Dagatal

Fimmtudagur í 1. viku langaföstu

Virkur dagur á lönguföstu.

Langafasta · Vika 1

Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

1. lesning
Esterarbók C:12, 14-16, 23-25

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ó, Jesús, líkn og lífið mitt,þú lífið gafst í dauða þitt,til þess að deyða dauða minn,í deyð til lífs því geng ég inn.Þú gráta hlaust, svo gleddist ég,þú gekkst hinn þunga kvalaveg,svo ævi minnar efsta leiðmér yrði heimför sæl og greið.Þú krónu þyrna krýndur varst,af kærleiks nægð þú hana barst,svo djásn ég megi dýrlegt fá,ó, Drottinn minn, þér sjálfum hjá.Þú barst þinn eiginn kvalakross,frá kvölum þegar leystir oss,svo krossburð minn í heimi hérþví hægri létir verða mér.Með hverju get ég þakkað þér?Við þig um allt í skuld ég er.Þú gafst mér lífið góða þitt,ég gef þér hjartað veika mitt. Amen.

Sálmur 57

Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

1Miktam eftir Davíð * þá er hann flýði inn í hellinn fyrir Sál.

2Ver mér náðugur, ó Guð, ver mér náðugur! Því að hjá þér leitar sál mín hælis * og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita, uns voðinn er liðinn hjá.

3Ég hrópa til Guðs, hins hæsta, þess Guðs * er kemur öllu vel til vegar fyrir mig.

4Hann sendir af himni og hjálpar mér * þegar sá er kremur mig spottar. [Sela] Guð sendir náð sína og trúfesti.

5Sál mín er meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar * og tungur þeirra eru bitur sverð.

6Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina!

7Þeir hafa lagt net fyrir fætur mína * sál mín er beygð. Þeir hafa grafið gryfju fyrir framan mig, sjálfir falla þeir í hana. [Sela]

8Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð * hjarta mitt er stöðugt, ég vil syngja og leika.

9Vakna þú, sál mín, vakna þú * harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

10Ég vil lofa þig meðal lýðanna * Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

11því að miskunn þín nær til * himna og trúfesti þín til skýjanna.

12Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

Sálmur — Jer 31, 10-14 — Gleði hinnar frelsuðu þjóðar

Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.

10Heyrið orð Drottins, þér þjóðir, og kunngjörið það á fjarlægu eyjunum og segið: Sá * sem tvístraði Ísrael, safnar honum saman og mun gæta hans, eins og hirðir gætir hjarðar sinnar.

11Drottinn frelsar Jakob og leysir hann undan valdi þess * sem honum var yfirsterkari.

12Þeir skulu koma og fagna á Síonhæð og streyma til gæða Drottinn, til kornsins, vínberjalagarins * olíunnar og ungu sauðanna og nautanna, og sál þeirra skal verða eins og vökvaður aldingarður, og þeir skulu eigi framar vanmegnast.

13Þá munu meyjarnar skemmta sér við dans og unglingar og gamalmenni gleðjast saman. Ég * mun breyta sorg þeirra í gleði og hugga þá og gleðja eftir harma þeirra.

14Og ég mun endurnæra sál prestanna á feiti * og lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum – segir Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.

Sálmur 48

Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.

1Ljóð. Kóraítasálmur.

2Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs * á sínu helga fjalli.

3Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð * yst í norðri, borg hins mikla konungs.

4Guð hefur í höllum * hennar kunngjört sig sem vígi.

5Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu * héldu fram saman.

6Óðara en þeir sáu * urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu.

7Felmtur greip þá samstundis * angist sem jóðsjúka konu.

8Með austanvindinum brýtur þú Tarsis–knörru.

9Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna * í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela]

10Guð, vér ígrundum elsku * þína inni í musteri þínu.

11Eins og nafn þitt, Guð * svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis.

12Síonfjall gleðst * Júdadætur fagna vegna dóma þinna.

13Kringið um Síon * gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.

14Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar * til þess að þér getið sagt komandi kynslóð,

15að slíkur sé Drottinn * Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. 1 Kon 8, 51-53aDrottinn, vér erum þinn lýður og þín eign. Lát opin vera augu þín fyrir grátbeiðni þjóns þíns og grátbeiðni lýðs þíns Ísraels. Bænheyr oss, hvenær sem vér biðjum þig því að þú hefir skilið oss frá öllum þjóðum jarðarinnar þér til eignar.

Stutt svarvers

Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.

Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.

Og frá illum tíðindum.

Úr snöru fuglarans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá Faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir sem biðja hann.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Kristur Drottinn kom á meðal vor sem ljós heimsins til að vér mættum ganga í ljósi hans en ekki í myrkri dauðans. Lofum hann og hrópum til hans:Lát orð þitt vera ljósið sem leiðir oss.Guð miskunnarinnar, hjálpa oss að vaxa á hverjum degi til að vera lík þér,til að vér sem syndguðum í Adam getum risið upp aftur í Kristi.Lát orð þitt vera ljósið sem leiðir oss,til að vér megum lifa í sannleika og vaxa ávallt í kærleika þínum.Kenndu oss að vera trúföst við að leita almannaheilla fyrir þína sök,til að ljós þitt megi skína á alla fjölskyldu mannkyns eftir leiðum Kirkju þinnar.Snertu hjörtu vor til að þau leiti æ meir vináttu við þig,og bæti fyrir syndir vorar gegn speki þinni og gæsku.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum, Drottinn, veit oss ávallt andann til að hugsa um það sem rétt er og breyta greiðlega eftir því. Gef að vér, sem getum ekki án þín verið, megnum að lifa samkvæmt þér. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Jesús Kristur, lífsins ljómi,leysti oss frá sekt og dómi,þoldi háðung, þraut og kross,það var gjaldið hans til lausnar oss.Að vér sjá og muna megummiskunn þá og líf hans eigum,býr hann oss sitt borð og erbrauði úr og kaleik sjálfur hér.Komum til hans, krjúpum niður,Kristur er vort líf og friður,alla kallar elskan hans,athvarf, líkn og frelsi syndugs manns.Lofum hann, sem heiminn leysti,hjartað játi, elski, treystiföðurnáð, sem frelsar ossfyrir Jesú heilagt blóð og kross.Kristur mettar, Kristur svalar,kærleiksríkur við oss talar,hverjum þeim, sem byrði ber,býður hann að þiggja frið hjá sér. Amen.

Sálmur 30

Andstef · Ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig, Drottinn, ég vil þakka þér að eilífu.

1Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur.

2Ég tigna þig, Drottinn * því að þú hefur bjargað mér og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.

3Drottinn, Guð minn * ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.

4Drottinn, þú heimtir sál mína úr Helju * lést mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar.

5Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu * vegsamið hans heilaga nafn.

6Andartak stendur reiði hans * en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni.

7En ég uggði eigi að mér og hugsaði * „Aldrei skriðnar mér fótur.“

8Drottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt * en nú huldir þú auglit þitt og ég skelfdist.

9Til þín, Drottinn, kallaði ég * og Drottinn grátbændi ég:

10„Hver ávinningur er í dauða mínum * í því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína?

11Heyr, Drottinn, og líkna mér * ó Drottinn, ver þú hjálpari minn!“

12Þú breyttir grát mínum í gleðidans * leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði,

13að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn * Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig, Drottinn, ég vil þakka þér að eilífu.

Sálmur 32

Andstef · Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi synd.

1Sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin * synd hans hulin.

2Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð * sá er eigi geymir svik í anda.

3Meðan ég þagði, tærðust bein mín * allan daginn kveinaði ég,

4því að dag og nótt lá hönd þín þungt á mér * lífsvökvi minn þvarr sem í sumarbreiskju. [Sela]

5Þá játaði ég synd mína fyrir þér og fól eigi misgjörð mína. Ég mælti * „Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni,“ og þú fyrirgafst syndasekt mína. [Sela]

6Þess vegna biðji þig sérhver trúaður * meðan þig er að finna. Þótt vatnsflóðið komi, nær það honum eigi.

7Þú ert skjól mitt, þú leysir mig úr nauðum * með frelsisfögnuði umkringir þú mig. [Sela]

8Ég vil fræða þig og vísa þér veginn, er þú átt að ganga * ég vil kenna þér og hafa augun á þér:

9Verið eigi sem hestar eða skynlausir múlar * með taum og beisli verður að temja þrjósku þeirra, annars nálgast þeir þig ekki.

10Miklar eru þjáningar óguðlegs manns * en þann er treystir Drottni umlykur hann elsku.

11Gleðjist yfir Drottni og fagnið * þér réttlátir, kveðið fagnaðarópi, allir hjartahreinir!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi synd.

Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs

Andstef · Drottinn gaf honum mátt og heiður og ríki, og allar þjóðir munu þjóna honum.

17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.

18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.

10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.

11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.

12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn gaf honum mátt og heiður og ríki, og allar þjóðir munu þjóna honum.

Stuttur ritningarlestur

Jk 4, 7-8. 10Gefið yður Guði á vald, standið gegn djöflinum, og þá mun hann flýja yður. Nálægið yður Guði, og þá mun hann nálgast yður. Hreinsið hendur yðar, þér syndarar, og gjörið hjörtun flekklaus, þér tvílyndu. Auðmýkið yður fyrir Drottni og hann mun upphefja yður.

Stutt svarvers

Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.

Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.

Lækna sál mína, því að ég hef syndgað gegn þér.

Miskunna þú mér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum, Drottinn, veit oss ávallt andann til að hugsa um það sem rétt er og breyta greiðlega eftir því. Gef að vér, sem getum ekki án þín verið, megnum að lifa samkvæmt þér. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 16

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.

2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“

3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.

6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.

7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,

10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

Stuttur ritningarlestur

1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007