur öllu vel til vegar fyrir mig.
Hann sendir af himni og hjálpar mér.
Guð kemur öllu vel til vegar fyrir mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ég hrópa til Guðs, hins hæsta. * Guð kemur öllu vel til vegar fyrir mig.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Vegna hjartans miskunnar Guðs, vitjar oss upprennandi sól af hæðum.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Vér höfum traust á Guði, sem hefur meðaumkun með öllu sem hann hefur skapað og endurleyst í Syni sínum. Beinum því bænum vorum til hans:Staðfest það sem þú hefur unnið í oss, Drottinn.Guð miskunnseminnar, stýr framförum vorum í heilagleika,svo að hjörtu vor þekki það sem er satt, rétt og elskuvert.Yfirgef oss eigi sakir nafns þíns,gleym eigi sáttmála þínum.Með sundurkrömdu hjarta og auðmjúkum anda biðjum vér þig,gef, að þeir sem treysta á þig, tapi eigi áttum.Þú hefur gjört oss þátttakendur í spámannlegri boðun Krists,gef að vér boðum dásemdarverk þín.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum þig, Drottinn, að þú veitir af gæsku þinni náð þína þeim er leita til þín, svo að þeir breyti eftir boðum þínum, taki við huggun þessa lífs og leiti hinnar komandi gleði. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · ALHEILAGUR LÍKAMA OG BLÓÐS KRISTS
Bože, ty si zveril vedenie svojej Cirkvi svätému pápežovi Pavlovi, horlivému apoštolovi evanjelia tvojho Syna; prosíme ťa, dopraj, aby sme osvietení jeho náukou spolupracovali s tebou na šírení civilizácie lásky vo svete. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Enginn örvænta skyldi,þó iðrast hafi seint,söm er Guðs sonar mildi,sé annars hjartað hreint,því hvorki við stað né stundirstíluð er Drottins náð,allt fram andlátið undiross býðst hans hjálparráð.En þú skalt ekki treystaóvissri dauðastund,né Guðs með glæpum freista,gjörandi þér í lund,náðartíminn sé næstanógur höndum fyrir,slíkt er hættusemd hæsta,henni Guð forði mér. Amen.
Sálmur 145 I
Andstef · Á hverjum degi vil ég prísa þig, Drottinn, og segja frá stórvirkjum þínum.
1Ég vil vegsama þig, ó Guð minn, þú konungur * og prísa nafn þitt um aldur og ævi.
2Á hverjum degi vil ég prísa þig * og lofa nafn þitt um aldur og ævi.
3Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur * mikilleikur hans er órannsakanlegur.
4Ein kynslóðin vegsamar verk þín * fyrir annarri og kunngjörir máttarverk þín.
5Þær segja frá tign og dýrð vegsemdar þinnar * „Ég vil syngja um dásemdir þínar.“
6Og um mátt ógnarverka þinna tala þær * „Ég vil segja frá stórvirkjum þínum.“
7Þær minna á þína miklu * gæsku og fagna yfir réttlæti þínu.
8Náðugur og miskunnsamur er Drottinn * þolinmóður og mjög gæskuríkur.
9Drottinn er öllum góður * og miskunn hans er yfir öllu, sem hann skapar.
10Öll sköpun þín lofar þig * Drottinn, og dýrkendur þínir prísa þig.
11Þeir tala um dýrð konungdóms þíns * segja frá veldi þínu.
12Þeir kunngjöra mönnum veldi þitt * hina dýrlegu tign konungdóms þíns.
13Konungdómur þinn er konungdómur um allar aldir og ríki þitt stendur frá kyni til * kyns. Drottinn er trúfastur í öllum orðum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Á hverjum degi vil ég prísa þig, Drottinn, og segja frá stórvirkjum þínum.
Sálmur 145 II
Andstef · Allra augu vona á þig, Drottinn, og þú gefur þeim fæðu á réttum tíma.
14Drottinn styður alla þá, er ætla að hníga * og reisir upp alla niðurbeygða.
15Allra augu vona á þig * og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma.
16Þú lýkur upp hendi þinni og * seður allt sem lifir með blessun.
17Drottinn er réttlátur á öllum sínum * vegum og miskunnsamur í öllum sínum verkum.
18Drottinn er nálægur öllum sem ákalla hann * öllum sem ákalla hann í einlægni.
19Hann uppfyllir ósk þeirra er óttast hann * og hróp þeirra heyrir hann og hjálpar þeim.
20Drottinn varðveitir alla þá er elska hann * en útrýmir öllum níðingum.
21Munnur minn skal mæla orðstír Drottins * allt hold vegsami hans heilaga nafn um aldur og ævi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Allra augu vona á þig, Drottinn, og þú gefur þeim fæðu á réttum tíma.
Sálmur — Opb 15, 3-4 — Tilbeiðsluhymni
Andstef · Réttlátir og sannir eru vegir þínir, konungur aldanna.
3Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins og segja: Mikil og dásamleg eru verkin þín * Drottinn Guð, þú alvaldi, réttlátir og sannir eru vegir þínir, þú konungur aldanna.
4Hver skyldi ekki óttast, Drottinn, og vegsama nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur * allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Réttlátir og sannir eru vegir þínir, konungur aldanna.
Stuttur ritningarlestur
Rm 8, 1-2Það er engin fordæming fyrir þá, sem tilheyra Kristi Jesú. Lögmál lífsins Anda hefur í Kristi Jesú frelsað þig frá lögmáli syndarinnar og dauðans.
Stutt svarvers
Kristur dó vegna synda vorra, * til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.
Kristur dó vegna synda vorra, * til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.
Hann var deyddur að líkamanum til, en lifandi gjörður í Anda.
Til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Kristur dó vegna synda vorra, * til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Minnstu, Drottinn, miskunnar þinnar eins og þú hefur heitið feðrum vorum.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Fullkomnaðu Kirkju þína.Verndaðu páfa vorn N.Styrktu biskup vorn N.Vertu hjá samfélagi biskupa.Hjálpaðu heimilislausum mönnum.Svalaðu hungruðum.Lýstu blindum.Huggaðu gamalt fólk.Styrktu helgaðar meyjar.Kallaðu gyðingaþjóðina til hins nýja sáttmála.Veittu löggjöfum visku.Gefðu styrk mönnum í freistni.Leiddu látna í hið eilífa ljós.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi, miskunnsami Guð, þú vildir að þjáning Krists yrði heimi öllum til lífs. Veit þjóð þinni, að færa þér lifandi og heilaga fórn svo hún verðskuldi að þú mettir hana með fyllingu kærleika þíns. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 88
Andstef · Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.
1Syngist með Makalat–lagi. Hemans–maskíl Esraíta.
2Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga * um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.
3Lát bæn mína koma fyrir þig * hneig eyra að hrópi mínu,
4því að sál mín er mett orðin af böli * og líf mitt nálægist Hel.
5Ég er talinn með þeim * sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður.
6Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni * er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.
7Þú hefur lagt mig í gryfju undirheima * í myrkrið niðri í djúpinu.
8Reiði þín hvílir á mér * og alla boða þína hefur þú látið skella á mér. [Sela]
9Þú hefur fjarlægt frá mér kunningja mína * gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út,
10augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig * Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.
11Gjörir þú furðuverk vegna látinna * eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? [Sela]
12Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni * frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?
13Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu * eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?
14En ég hrópa til þín, Drottinn * og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.
15Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni * hylur auglit þitt fyrir mér?
16Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku * ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota.
17Reiðiblossar þínir ganga yfir mig * ógnir þínar eyða mér.
18Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn * lykja um mig allar saman.
19Þú hefur fjarlægt frá mér ástvini og * félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Jer 14, 9Þú ert mitt á meðal vor, Drottinn, og vér erum nefndir eftir nafni þínu. Yfirgef oss eigi!
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Almáttugi Guð, veit oss náð til að sameinast eingetnum Syni þínum, sem þoldi dauða og gröf, svo að vér fáum risið upp til nýs lífs ásamt honum, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007