Saltarinn 116Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 116

Eg elska Drottin, af því að hann heyrir grátbeiðni mína,

því að hann hefir hneigt eyra sitt að mér, og alla æfi vil eg ákalla hann.

Þegar snörur dauðans umkringja mig, og angist heljar mætir mér, þegar eg mæti nauðum og harmi,

þá ákalla eg nafn Drottins: Æ, Drottinn, bjarga sál minni!

Náðugur er Drottinn og réttlátur, og vor Guð er miskunnsamur.

Drottinn varðveitir varnarlausa, þegar eg er máttvana hjálpar hann mér.

Verð þú aftur róleg, sála mín, því að Drottinn gjörir vel til þín.

Já, þú hrífur sál mína frá dauða, auga mitt frá gráti, fót minn frá hrösun.

Eg geng frammi fyrir Drottni á landi lifenda.

Es trúi, þegar eg tala, eg er mjög beygður.

Es sagði í angist minni: allir menn ljúga.

Hvað á eg að gjalda Drottni fyrir allar velgjörðir hans við mig?

Eg lyfti upp Þikar hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins;

eg greiði Drottni heit mín og það í augsýn alls lýðs hans.

Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans.

Drottinn, víst er eg þjónn þinn; eg er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leysir fjötra mína.

Þér færi eg þakkarfórn og ákalla nafn Drottins;

eg greiði Drottni heit mín og það í augsýn alls lýðs hans,

í forgörðum húss Drottins, í þér Jerúsalem. Halelúja.