Jóhannesarguðspjall 16Krans-útgáfa

Jóhannesarguðspjall 16

Þetta hefi eg talað til yðar, til þess að þér hneyksluðust ekki.

þeir munu gjöra yður samkunduræka, já, sú stund kemur, að hver sem líflætur yður, mun þykjast veita Guði þjónustu;

og þetta munu þeir gjöra, af því að þeir þektu hvorki föðurinn né mig.

En þetta hefi eg talað til yðar, til þess að þér, þegar sú stund kemur, minnist þess, að eg hefi sagt yður það. En eg hefi ekki sagt yður þetta frá upphafi, af því að eg var með yður.

En nú fer eg burt til hans, sem sendi mig, og enginn yðar spyr mig: Hvert fer þú?

heldur hefir hrygð fylt hjarta yðar, af því að eg hefi talað þetta við yður.

En eg segi yður sannleikann: það er yður til góðs, að eg fari burt; því að fari eg ekki burt, mun huggarinn ekki koma til yðar, en þegar eg er farinn, mun eg senda hann til yðar.

Og þegar hann kemur, mun hann sannfæra heiminn um synd og um réttlæti og um dóm:

um synd, af því að þeir trúa ekki á mig;

en um réttlæti, af því að eg fer burt til föðurins og þér sjáið mig ekki lengur;

en um dóm, af því að höfðingi þessa heims er dæmdur.

Eg hefi enn margt að segja yður, en þér getið ekki borið það að sinni;

en þegar hann, andi sannleikans, kemur, mun hann leiða yður inn í allan sannleikann, því að hann mun ekki tala af sjálfum sér, heldur mun hann tala alt það, sem hann heyrir, og það sem koma á, mun hann kunngjöra yður.

Hann mun vegsama mig, því að af mínu mun hann taka og kunngjöra yður.

Alt það, sem faðirinn hefir, er mitt; fyrir því sagði eg, að hann taki af mínu og kunngjöri yður.

Innan skamms — og þér sjáið mig ekki, og aftur innan skamms — og þér munuð sjá mig!

Þá sögðu nokkrir af lærisveinum hans hver við annan: Hvað er þetta, sem hann segir við oss: »Innan skamms — og þér sjáið mig ekki, og aftur innan skamms — og þér munuð sjá mig!« og: »Eg fer til föðurins«?

Þeir sögðu því: Hvað er þetta sem hann segir: »Innan skamms«? vér skiljum ekki hvað hann talar.

Jesús varð þess var, að þeir vildu spyrja hann, og sagði við þá: Þér spyrjist á um það, að eg sagði: Innan skamms — og þér sjáið mig ekki, og aftur innan skamms — og þér munuð sjá mig.

Sannlega, sannlega segi eg yður: þér munuð gráta og kveina, en heimurinn mun fagna; þér munuð verða hryggir, en hrygð yðar mun snúast í fögnuð.

Þegar konan elur barn, hefir hún hrygð, því að stund hennar er komin; en þegar hún hefir alið barnið, minnist hún ekki framar þjáningarinnar vegna gleðinnar yfir því, að maður er í heiminn borinn;

einnig þér hafið nú að sönnu hrygð, en eg mun sjá yður aftur, og hjarta yðar mun fagna, og enginn tekur fögnuð yðar frá yður.

Og á þeim degi munuð þér ekki spyrja mig neins. Sannlega, sannlega segi eg yður: Hvað sem þér biðjið föðurinn um, það mun hann veita yður í mínu nafni.

Hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni; biðjið, og þér munuð öðlast, til þess að fögnuður yðar verði fullkominn.

Þetta hefi eg talað til yðar í líkingum; sú stund kemur, að eg mun ekki lengur tala við yður í líkingum, heldur mun eg berlega segja yður frá föðurnum;

á þeim degi munuð þér biðja í mínu nafni. Og ekki segi eg yður, að eg muni biðja föðurinn fyrir yður;

því að faðirinn sjálfur elskar yður, af því að þér hafið elskað mig og hafið trúað, að eg sé útgenginn frá föðurnum.

Eg útgekk frá föðurnum og er kominn í heiminn; eg yfirgef heiminn aftur og fer til föðurins.

Lærisveinar hans segja: Sjá, nú talar þú berlega og mælir enga líkingu.

Nú vitum vér, að þú veist alt og þarft þess ekki, að nokkur spyrji þig; þess vegna trúum vér, að þú sért frá Guði kominn,

Jesús svaraði þeim: Trúið þér nú?

Sjá, sú stund kemur og er þegar komin, að þér tvístrist hver til sín og skiljið mig eftir einan; en eg er ekki einn, því að faðirinn er með mér.

Þetta hefi eg talað til yðar, til þess að þér hafið frið í mér. Í heiminum hafið þér þrenging, en verið hughraustir, eg hefi sigrað heiminn.