Eg er hinn sanni vínviður, og faðir minn er vínyrkinn.
Sérhverja grein á mér, er ekki ber ávöxt, sníður hann af, og sérhverja þá, sem ber ávöxt, hreinsar hann, til þess að hún beri meiri ávöxt.
Þér eruð þegar hreinir vegna orðsins, sem eg hefi talað til yðar.
Verið í mér, þá verð eg líka í yður. Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér, nema hún sé á vínviðinum, þannig ekki heldur þér, nema þér séuð í mér.
Eg er vínviðurinn, þér eruð greinarnar; sá sem er í mér og eg í honum, hann ber mikinn ávöxt, því að án mín getið þér alls ekkert gjört.
Hver sem ekki er í mér, honum verður snarað út eins og greininni, og hann visnar og menn safna því saman og kasta því á eld og það brennur.
Ef þér eruð í mér og orð mín eru í yður, þá biðjið um hvað sem þér viljið, og það mun veitast yður.
Með þessu vegsamast faðir minn, að þér berið mikinn ávöxt, og þér munuð verða mínir lærisveinar.
Eins og faðirinn hefir elskað mig, eins hefi eg elskað yður; verið í elsku minni.
Ef þér haldið mín boðorð, þá munuð þér vera í elsku minni, eins og eg hefi haldið boðorð föður míns og er í elsku hans.
Þetta hefi eg talað til yðar, til þess að fögnuður minn sé hjá yður og fögnuður yðar fullkomnist.
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og eg hefi elskað yður.
Meiri elsku hefir enginn en þá, að hann lætur líf sitt fyrir vini sína.
Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það sem eg býð yður.
Eg kalla yður ekki framar þjóna, því að þjónninn veit ekki, hvað herra hans gjörir, en eg hefi kallað yður vini, því að eg hefi kunngjört yður alt það, sem eg hefi heyrt hjá föður mínum.
Ekki hafið þér útvalið mig, heldur hefi eg útvalið yður og sett yður, til þess að þér farið og berið ávöxt, og ávöxtur yðar vari við, til þess að hvað sem þér biðjið föðurinn um í mínu nafni, það veiti hann yður.
Þetta býð eg yður, að þér elskið hver annan.
Ef heimurinn hatar yður, þá vitið, að hann hefir hatað mig fyrri en yður.
Ef þér væruð af heiminum, þá mundi heimurinn láta sér þykja vænt um sitt eigið; en af því að þér eruð ekki af heiminum, en eg hefi útvalið yður af heiminum, vegna þess hatar heimurinn yður.
Minnist orðsins, sem eg sagði yður: Ekki er þjónn meiri en húsbóndi hans. Hafi þeir ofsótt mig, þá munu þeir líka ofsækja yður; hafi þeir varðveitt mitt orð, munu þeir og varðveita yðar.
En alt þetta munu þeir gjöra við yður vegna nafns míns, af því að þeir þekkja ekki þann, sem sendi mig.
Hefði eg ekki komið og talað til þeirra, þá hefðu þeir ekki synd, en nú hafa þeir enga afsökun synd sinni.
Sá sem hatar mig, sá hatar og föður minn.
Ef eg hefði eigi gjört þau verk á meðal þeirra, sem enginn annar hefir gjört, þá hefðu þeir ekki synd; en nú hafa þeir bæði séð þau og hatað bæði mig og föður minn.
En það er til þess að rætist orðið, sem ritað er í lögmáli þeirra: Þeir hötuðu mig án saka.
En þegar huggarinn kemur, sem eg mun senda yður frá föðurnum, andi sannleikans, sem útgengur frá föðurnum, hann mun vitna um mig;
en þér skuluð og vitna, því að þér hafið frá upphafi með mér verið.