Saltarinn 114Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 114

Þegar Ísrael fór út af Egiptalandi,. Jakobs ætt frá þjóðinni, er mælti á erlenda tungu,

varð Júda helgidómur hans, Ísrael ríki hans.

Hafið sá það og flýði, Jórdan hörfaði undan.

Fjöllin hoppuðu sem hrútar, hæðirnar sem lömb.

Hvað er þér, haf, er þú flýr, Jórdan, er þú hörfar undan,

þér fjöll, er þér hoppið sem hrútar, þér hæðir sem lömb?

titra þú, jörð, fyrir augliti Drottins, fyrir augliti Jakobs Guðs,

hans, sem gjörir klettinn að vatnstjörn, tinnusteininn að vatnslind.