Jóhannesarguðspjall 14Krans-útgáfa

Jóhannesarguðspjall 14

Hjarta yðar skelfist ekki; trúið á Guð og trúið á mig.

Í húsi föður míns eru mörg híbýli; væri ekki svo, hefði eg sagt yður það. Því eg fer burt að búa yður stað;

og þegar eg er farinn burt, og hefi búið yður stað, kem eg aftur og mun taka yður til sjálfs mín, til þess að þér séuð og þar sem eg er.

Og þér þekkið veginn þangað sem eg fer.

Tómas segir við hann: Herra, vér vitum ekki hvert þú fer; hvernig skyldum vér þá þekkja veginn?

Jesús segir við hann: Eg er vegurinn og sannleikurinn og lífið; enginn kemur til föðurins nema fyrir mig.

Ef þér hefðuð þekt mig, hefðuð þér og þekt föður minn, og héðan í frá þekkið þér hann og hafið séð hann.

Filippus segir við hann: Herra, sýn þú oss föðurinn, og þá nægir oss.

Jesús segir við hann: Svo langa stund hefi eg með yður verið, og þú, Filippus, þekkir mig ekki? Sá sem hefir séð mig, hefir séð föðurinn; hvernig segir þú: Sýn þú oss föðurinn?

Trúir þú ekki, að eg er í föðurnum og faðirinn í mér? Þau orð, sem eg tala til yðar, þau tala eg ekki af sjálfum mér; en faðirinn, sem í mér er, hann gjörir verk sín.

Trúið mér, að eg er í föðurnum og faðirinn í mér; en ef ekki, þá trúið mér vegna sjálfra verkanna.

Sannlega, sannlega segi eg yður: sá sem trúir á mig, mun einnig gjöra þau verk, sem eg gjöri; og hann mun gjöra meiri verk en þessi, af því að eg fer til föðurins;

og hvað sem þér biðjið um í mínu nafni, það mun eg gjöra, til þess að faðirinn vegsamist í syninum.

Ef þér biðjið einhvers í mínu nafni, mun eg gjöra það.

Ef þér elskið mig, þá munuð þér halda boðorð mín.

Og eg mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yður annan huggara, til þess að hann sé hjá yður eilíflega,

anda sannleikans, hann, sem heimurinn getur ekki meðtekið, af því að hann sér hann ekki og þekkir hann ekki heldur; þér þekkið hann, af því að hann dvelur hjá yður og mun vera í yður.

Ekki mun eg skilja yður eftir munaðarlausa. Eg kem til yðar.

Innan skamms — og heimurinn mun ekki sjá mig framar, en þér munuð sjá mig, því að eg lifi og þér munuð lifa.

Á þeim degi munuð þér komast að raun um, að eg er í föður mínum, og þér í mér, og eg í yður.

Sá sem hefir mín boðorð og heldur þau, hann er sá sem elskar mig. En sá sem elskar mig, mun verða elskaður af föður mínum, og eg mun elska hann og sjálfur birtast honum.

Júdas — ekki Júdas Ískaríot —, segir við hann: Herra, hvernig stendur á því, að þú vilt sjálfur birtast oss og ekki heiminum?

Jesús svaraði og sagði við hann: Hver sem elskar mig, mun varðveita mitt orð, og faðir minn mun elska hann, og til hans munum við koma og gjöra okkur bústað hjá honum.

Sá sem ekki elskar mig, hann varðveitir ekki mín orð, og það orð, sem þér heyrið, er ekki mitt, heldur föðurins, sem sendi mig.

Þetta hefi eg talað við yður, meðan ég var hjá yður,

en huggarinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, hann mun kenna yður alt, og minna yður á alt, sem eg hefi sagt yður.

Frið læt eg eftir hjá yður, minn frið gef eg yður, ekki eins og heimurinn gefur, gef eg yður. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist.

Þér heyrðuð, að eg sagði við yður: Eg fer burt og kem til yðar; ef þér elskuðuð mig, þá munduð þér hafa glaðst af því, að eg fer til föðurins; því að faðirinn er mér meiri.

Og nú hefi eg sagt yður það, áður en það kemur fram, til þess að þér trúið, þegar það er komið fram.

Eg mun ekki framar tala margt við yður, því að höfðingi heimsins kemur, og í mér á hann alls ekkert.

En til þess að heimurinn viti, að eg elska föðurinn, og að eg gjöri eins og faðirinn hefir boðið mér, þá standið upp, förum héðan.