Saltarinn 115Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 115

Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss, heldur þínu nafni dýrðina, sakir miskunnar þinnar og trúfesti.

Hví eiga heiðingjarnir að segja: Hvar er Guð þeirra?

En vor Guð er í himninum, alt, sem honum þóknast, það gjörir hann.

Skurðgoð þeirra eru silfur og gull, handaverk manna;

þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki;

þau hafa eyru, en heyra ekki, nef, en finna eigi þef.

Þau hafa hendur, en þreifa ekki, fætur, en ganga ekki;; þau tala eigi með barka sínum.

Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir, er á þau treysta.

En Ísrael treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur;

Arons ætt treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur;

þeir, sem óttast Drottin, treysta Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur.

Drottinn minnist vor, hann mun blessa, hann mun blessa Ísraels ætt, hann mun blessa Arons ætt,

hann mun blessa þá, er óttast Drottin, yngri sem eldri.

Drottinn mun fjölga yður, sjálfum yður og börnum yðar,

þér eruð blessaðir af Drottni, skapara himins og jarðar.

Himininn er himinn fyrir Drottni, en jörðina hefir hann gefið mannanna börnum,

Eigi lofa andaðir menn Drottinn, né heldur neinn sá, sem hniginn er í dauðaþögn,

en vér viljum lofa Jah, héðan í frá og að eilífu. Halelúja.