Mánudagur í 5. viku páskatíðar
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Postulasagan 14:5-18
- Davíðssálmur
- Sálmur 115:1-2, 3-4, 15-16
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 14:21-26
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.
Sálmur 5, 2-10. 12-13
Andstef · Þeir, er treysta þér, fagna að eilífu, því að þú verndar þá, hallelúja.
2Heyr orð mín, Drottinn * gef gaum að andvörpum mínum.
3Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn * því að til þín bið ég.
4Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína * á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig, og ég bíð þín.
5Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki * hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.
6Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér * þú hatar alla er illt gjöra.
7Þú tortímir þeim, sem lygar mæla * á blóðvörgum og svikurum hefur Drottinn andstyggð.
8En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína * fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér.
9Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna * gjör sléttan veg þinn fyrir mér.
10Einlægni er ekki til í munni þeirra * hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.
12Allir kætast, er treysta þér, þeir fagna að eilífu * því að þú verndar þá. Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.
13Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta * hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þeir, er treysta þér, fagna að eilífu, því að þú verndar þá, hallelúja.
Sálmur — 1 Kro 29, 10b-13 — Guði einum sé heiður og dýrð
Andstef · Þín, Drottinn, er tignin, því að allt er þitt, á himni og jörðu, hallelúja.
10Þá lofaði Davíð Drottins, að öllum söfnuðinum ásjáanda, og Davíð mælti * „Lofaður sért þú, Drottinn, Guð Ísraels, forföður vors, frá eilífð til eilífðar.
11Þín, Drottinn, er tignin, mátturinn og dýrðin, vegsemdin og hátignin, því að allt er þitt * á himni og jörðu. Þinn er konungdómurinn, Drottinn, og sá, er gnæfir yfir alla sem höfðingi.
12Auðlegðin og heiðurinn koma frá þér; þú drottnar yfir öllu, máttur og megin er í hendi þinni * og á þínu valdi er það, að gjöra hvern sem vera skal mikinn og máttugan.
13Og nú, Guð vor * vér lofum þig og tignum þitt dýrlega nafn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þín, Drottinn, er tignin, því að allt er þitt, á himni og jörðu, hallelúja.
Sálmur 29
Andstef · Drottinn mun ríkja sem konungur að eilífu, hallelúja.
1Tjáið Drottni vegsemd, þér synir hins almáttuga * tjáið Drottni vegsemd og vald.
2Tjáið Drottni dýrð þá er nafni hans hæfir * fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða.
3Raust Drottins hljómar yfir vötnunum, Guð dýrðarinnar lætur þrumur drynja * Drottinn ríkir yfir hinum miklu vötnum.
4Raust Drottins hljómar með krafti * raust Drottins hljómar með tign.
5Raust Drottins brýtur sundur sedrustré * Drottinn brýtur sundur sedrustrén á Líbanon.
6Hann lætur Líbanonfjöll hoppa eins og * kálfa og Hermonfjall eins og ungan vísund.
7Raust Drottins klýfur eldsloga.
8Raust Drottins lætur eyðimörkina skjálfa * Drottinn lætur Kadeseyðimörk skjálfa.
9Raust Drottins lætur hindirnar bera fyrir tímann og gjörir skógana nakta * og allt í helgidómi hans segir: Dýrð!
10Drottinn situr í hásæti uppi yfir flóðinu * Drottinn mun ríkja sem konungur að eilífu.
11Drottinn veitir lýð sínum styrkleik * Drottinn blessar lýð sinn með friði.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn mun ríkja sem konungur að eilífu, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Rm 10, 8b-10Nálægt þér er orðið, í munni þínum og í hjarta þínu. Það er: Orð trúarinnar, sem vér prédikum. Ef þú játar með munni þínum: „Jesús er Drottinn“ – og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða. Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.
Stutt svarvers
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Sá sem elskar mig, mun elskaður verða af Föður mínum, og ég mun elska hann og birta honum sjálfan mig, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Faðirinn gjörði Jesúm dýrlegan og setti hann erfingja allra þjóða. Biðjum til hans og segjum:Frelsa oss, Drottinn, fyrir sigur þinn.Drottinn Kristur, með sigri þínum braust þú á bak aftur kraft illskunnar og eyddir synd og dauða,gjör oss sigursæl yfir syndinni í dag.Þú lagðir dauðann að velli og færðir oss til nýs lífs,gefðu að í dag megum vér ganga í þessu nýja lífi.Þú gafst hinum dauðu líf og leiddir mannkynið frá dauða til lífs,gefðu öllum eilíft líf sem verða á vegi oss í dag.Þú komst varðmönnunum í uppnám en gafst lærisveinunum gleði,gefðu þeim fulla gleði sem þjóna þér.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú gjörir hugi hinna trúuðu samstillta. Veit þú lýð þínum að elska það, sem þú fyrirskipar, og þrá það, sem þú lofar; svo að hjörtu vor megi í margbreytileika þessa jarðneska lífs haldast stöðugt þar, sem hina sönnu gleði er að finna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Hann sagði við þá: Sjá, ég kem í skýjum,og sólin brosti í tærum augum hans.Þeir skildu ei það ljós, sem lýsti af honum,en lutu þöglir ásýnd þessa manns.Og senn hann kvaddi þá með hryggð í hjarta,með himindjúpa kvöl í brjósti sér,og krossinn bar hann, kærleikanum hlýðinn,– og kveikti sól, er lýsir mér og þér.Og föður sínum fól hann drauminn stóraum frið og líkn, og bað í hinsta sinnog hneigði andlit hljótt og sagði: Faðir,í hendur þínar fel ég anda minn.Á þriðja degi reis hann upp og áttienn orðastað við þá, sem biðu hans.Þeir vissu nú, að hann var Herrann sjálfurog holdi klæddur Guð í sporum manns.Og enn hann segir: Sjá, ég kem í skýjum,og sendir þá, er lúta ásýnd hans,að boða líkn og lífið í hans nafniog leiða saman vegu Guðs og manns.Og þó að páskahretin hurðir lemji,er hitt jafn víst, að sólin brýst í gegn.Í þessum heimi illra verka og óttaer ekkert það, sem honum er um megn.Svo heiti' eg loks á hurðir þínar, Jesús,ó, heyr þú mig, er stend ég þar við dyr.Ég kalla á þig og krýp í þínu nafni,ó, Kristur minn, sem barnið áður fyr. Amen.
Sálmur 11
Andstef · Verið hughraust; ég hef sigrað heiminn, hallelúja.
1Hvernig getið þér sagt við sál mína * „Fljúg sem fugl til fjallanna!“
2Því að nú benda hinir óguðlegu bogann * leggja örvar sínar á streng til þess að skjóta í myrkrinu á hina hjartahreinu.
3Þegar stoðirnar eru rifnar niður * hvað megna þá hinir réttlátu?
4Drottinn er í sínu heilaga musteri, hásæti Drottins er á himnum * augu hans sjá, sjónir hans rannsaka mennina.
5Drottinn rannsakar hinn réttláta og hinn óguðlega * og þann er elskar ofríki, hatar sál hans.
6Á óguðlega lætur hann rigna glóandi kolum * eldur og brennisteinn og brennheitur vindur er þeirra mældi bikar.
7Því að Drottinn er réttlátur og hefur mætur * á réttlætisverkum. Hinir hreinskilnu fá að líta auglit hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Verið hughraust; ég hef sigrað heiminn, hallelúja.
Sálmur 15
Andstef · Réttlátur maður fær að gista í tjaldi þínu, og að búa á fjallinu þínu helga, hallelúja.
1Davíðssálmur Drottins, hver fær að gista í tjaldi þínu * hver fær að búa á fjallinu þínu helga?
2Sá er fram gengur í flekkleysi og * iðkar réttlæti og talar sannleik af hjarta,
3sá er eigi talar róg með tungu sinni * eigi gjörir öðrum mein og eigi leggur náunga sínum svívirðing til;
4sem fyrirlítur þá er illa breyta, en heiðrar þá er óttast Drottin * sá er sver sér í mein og bregður eigi af,
5sá er eigi lánar fé sitt með okri og eigi þiggur mútur gegn saklausum * sá er þetta gjörir, mun eigi haggast um aldur.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Réttlátur maður fær að gista í tjaldi þínu, og að búa á fjallinu þínu helga, hallelúja.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · Þegar ég verð hafinn upp frá jörðu mun ég draga alla til mín, hallelúja.
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þegar ég verð hafinn upp frá jörðu mun ég draga alla til mín, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Heb 8, 1b-3aVér höfum þann æðsta prest, er settist til hægri handar við hásæti hátignarinnar á himnum. Hann er helgiþjónn helgidómsins og tjaldbúðarinnar, hinnar sönnu, sem Drottinn reisti, en eigi maður. Sérhver æðsti prestur er skipaður til þess að bera fram bæði gjafir og fórnir.
Stutt svarvers
Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.
Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.
Þegar þeir sáu Drottin upp risinn,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Hjálparinn, Andinn Heilagi, sem Faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú gjörir hugi hinna trúuðu samstillta. Veit þú lýð þínum að elska það, sem þú fyrirskipar, og þrá það, sem þú lofar; svo að hjörtu vor megi í margbreytileika þessa jarðneska lífs haldast stöðugt þar, sem hina sönnu gleði er að finna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.
Sálmur 86
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.
2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.
3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.
4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.
5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.
6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.
7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.
8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.
9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.
10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!
11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,
13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.
14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.
15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.
16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.
17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. 1Þ 5, 9-10Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum.
Stutt svarvers
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, veit líkömum vorum hvíld í svefni og lát þau störf er vér höfum í dag unnið, vera undirbúning hinnar eilífu uppskeru. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007