Jóhannesarguðspjall 17Krans-útgáfa

Jóhannesarguðspjall 17

Þetta talaði Jesús, hóf augu sín til himins og sagði: Faðir, stundin er komin; gjör son þinn dýrðlegan, til þess að sonurinn gjöri þig dýrðlegan,

eins og þú hefir gefið honum vald yfir öllu holdi, til þess að hann gefi öllum, sem þú gafst honum, eilíft líf.

En þetta er hið eilífa líf, að þeir þekki þig einn sannan Guð og þann sem þú sendir, Jesúm Krist.

Eg hefi gjört þig dýrðlegan á jörðunni, með því að fullkomna það verk, sem þú fékst mér að vinna;

og nú, gjör þú mig dýrðlegan, faðir, hjá sjálfum þér með þeirri dýrð, sem eg hafði hjá þér áður en heimurinn var.

Eg hefi opinberað nafn þitt þeim mönnum, sem þú gafst mér af heiminum; þeir voru þínir og þú gafst mér þá; og þeir hafa varðveitt þitt orð.

Nú vita þeir, að alt, sem þú hefir gefið mér, er frá þér,

því að orðin, er þú gafst mér, hefi eg gefið þeim; og þeir hafa meðtekið þau og með sanni komist að raun um, að eg er kominn frá þér, og hafa trúað, að þú hafir sent mig.

Eg bið fyrir þeim; fyrir heiminum bið eg ekki, heldur fyrir þeim, sem þú gafst mér, af því að þeir eru þínir;

og alt mitt er þitt, og þitt er mitt, og eg er orðinn dýrðlegur í þeim.

Eg er ekki lengur í heiminum, en þeir eru í heiminum, og eg kem til þín. Heilagi faðir, varðveit þá í þínu nafni, er þú hefir gefið mér, til þess að þeir séu eitt eins og við.

Þegar eg var hjá þeim, varðveitti eg þá í þínu nafni, sem þú hefir gefið mér; og eg gætti þeirra, og enginn þeirra týndist, nema glötunar-sonurinn, til þess að ritningin skyldi rætast.

En nú kem eg til þín; og þetta tala eg í heiminum, til þess að þeir hafi í sjálfum sér fögnuð minn fullkominn.

Eg hefi gefið þeim orð þitt, og heimurinn hataði þá, af því að þeir eru ekki af heiminum, eins og eg er ekki af heiminum.

Ekki bið eg, að þú takir þá úr heiminum, heldur að þú varðveitir þá frá illu.

Þeir eru ekki af heiminum, eins og eg er ekki af heiminum.

Helga þú þá í sannleikanum; þitt orð er sannleikur.

Eins og þú hefir sent mig til heimsins, hefi eg líka sent þá til heimsins;

og þeirra vegna helga eg sjálfan mig, til þess að þeir einnig skuli vera helgaðir í sannleika.

En eg bið ekki einungis fyrir þessum, heldur og fyrir þeim sem trúa á mig fyrir orð þeirra;

til þess að þeir séu allir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og eg í þér, til þess að þeir og séu í okkur; til þess að heimurinn skuli trúa að þú hafir sent mig.

Og dýrðina, sem þú hefir gefið mér, hefi eg gefið þeim, til þess að þeir séu eitt, eins og við erum eitt,

og í þeim og þú í mér, til þess að þeir skuli vera fullkomlega sameinaðir; til þess að heimurinn skuli komast að raun um, að þú hefir sent mig, og að þú hefir elskað þá, eins og þú hefir elskað mig.

Faðir, eg vil, að þar sem eg er, skuli einnig þeir, sem þú hefir gefið mér, vera hjá mér, til þess að þeir skuli sjá dýrð mína, sem þú hefir gefið mér; því að þú hefir elskað mig áður en veröldin var grundvölluð.

Réttláti faðir, og heimurinn þekti þig ekki, en eg þekti þig, og þessir hafa komist að raun um, að þú hafir sent mig.

Eg hefi kunngjört þeim nafn þitt og mun kunngjöra, til þess að kærleikurinn, sem þú hefir elskað mig með, sé í þeim og eg í þeim.